Bæjarráð

2838. fundur 22. september 2016 kl. 08:15 - 10:00 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundinn sátu:
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir formaður
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.16031125 - Sorphirða í Kóp - Framtíðarsýn

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 7. september, lögð fram kostnaðargreining við breytingu á sorphirðukerfi Kópavogsbæjar sem bæjarstjórn óskaði eftir á fundi þann 22. mars sl. Um er að ræða greiningu á kostnaði við og tillögu um að bæta við þriðju tunnunni til að hirða plast við hýbýli í Kópavogi og/eða kostnaði við að flokka plast í sérpoka með pappír í bláu tunnuna, ásamt nánari úttekt á kostum og göllum. Bæjarráð frestaði afgreiðslu á síðasta fundi þann 15.09.2016.
Hlé var gert á fundi kl. 8.50. Fundi var fram haldið kl. 9.10.

Pétur Hrafn Sigurðsson lagði til að málið verði lagt fyrir stjórn Sorpu bs. til kynningar áður en málið verður afgreitt í bæjarráði.

Tillagan var felld en tveir greiddu atkvæði með henni og tveir á móti. Atkvæði með tillögunni greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson og Ólafur Þór Gunnarsson en atkvæði gegn henni greiddu Theódóra Þorsteinsdóttir og Hjördís Ýr Johnson. Karen Halldórsdóttir greiddi ekki atkvæði.

Fyrirliggjandi tillaga um tilraunaverkefni til eins árs um söfnun plasts var samþykkt með fjórum atkvæðum en Karen Halldórsdóttir greiddi ekki atkvæði.

Fulltrúar minnihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaðir styðja það verkefni sem um ræðir að bæta plasti við í flokkun sorps enda er hér um tilraunaverkefni að ræða. Að ári er mikilvægt, verði verkefnið boðið út, að horft verði til allra þátta, þ.m.t. hvaða áhrif verkefnið hefur á byggðasamlagið Sorpu. Rétt hefði verið að kynna verkefnið innan stjórnar Sorpu áður en farið væri af stað.
Ólafur Þór Gunnarsson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Birkir Jón Jónsson"

2.1609763 - Málefni leikskóla. Bókun frá Birki Jóni Jónssyni.

Kynning frá fulltrúum menntasviðs vegna mönnunarvanda á leikskólanum Austurkór, sem óskað var eftir á síðasta fundi bæjarráðs þann 15.09.2016.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.

3.1510046 - Beiðni um viðræður um úthlutun lóðar á Kársnesi fyrir höfuðstöðvar WOW air.

Frá skipulagsstjóra, dags. 17. september, lagt fram erindi um útfærslu á skipulagi við Vesturvör á Kársnesi vegna beiðni Wow air um að byggja hótel á svæðinu við höfuðstöðvar félagsins.
Bæjarráð veitir heimild til skipulagsstjóra að vinna áfram með framkomnar hugmyndir í samvinnu við Wow air. Samþykkt með fimm atkvæðum.

4.1609865 - Yfirlit yfir útgefin gistileyfi í Kópavogi

Frá verkefnastjóra stjórnsýslusviðs, dags. 20. september, lagt fram minnisblað um útgefin gistileyfi í Kópavogi.
Lagt fram.

5.1607229 - Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir

Frá Íbúðalánasjóði, dags. 12. september, lagt fram erindi vegna opnun umsókna um stofnframlög til byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði skv. lögum um almennar íbúðir nr. 52/2016.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.

6.1609629 - Tillaga að nýjum samstarfssamningi um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Frá SSH, dags. 7. september, lögð fram tillaga að nýjum samstarfssamningi um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins sem SSH samþykkti fyrir sitt leyti og vísaði til umfjöllunar og efnislegrar afgreiðslu aðildarsveitarfélaga á fundi þann 5. september sl. Bæjarráð frestaði afgreiðslu til næsta fundar á síðasta fundi þann 15.09.2016.
Bæjarráð samþykkir tillögu að samstarfssamningi með fimm atkvæðum.

7.1604134 - Tilnefning í starfshóp vegna fyrirhugaðs öldungaráðs

Frá félagi eldri borgara í Kópavogi, dags. 15. september, lagt fram erindi um skipun öldungaráðs í Kópavogi.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.

8.1609699 - Vesturvör 14. Lóðarumsókn

Frá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf., dags. 12. september, lagt fram erindi þar sem lýst er yfir áhuga á að kaupa lóðina Vesturvör 14.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

9.1608020 - Afgreiðslur byggingarfulltrúa, dags. 2. september 2016.

196. fundur afgreiðslna byggingarfulltrúa í 15. liðum.
Lagt fram.

10.16011144 - Fundargerðir eigendafunda Strætó, dags. 5. september 2016.

11. eigendafundur Strætó í 10. liðum.
Lagt fram.

11.1608019 - Forvarna- og frístundanefnd, dags. 12. september 2016.

41. fundur forvarna- og frístundanefndar í 1. lið.
Lagt fram.

12.1609012 - Leikskólanefnd, dags. 15. september 2016.

73. fundur leikskólanefndar í 9. liðum.
Lagt fram.

13.1609005 - Skipulagsnefnd, dags. 5. september 2016.

1282. fundur skipulagsnefndar í 1. lið.
Lagt fram.

14.1609004 - Skipulagsnefnd, dags. 19. september 2016.

1283. fundur skipulagsnefndar í 23. liðum.
Lagt fram.

15.1605119 - Austurkór 179. Einbýlishús í parhús. Breytt deiliskipulag.

Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts fh. lóðarhafa þar sem óskað er heimildar til að byggja parhús í stað einbýlishúss á lóðinni nr. 179 við Austurkór. Byggingarreitur fyrirhugaðs húss stækkar á allar hliðar um 1 m og grunnflötur hússins verður 269 m2 í stað 250 m2. Ennfremur lögð fram yfirlýsing lóðarhafa Austurkórs 181 dags. 2. maí 2016 þar sem fram kemur að lóðarhafi gerir ekki athugasemdir við ofangreind byggingaráform á lóðinni nr. 179 við Austurkór. Á fundi skipulagsnefndar 27. júní 2016 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Austurkórs 167, 169, 171, 173, 175, 177, 181, 183 og 185. Kynningartíma lauk 5. september 2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

16.16051122 - Álftröð 1. Stækkun Bílskúrs.

Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, lögð fram að nýju frá byggingarfulltrúa að lokinni kynningu erindi Hildar Bjarnadóttur, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 20. maí 2016 þar sem óskað er eftir breytingum á bílskúrum við Álftröð 1. Í breytingunni felst að stækka núverandi bílskúra um 39,5 m2. Eftir breytingu verður bílskúrinn 107,8 m2 að stærð. Nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,29 í 0,33 sbr. uppdráttum dags. 23.3.2016. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álftraðar 3, 5 og 7; Skólatraðar 2, 4, 6 og 8. Kynningu lauk 25. júlí 2016. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Guðrúnu Elvu Hjörleifsdóttur, Áfltröð 3 sbr. erindi dags. 24. og 25. júlí 2016 og Þórhöllu Kristjánsdóttur, Skólatröð 2 sbr. erindi dags. 20. júlí 2016. Á fundi skipulagsnefndar 15. ágúst 2016 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að umsögn. Er umsögnin dags. 19. september 2016. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

17.1607207 - Brekkuhvarf 17. Breytt deiliskipulag.

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi lóðarhafa í Brekkuhvarfi 17 dagsett í júlí 2016 þar sem óskað er eftir að vesturmörk lóðarinnar breytist þannig að lóðin stækki úr 1108 m2 samanber útgefið mæliblað frá 1. mars 1995 í 1427 m2. Jafnframt er í tillögunni gert ráð fyrir bílgeymslu í suðvestur hluta lóðarinnar. Uppdráttur í mælikvarða 1:500. Á fundi skipulagsnefndar 18. júlí 2016 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Brekkuhvarfs 15, 24 og Ennishvarfs 6, 8, 10 og 12. Kynningartíma lauk 29. ágúst 2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti erindið og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

18.1607142 - Dalaþing 5. Breytt deiliskipulag.

Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga fyrir hönd lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar númer 5 við Dalaþing, samanber erindi dagsett 13. júlí 2016. Í breytingunni felst að í stað einbýlishúss á 2 hæðum verði byggt parhús á tveimur hæðum, byggingarreitur færist til um 2 metra til norðurs, grunnflötur fyrirhugaðs húss minnkar úr 250 m2 í 230 m2. Heildarbyggingarmagn eykst um 60 m2. Uppdrættir í mælikvarða 1:500 og 1:200 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dagsett 14. júlí 2016. Á fundi skipulagsnefndar 18. júlí 2016 var með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Dalaþingi 1, 2, 3, 4, 6, 7, 8, 9 og Frostaþingi 2, 2a, 4. Kynningartíma lauk 24. ágúst 2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

19.1607156 - Digranesvegur 34. Grenndarkynning.

Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, að lokinni kynningu er lögð fram að nýju frá byggingarfulltrúa tillaga Benjamíns Magnússonar arkitekts, dagsett 9. júní 2016, þar sem óskað er eftir að gera íbúð í kjallara hússins númer 34 við Digranesveg. Uppdrættir mælikvarði 1:500 og 1:100. Á fundi skipulagsnefndar 18. júlí 2016 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Digranesvegi 34 og 36. Kynningartíma lauk 2. september 2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

20.1605983 - Furugrund 3. Kynning á byggingarleyfi.

Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, að lokinni kynningu er lögð fram að nýju frá byggingarfulltrúa tillaga Gríma arkitekta fh. lóðarhafa að breytingu á húsnæði Furugrundar 3. Í breytingunni felst að vegghæð hækkar um 2,5 m. en mænishæð er óbreytt. Í húsinu verða samtals 32 hótelíbúðir 30-45 m2 að flatarmáli ásamt móttöku, starfsmannaaðstöðu, línherbergi, þvottaaðstöðu og geymslum. Með tilkomu millilofts og stækkun útbyggingar á jarðhæð, eykst samanlagt gólfflatarmál á lóð um 520 m2 og verður því eftir breytingu alls 1540 m2. Gert er ráð fyrir útitröppum við báða gafla hússins auk lyftu við austurgaflinn. Fyrikomulag bílastæða á lóð breytist. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 ásamt grreinargerð dags. 13. júní 2016. Á fundi skipulagsnefndar 27. júní 2016 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Furugrund 1, 56, 58, 60, 62, 64, 66, 71, 72, 73, 75, 76, 77, 79, 81 og Víðigrund 2. Kynningartíma lauk 1. september 2016. Athugasemdir og ábendingar bárust. Ljóst sé af þeim fjölda athugasemda og ábendinga sem fram komu við kynnt byggingarleyfi fyrir Furugrund 3 að mikil andstaða er meðal hagsmunaaðila um téða breytingu húsnæðisnæðisins. Skipulagsnefnd hafnaði því erindinu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

21.15062191 - Sunnubraut 21-45 (oddatölur). Lóðaleigusamningar.

Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, lögð fram að nýju tillaga sviðsstjóra umhverfissviðs að breyttum lóðarmörkum Sunnubrautar 21, 23, 25, 27, 29, 31, 33, 35, 37, 39, 41, 43 og 45 vegna endurnýjunar á lóðaleigusamningum. Á fundi skipulagsnefndar 22.6.2015 var málinu frestað og vísað til umsagnar bæjarlögmanns. Lagt fram minnisblað lögfræðideildar dags. 20. júlí 2015; erindi Óskars Sigurðssonar hrl. fh. lóðarhafa Sunnubrautar 31, 35, 39, 43 og 45 dags. 21. desember 2015; erindi sviðsstjóra umhverfissviðs til Óskars Sigurðssonar hrl. dags. 5. janúar 2016; erindi sviðsstjóra umhverfissviðs til skipulagsnefndar dags. 7. janúar og 13. janúar 2016 og tölvupóstsamskipti Óskars Sigurðssonar hrl og sviðsstjóra umhverfissvið 8. og 9. febrúar 2016. Til umfjöllunar hefur verið í skipulagsnefnd tillaga að stækkun lóðanna Sunnubraut 21 til 45 (oddatölur), sbr. fundi skipulagsnefndar 18/1, 15/2, 11/4 og 27/6 2016. Fyrir liggur að endurnýja þarf lóðarleigusamninga fyrir umræddar lóðir. Núverandi afmörkun lóðanna er umfram upphaflega ætluð lóðarmörk og sýnd eru á þinglýstum lóðarleigusamningum og er ekki í samræmi við úthlutun lóðanna á sínum tíma. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að lóðamörkum ofangreindra lóða verði ekki breytt sbr. þinglýsta samninga en að viðkomandi lóðarhafa verði heimiluð, á hans ábyrgð, afnot þess lands sem hann hefur afmarkað sér, á meðan Kópavogsbær þarf ekki á því landi að halda (sem er umfram þinglýsta samninga) svo sem vegna framkvæmda við veitumannvirki og stígagerð. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

22.1608101 - Þverbrekka 6. Breytt afmörkun lóðar.

Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttum lóðamörkum Þverbrekku 6. Austurmörk lóðarinnar breytist og mun hún stækka úr 1.484,4 m2 skv. Fasteignaskrá í um 1.700 m2. Uppdráttur í mkv. 1:500 dags. í júlí 2016. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

23.1609016 - Skólanefnd, dags. 19. september 2016.

107. fundur skólanefndar í 7. liðum.
Lagt fram.

24.1604020 - Menntasvið-stefna um sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla. Stuðningur við nemendur m.sérþarfir.

Frá skólanefnd, dags. 20. september, lögð fram til samþykktar stefna um skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Kópavogs og stuðning við nemendur með sérþarfir sem skólanefnd samþykkti á fundi þann 19. september sl. Leikskólanefnd samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti á fundi þann 15. september sl.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

25.1410588 - Menntasvið-stefna um málþroska og læsi

Frá skólanefnd, dags. 20. september, lögð fram til samþykktar stefna um málþroska og læsi í leik- og grunnskólum Kópavogs sem skólanefnd samþykkti á fundi þann 19. september sl. Leikskólanefnd samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti á fundi þann 15. september sl.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

26.16011138 - Fundargerðir skólanefndar MK 2016

19. fundur skólanefndar MK í 3. liðum.
Lagt fram.

27.16011133 - Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs hbsv. 2016

155. fundur stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í 6. liðum.
Lagt fram.

28.16011133 - Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs hbsv. 2016

156. fundur stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í 6. liðum.
Lagt fram.

29.16011136 - Fundargerðir stjórnar Strætó bs. 2016

251. fundur stjórnar Strætó í 6. liðum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 10:00.