Bæjarráð

3018. fundur 08. október 2020 kl. 08:15 - 09:34 Fjarfundur - Microsoft Teams
Fundinn sátu:
  • Birkir Jón Jónsson formaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2003639 - Viðbrögð við Covid-19 faraldrinum

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2005977 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020

Frá fjármálastjóra, lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2020 til að mæta hækkun á áætluðum sérstökum húsnæðisstuðningi.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2009777 - Útboð - yfirborðsmerkingar 2021-2023

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 5. október, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði yfirboðsmerkingar á götum og stígum.
Bæjarráð frestar erindinu.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2010094 - Veitingarekstur í Gerðarsafni Listasafni Kópavogs

Frá forstöðumanni Gerðarsafns, dags. 29. september, lagt fram erindi um veitingarekstur í Gerðarsafni þar sem lagt er til að leitað verði samninga við Reykjavík Roasters um rekstur kaffistofu.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

Gestir

  • Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála - mæting: 09:06
  • Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns - mæting: 09:06

Fundargerðir nefnda

5.2009019F - Embættisafgreiðslur skipulagsstjóra - 5. fundur frá 28.09.2020

Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
  • 5.1 20061268 Víghólastígur 13. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Jóns Eiríks Guðmundsonar byggingafræðings dags. 23. júní 2020 fh. lóðarhafa Víghólastígs 13. Í erindinu er óskað eftir að lagfæra og breyta þakformi hússins. Breytingin felur í sér að þeir kvistir sem nú eru á húsinu verða fjarlægðir, þakið endurbyggt og nýjir einhalla kvistir byggðir í þeirra stað. Auk þess verður byggt skyggni yfir inngang á suðurhlið. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 23. júní 2020. Á fundi skipulagsráðs 7. júlí 2020 var samþykkt að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Víghólastígs 11 a-b, 12, 14, Bjarnhólastígs 12, 12a og 14. Kynningartíma lauk 10. september 2020. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Niðurstaða Embættisafgreiðslur skipulagsstjóra - 5 Embætti skipulagsstjóra samþykkir framlagt erindi.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 5.2 2007822 Reynihvammur 16. Kynning á byggingarleyfi.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Ragnars Más Ragnarssonar byggingafræðings dags. 23. júní 2020 fh. lóðarhafa Reynihvamms 16. Í tillögunni felst að reisa viðbyggingu við húsið sem staðsett verður á núverandi svölum á suðurhlið hússins og stækka með því stofuna um 18,2 m2. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. í júní 2020. Á fundi skipulagsráðs 17. ágúst 2020 var samþykkt
    með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Reynihvamms 14, 18, Birkihvamms 13, 15 og 17. Kynningartíma lauk 28. september 2020. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á byggingartímanum.
    Niðurstaða Embættisafgreiðslur skipulagsstjóra - 5 Embætti skipulagsstjóra samþykkir framlagt erindi.Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

6.2009439 - Fundargerðir Barnaverndarnefndar

Fundur nr. 110.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

7.2009812 - Fundargerð 259. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 28.09.2020

Lagt fram.

Fundargerð

8.2009020F - Lista- og menningarráð - 117. fundur frá 01.10.2020

Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.

Fundargerð

9.2010001F - Menntaráð - 67. fundur frá 06.10.2020

Fundargerð í 5 liðum.
Lögð fram.

Fundargerðir nefnda

10.2008036F - Skipulagsráð - 83. fundur frá 05.10.2020

Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
  • 10.11 2006762 Þorrasalir 37. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Vilhjálms Hjálmarssonar arkitekts dags. 29. maí 2020 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi á lóðinni Þorrasalir 37. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar um 145 m2 til vesturs í átt að sveitafélagamörkum Kópavogs og Garðabæjar og 105 m2 viðbygging á einni hæð við núverandi einbýlishús á lóðinni. Þá er gert ráð fyrir þakverönd ofaná fyrirhugaðri viðbyggingu. Við breytinguna eykst byggingarmagn á lóðinni úr 287 m2 í 392 m2 og nýtingarhlutfall úr 0,48 í 0,53 mv. stækkun lóðarinnar. Á fundi skipulagsráðs 15. júní 2020 var samþykkt að auglýsa framlagða tillögu í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 23. júní 2020 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest. Kynningartíma lauk 7. september 2020. Athugasemdir bárust á kynningartímanum. Á fundi skipulagsráðs 7. september 2020 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar, dags. 5. október 2020. Niðurstaða Skipulagsráð - 83 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 10.12 1902260 Langabrekka 5. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Verkfræðistofu Ívars Haukssonar f.h. lóðarhafa dags. 27. september 2016 þar sem óskað er eftir að byggja 21,7 m2 bílgeymslu sem verður áföst vesturhlið hússins að Löngubrekku 5 sbr. framlagða uppdrætti í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 27.9.2016. Þá lögð fram undirrituð yfirlýsing lóðarhafa um að hann standi straum af öllum kostnaði við að færa fráveitulögn sem er staðsett þar sem bílgeymslan á að rísa. Einnig samþykkir hann að starfsmenn umhverfissviðs hafi eftirlit með framkvæmdinni. Á fundi skipulagsráðs 15. júní 2020 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt lóðarhöfum Löngubrekku 1-13, Laufbrekku 1 og 3, Álfhólsvegar 59 og 61. Kynningartíma lauk 27. júlí 2020. Ábendingar og athugasemdir bárust á kynningartímanum. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 7. ágúst 2020 var málinu frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 5. október 2020.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 83 Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

11.2010012 - Fundargerð 888. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29.09.2020

Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.2009438 - Fundargerðir Velferðarráðs

Fundur nr. 70.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 09:34.