Bæjarráð

3120. fundur 02. mars 2023 kl. 08:15 - 12:31 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.23011551 - Markaðsstofa Kópavogs ses.

Frá bæjarstjóra, dags. 28.02.2023, lagt fram minnisblað varðandi stöðu Markaðsstofu Kópavogs og tillögur. Einnig lagt fram erindi framkvæmdastjóra Markaðsstofu Kópavogs dags. 27.02.2023.
Lagt fram.

Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að taka saman minnisblað um stöðu Kópavogsbæjar gagnvart Markaðsstofu Kópavogs.

Bókun:
"Bæjarráð hefur óskað eftir minnisblaði sviðsstjóra stjórnsýslusviðs um stöðu Kópavogsbæjar gagnvart áherslubreytingum á starfsemi sjálfseignastofnunarinnar. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að slíta Markaðsstofunni en áherslubreytingar eru nauðsynlegar í ljósi aðildar Kópavogsbæjar að Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins."

Bókun:
"Undirrituð hvetur stjórn Markaðsstofu Kópavogs til þess að stofna samtök atvinnufyrirtækja í Kópavogi (SAK) með það markmiði að halda samtali við Kópavogsbæ áfram."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.22021256 - Smárahvammsvegur endurgerð götu og umferðaljósa

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 17.02.2023, lagður fram til samþykktar bæjarráðs verksamnningur milli Kópavogsbæjar og Reykjafells ehf. um útvegun á umferðarljósabúnaði á Smárahvammsveg og Fífuhvammsveg.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2301214 - Útboð - Kópavogsvöllur Endurnýjun gervigras 2023

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 23.02.2023, lagt fram erindi varðandi val á verktaka í útboðsverkið "Kópavogsvöllur - endurnýjun gervigras 2023"
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við Metatron ehf í samræmi við niðurstöðu útboðs.

Gestir

  • Alda Kristín Sigurðardóttir deildarstjóri innkaupadeildar - mæting: 10:33
  • Stéfán L. Stefánsson deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 10:33
  • Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 10:33

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2302570 - Útboð - Malbiksframkvæmdir 2023-2026

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 13.02.2023, lögð fram beiðni um heimild til útboðs - Malbiksframkvæmdir 2023-2026.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum heimild til útboðs malbiksframkvæmda 2023-2026.

Bergljót Kristinsdóttir vék af fundi kl. 11:04.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.23021552 - Arnarnesvegur framkvæmdir

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 28.02.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að undirrita samstarfssamning við Vegagerðina f.h. Betri samgangna ohf. og Reykjavíkurborg um framkvæmdir við Arnarnesveg.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs - mæting: 10:46
  • Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 10:46

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.23021534 - Menntasvið-ráðning leikskólastjóra Austurkórs

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 27.02.2023, lögð fram tillaga að ráðningu leikskólastjóra Austurkórs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að ráða Elínu Rós Hansdóttur í starf leikskólastjóra leikskólans Austurkórs.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

7.23021512 - Menntasvið-ráðning leikskólastjóra Efstahjalla

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 27.02.2023, lögð fram tillaga að ráðningu leikskólastjóra Efstahjalla.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að ráða Lenu Sólborgu Valgarðsdóttur í starf leikskólastjóra leikskólans Efstahjalla.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

8.23021502 - Markavegur 8, lóð skilað.

Frá bæjarlögmanni, dags. 27.02.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs að samþykkt verði að lóðarréttindum að Markarvegi 8 sé skilað.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

9.23021559 - Þjónustukönnun sveitarfélaga 2022 - Gallup

Frá Gallup, lagðar fram niðurstöður Kópavogsbæjar úr könnun um þjónustu sveitarfélaga.
Kynning

Gestir

  • Matthías Þorvaldsson viðskiptastjóri Gallup - mæting: 09:50

Ýmis erindi

10.2107265 - Tónahvarf 4. Umsókn og beiðni um viðræður um lóð

Frá Teiti Jónassyni ehf. dags. 10.02.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir því að gengið verði til samninga vegna lóðarinnar Tónhvarfs 4.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, hvað varðar feril málsins innan stjórnkerfis bæjarins.

Ýmis erindi

11.23021012 - Ósk um niðurfellingu á greiðslu vatnsgjalda vegna vökvunar Leirdalsvallar

Frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, dags. 16.02.2023, lögð fram beiðni um niðurfellingu á greiðslu vatnsgjalda vegna vökvunar Leirdalsvallar.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Ýmis erindi

12.2302575 - Starfsleyfi fyrir opin leiksvæði í Kópavogi

Frá HEF, dags. 13.02.2023, lagt fram erindi varðandi starfsleyfi fyrir opin leiksvæði í Kópavogi.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs.

Fundargerðir nefnda

13.2302011F - Leikskólanefnd - 149. fundur frá 16.02.2023

Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.2302013F - Jafnréttis- og mannréttindaráð - 96. fundur frá 16.02.2023

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15.2302009F - Skipulagsráð - 137. fundur frá 20.02.2023

Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
  • 15.3 2208338 Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Tillaga að breyttu aðalskipulagi.
    Lögð fram tillaga skipulagsdeildar að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf /Vatnsendahæð. Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af fyrirhuguðum Arnarnesvegi til norðvesturs, íbúðarbyggð í Kórum til suðvesturs, fyrirhuguðu samfélagsþjónustusvæði (s-67) til suðurs, íbúðarbyggð í Hvörfum til austurs og athafnasvæði í Hvörfum til norðurs. Breytingin er gerð í tengslum við vinnu deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ábendingar og umsagnir sem hafa borist. Í breytingunni felst að afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðarsvæði (ÍB-6), opin svæði og samfélagsþjónustu breytt, fellt er út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins og sú þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla, auk þess sem staðsetning minjasvæðis er leiðrétt. Skilgreiningin „tengibraut“ á Kambavegi að og frá hverfinu (ÍB-6) er felld niður. Tillögunni fylgir m.a. umhverfisskýrsla sem unnin er sameiginlega fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.
    Tillagan er sett fram í greinargerð ásamt umhverfisskýrslu dags. í febrúar 2023.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 137 Skipulagsráð leggur til að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 verði auglýst, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsráð samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar með vísan til 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga og að tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. sömu laga.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 15.4 2011714 Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Tillaga að deiliskipulagi.
    Lögð fram tillaga Arkþing/Nordic arkitekta f.h. umhverfissviðs að deiliskipulagi nýs íbúðahverfis í Vatnsendahvarfi. Megintilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Deiliskipulagssvæðið er um 29 hektarar og liggur að mörkum Reykjavíkur, Kórahverfis og Hvörfum í Vatnsenda. Gert er ráð fyrir nýju íbúðahverfi með fjölbreyttu formi íbúða, leikskóla/skóla og útivistarsvæðum ásamt möguleika á verslun- og þjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir 500 íbúðum alls, þar af um 150 íbúðum í sérbýli, (einbýli, raðhús/parhús). Hámarkshæð bygginga er 3 hæðir auk kjallara. Jóhanna Helgadóttir skipulagsfræðingur kynnir tillöguna. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv.1:2000 dags. 20. febrúar 2023 ásamt skýringaruppdrætti og greinargerð dags. 20. febrúar 2023.

    Niðurstaða Skipulagsráð - 137 Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að deiliskipulagi fyrir Vatnsendahvarf dags. 20. febrúar 2023 verði auglýst.
    Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Fundarhlé kl. 17:08
    Fundi fram haldið kl. 17:19.

    Bókun frá Hákoni Gunnarssyni, Helgu jónsdóttur, Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur „Brýn þörf er á framboði íbúða á viðráðanlegu verði í Kópavogi. Rammasamningur ríkis og sveitarfélaga frá 12 júlí 2022 er góð viðleitni til að móta langtímasýn í þessu mikilvæga úrlausnarefni. Mikilvægt er að Kópavogsbær taki mið af þeim sjónarmiðum sem þar koma fram við úthlutun byggingarlands.“

    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 15.7 22114856 Digranesvegur 72A. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 11. nóvember 2022, þar sem umsókn Huldu Jónsdóttur arktekts um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að kjallari verði stækkaður um 43 m². Núverandi byggingarmagn á lóðinni er 179,4 m² og verður 222,4 m² eftir breytingu. Nýtingarhlutfall eykst úr 0,29 í 0,36. Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2022 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 13. janúar 2023, athugasemdir bárust. Á fundi skipulagsráðs 16. janúar 2023 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 15. febrúar 2023 ásamt uppfærðum uppdráttum í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 9. febrúar 2023. Niðurstaða Skipulagsráð - 137 Skipulagsráð samþykkir erindið með vísan til umsagnar skipulagsdeildar dags. 15. febrúar 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

16.2302012F - Ungmennaráð - 35. fundur frá 20.02.2023

Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17.2302015F - Menntaráð - 109. fundur frá 21.03.2023

Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18.2302014F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 161. fundur frá 21.02.2023

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19.2302007F - Lista- og menningarráð - 148. fundur frá 27.02.2023

Fundagerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

20.2302016F - Velferðarráð - 115. fundur frá 27.02.2023

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.

Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð tekur undir svofellda bókun velferðarráðs í máli nr. 1 í fundargerð ráðsins:

Í desember 2022 var á Alþingi samþykkt frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Breytingarnar fólust annars vegar í því að innleiðingartímabil notendastýrðar persónulegrar aðstoðar (NPA) var framlengt til ársloka 2024 og hins vegar í fjölgun samninga á árunum 2023 og 2024.

Velferðarráð Kópavogs ítrekar nauðsyn þess að félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standi við gefnar skuldbindingar um þátttöku í nýjum samningum um notendastýrða persónulega aðstoð. Ráðið hvetur félags- og vinnumarkaðsráðuneytið til að flýta gerð verklagsreglna til að eyða óvissu."

Fundargerðir nefnda

21.2302689 - Fundargerð 410. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 15.02.2023

Fundargerð 410. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 15.02.2023.
Lagt fram.
Fylgiskjöl:

Fundargerðir nefnda

22.23021143 - Fundargerð 114. fundar stjórnar svæðisskipulagsnefndar frá 17.02.2023

Fundargerð 114. fundar stjórnar svæðisskipulagsnefndar frá 17.02.2023.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

23.23021311 - Fundargerð 247. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 10.02.2023

Fundargerð 247. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 10.02.2023.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

24.23021423 - Fundargerð 550. fundar stjórnar SSH frá 03.02.2023

Fundargerð 550. fundar stjórnar SSH frá 03.02.2023.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

25.23021424 - Fundargerð 552. fundar stjórnar SSH frá 20.02.2023

Fundargerð 552. fundar stjórnar SSH frá 20.02.2023.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

26.2302695 - Fundargerð 102. fundar stjórnar Markaðsstofa Kópavogs ses. frá 08.02.2023

Fundargerð 102. fundar stjórnar Markaðsstofa Kópavogs ses. frá 08.02.2023.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

27.23021551 - Fundargerð 103. fundar Markaðsstofu Kópavogs frá 22.02.2023

Fundargerð 103. fundar Markaðsstofu Kópavogs frá 22.02.2023
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

28.23021563 - Ósk bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað við akstur næturstrætó

Frá bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs, dags. 28.02.2023, lagt fram erindi þar sem óskað eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað við akstur næturstrætó í Kópavogi og umræðu um fýsileika þess að reka sameiginlegan næsturstrætó með Garðabæ og Hafnarfirði.


Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar. Vakin er athygli nefndarinnar á fundargerð 361. stjórnarfundar Strætó bs. að því er varðar kostnaðargreiningu við rekstur næturstrætó.

Fundi slitið - kl. 12:31.