Bæjarstjórn

1289. fundur 12. desember 2023 kl. 16:00 - 17:40 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ásdís Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson, aðalmaður boðaði forföll og Thelma Bergmann Árnadóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Önnur mál fundargerðir

1.2311021F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 381. fundur frá 24.11.2023

Fundargerð í þreumur liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

Önnur mál fundargerðir

2.2312005F - Forsætisnefnd - 219. fundur frá 07.12.2023

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

3.2311018F - Bæjarráð - 3153. fundur frá 30.11.2023

Fundargerðí 23 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

4.2311025F - Bæjarráð - 3154. fundur frá 07.12.2023

Fundargerð í 20 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

5.2311019F - Skipulagsráð - 154. fundur frá 04.12.2023

Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
  • 5.9 23081198 Kársnesbraut 102, 102A og 104. Deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Helga Steinars Helgasonar arkitekts dags. 12. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 102, 102A og 104 við Kársnesbraut þar sem óskað er eftir heimild skipulagsráðs til að hefja deiliskipulagsvinnu á lóðunum. Áform lóðarhafa eru að lóðirnar verði sameinaðar í tvær fjölbýlishúsalóðir og að nýtingarhlutfall hvorrar lóðar verði 2,0. Hæðir húsa að Kársnesbraut verði 3 hæðir og 5 hæðir við Vesturvör. Efsta hæð verði inndregin. Jafnframt er gert ráð fyrir niðurgröfnum bílageymslum á lóðunum. Fyrirhugaður fjöldi íbúða verði um 120-140 samtals á báðum lóðunum og að meðalstærð íbúða verði 80 m². Erindið var lagt fyrir skipulagsráð 6. nóvember 2023. afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
    Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. desember 2023.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 154 Skipulagsráð hafnar erindinu með vísan til umsagnar skipulagsdeildar dags. 1. desember 2023 með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Kristins D. Gissurarsonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Gunnar Sær Ragnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.
  • 5.10 23082655 Aflakór 20. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu umsókn Jens Arnars Árnasonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Aflakór um breytt deiliskipulag. Í gildi er deiliskipulagið Rjúpnahæð- austurhluti samþykkt í bæjarráði 7. september 2006. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit að hluta, breyting á stærð og afstöðu sorpskýlis og yfirbyggðu hjólaskýli komið fyrir. Nýtingarhlutfall er 0.42 en verður 0.44 með tillögu að breytingu. Byggingarmagn eykst um 19.94m², það fer úr 380m² í 399.94m². Á fundi skipulagsráðs 16. október 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 1. desember 2023, engar athugasemdir bárust.
    Uppdráttur í mkv. 1:100, 1:200, 1:500 og 1: 1000 dags. 12. október 2023. Einnig lagt fram minnisblað skipulagsdeildar dags. 13. október 2023.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 154 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 5.13 23041419 Kópavogsbraut 12. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
    Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 14. apríl 2023 þar sem byggingarleyfisumsókn Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 14. mars 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Kópavogsbraut er vísað til skipulagsráðs. Á lóðinni er 257,4 m² einbýlishús og stakstæð bílageymsla. Sótt er um leyfi fyrir byggingu annars einbýlishúss með bílageymslu á lóðinni, norðan núverandi húss, alls 255 m² á tveimur hæðum. Aðkoma að núverandi húsi á lóðinni er á austurhluta lóðarinnar frá Meðalbraut og gert er ráð fyrir að aðkoma að nýbyggingunni verði á norðurhluta lóðarinnar frá Meðalbraut. Bílastæðum fjölgar úr tveimur í fjögur. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,18 í 0,35. Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 2, 4, 6, 8, 10, 14, 16, 18, 20 og 22 við Kópavogsbraut og nr. 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18, 20, 22, 24 og 26 við Meðalbraut. Tillagan var grenndarkynnt og frestur til að gera athugasemd var til kl. 12:00 föstudaginn 11. ágúst 2023. Athugasemdir bárust. Á fundi skipulagsráðs 21. ágúst 2023 var erindið lagt fram að nýju ásamt innsendum athugasemdum. Skipulagsráð frestaði erindinu og vísaði til umsagnar skipulagsdeildar.
    Á fundi skipulagsráðs 20. nóvember sl. var lögð fram breytt tillaga lóðarhafa dags. 13. nóvember 2023 þar sem komið er til móts við sjónarmið athugasemdaaðila. Í breytingunni fólst að fyrirhuguð nýbygging á lóðinni er minnkuð um 30 m2 á vesturhluta lóðarinnar og fyrirhugað nýtt nýtingarhlutfall lækkað úr 0,35 í 0,33.
    Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. desember 2023. Jafnframt er lögð fram greinargerð lóðarhafa dags. 12. ágúst 2022.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 154 Skipulagsráð hafnar framlagðri tillögu með vísan til umsagnar skipulagsdeildar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Bókun skipulagsráðs:
    „Skipulagsráð tekur jákvætt í hugmyndir um þéttingu byggðar á svæðinu sem afmarkast af Skjólbraut í vestri, Kópavogsbraut í suðri og Meðalbraut í norðri. Eðlilegt væri að horfa til bæjarlands við Kópavogsbraut við slík áform. Að því leyti er tekið undir umsögn skipulagssviðs um að svo viðamiklar breytingar sem hér er sótt um kalli á að stærra svæði sé undir við deiliskipulagsgerð. Tækifæri eru til þéttingar á svæðinu til bæði norðurs og suðurs."
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.

Önnur mál fundargerðir

6.2310013F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 169. fundur frá 21.11.2023

Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.

Afgreiðslutillaga:
"Undirrituð leggur til að máli nr. 5 í fundargerð nefndarinnar verði vísað til afgreiðslu bæjarráðs."
Bergljót Kristinsdóttir

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslutillöguna með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

7.2312001F - Menntaráð - 123. fundur frá 05.12.2023

Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

8.2311017F - Velferðarráð - 127. fundur frá 27.11.2023

Fundagerð í sex liðum.
Lagt fram.
  • 8.4 23111597 Lengri opnun á kaffistofu Samhjálpar
    Lögð fram tillaga velferðarsviðs dags. 23.11.2023, um þátttöku í lengri opnun kaffistofu Samhjálpar, ásamt tilgreindu fylgiskjali. Niðurstaða Velferðarráð - 127 Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti þátttöku Kópavogsbæjar í lengri opnun á kaffistofu Samhjálpar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu velferðarráðs.
  • 8.5 23111596 Þjónustusamningur um rekstur áfangaheimilis
    Lögð fram til kynningar drög að endurnýjuðum þjónustusamningi við Samhjálp um rekstur áfangaheimilis. Niðurstaða Velferðarráð - 127 Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti endurnýjun samnings um rekstur áfangaheimilis við Samhjálp og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu velferðarráðs.

Önnur mál fundargerðir

9.2311012F - Jafnréttis- og mannréttindaráð - 103. fundur frá 22.11.2023

Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
  • 9.1 2210956 Jafnréttisáætlun Kópavogs 2023-2026
    Fara yfir niðurstöður íbúasamráðs. Niðurstaða Jafnréttis- og mannréttindaráð - 103 Lokadrög jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs samþykkt og vísað til bæjarráðs. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum jafnréttis- og mannréttindastefnu Kópavogs 2023-2026.

Önnur mál fundargerðir

10.2310021F - Lista- og menningarráð - 158. fundur frá 24.11.2023

Fundargerð í 72 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11.2311005F - Íþróttaráð - 137. fundur frá 23.11.2023

Fundargerð í 54 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.23111916 - Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 27.11.2023

Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 27.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.2312230 - Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 22.11.2023

Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 22.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14.23111999 - Fundargerð 938. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24.11.2023

Fundargerð 938. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15.23111598 - Fundargerð 121. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 17.11.2023

Fundargerð 121. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 17.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

16.2312078 - Fundargerð 377. fundar stjórnar Strætó frá 01.11.2023

Fundargerð 377. fundar stjórnar Strætó frá 01.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

17.2312079 - Fundargerð 378. fundar stjórnar Strætó frá 08.11.2023

Fundargerð 378. fundar stjórnar Strætó frá 08.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

18.2312080 - Fundargerð 379. fundar stjórnar Strætó 15.11.2023

Fundargerð 379. fundar stjórnar Strætó 15.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

19.2312081 - Fundargerð 380. fundar stjórnar Strætó frá 24.11.2023

Fundargerð 380. fundar stjórnar Strætó frá 24.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

20.23111953 - Fundargerð 45. fundar framkvæmdaráðs almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 03.11.2023

Fundargerð 45. fundar framkvæmdaráðs almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 03.11.2023
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

21.23111951 - Fundargerð 254. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 03.11.2023

Fundargerð 254. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 03.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

22.23111954 - Fundargerð 46. fundar framkvæmdaráðs almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 11.11.2023

Fundargerð 46. fundar framkvæmdaráðs almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 11.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

23.23111552 - Fundargerð 114. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 16.11.2023

Fundargerð 114. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 16.11.2023.
Lagt fram.

Kosningar

24.2206343 - Kosningar í lista- og menningarráð 2022-2026

Árni Pétur Árnason verður áheyrnarfulltrúi í stað Margrétar Ástu Arnardóttur.
Margrét Ásta Arnardóttir verður varaáheyrnarfulltrúi í stað Árna Péturs Arnarssonar.

Fundi slitið - kl. 17:40.