Bæjarstjórn

1291. fundur 09. janúar 2024 kl. 16:00 - 17:37 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ásdís Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Önnur mál fundargerðir

1.2312009F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 382. fundur frá 08.12.2023

Fundargerð í átta liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

Önnur mál fundargerðir

2.2312014F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 383. fundur frá 21.12.2023

Fundargerð í sex liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

Önnur mál fundargerðir

3.2312004F - Bæjarráð - 3155. fundur frá 14.12.2023

Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

4.2312010F - Bæjarráð - 3156. fundur frá 21.12.2023

Fundargerð í 30 liðum.
Lagt fram.
  • 4.17 23031177 Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023
    Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna beiðni Strætó bs. um aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna niðurstöðu Landssréttar í máli 344/2022, málsnúmer 2312853. Niðurstaða Bæjarráð - 3156 Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2023 vegna beiðni Strætó bs. um aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna dómsmáls.
  • 4.18 2312853 Aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna niðurstöðu Landsréttar
    Frá Strætó, dags. 13.12.2023, lögð fram tillaga um að fá aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta skv. niðurstöðu Landsréttar í máli 344/2022. Óskað er eftir að umrædd tillaga fái flýtimeðferð.
    Niðurstaða Bæjarráð - 3156 Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna niðurstöðu Landsréttar í máli nr. 344/2022.
  • 4.19 23121125 Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 2024 til samþykktar
    Frá Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs., dags. 18.12.2023, lögð fram gjaldskrá 2024 fyrir slökkviliðið. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs Kópavosbæjar á gjaldskránni. Niðurstaða Bæjarráð - 3156 Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. fyrir árið 2024.

Önnur mál fundargerðir

5.2312013F - Bæjarráð - 3157. fundur frá 04.01.2024

Fundargerð í 15 liðum.
  • 5.2 2002676 Stefna fjármálasviðs
    Lögð fram drög að stefnu fjármálasviðs til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði málinu 30.11.2023 og 07.12.2023. Niðurstaða Bæjarráð - 3157 Bæjarráð vísar drögum að stefnu fjármálasviðs til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir stefnu fjármálasviðs með 7 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
  • 5.3 23111907 Mannauðsstefna Kópavogsbæjar
    Lögð fram drög að mannauðsstefnu til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði málinu 30.11.2023 og 07.12.2023. Niðurstaða Bæjarráð - 3157 Bæjarráð vísar drögum að mannauðsstefnu Kópavogsbæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir mannauðsstefnu Kópavogsbæjar með 7 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
  • 5.9 2310520 Fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins og gjaldskrá fyrir árið 2024
    Frá Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, lögð fram til samþykktar fjárhagsáætlun 2024 og gjaldskrár fyrir árið 2024. Niðurstaða Bæjarráð - 3157 Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2024 með 10 atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
  • 5.10 23121195 Tillögur starfshóps um húsnæðismál Slökkviliðs höfuborgarsvæðisins bs.
    Frá SHS, dags. 18.12.2023, lagðar fram tillögur starfshóps um húsnæðismál Slökkviliðs höfuborgarsvæðisins bs. Tillögurnar hafa verið samþykktar af stjórn SGS og er vísað til umfjöllunar í aðildarsveitarfélgunum. Ekki er gert ráð fyrir að tillögurnar hafi áhrif á fjárhagsáætlanir sveitarfélagana til næstu ára. Fjármálastjórum sveitarfélaganna verði falið að stilla upp tillögu að fjármögnun. Niðurstaða Bæjarráð - 3157 Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn vísar erindinu til bæjarráðs til frekari efnismeðferðar.

Önnur mál fundargerðir

6.2401002F - Forsætisnefnd - 220. fundur frá 04.01.2024

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.2312006F - Leikskólanefnd - 159. fundur frá 12.12.2023

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

8.2312003F - Skipulagsráð - 155. fundur frá 18.12.2023

Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
  • 8.5 23071265 Auðbrekka 10. Kynning á byggingarleyfisumsókn
    Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 21. júlí 2023 þar sem byggingarleyfisumsókn Jakobs Líndal arkitekts dags. 27. júní 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Auðbrekku er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að 2. og 3. hæð núverandi atvinnuhúsnæðis á lóðinni verði innréttaðar sem gistiheimili. Aðkoma að gistiheimilinu verður frá Hamrabrekku. Núverandi innaksturshurð verður skipt út fyrir glugga og inngangshurð og lokað verður fyrir núverandi glugga og hurð til hliðar við innganginn. Samtals eru 26 gistiherbergi á tveimur hæðum með að hámarki 40 rúmum. Sameiginleg baðherbergi með salernum og sturtum eru á hvorri hæð. Á fundi skipulagsráðs 6. nóvember 2023 var erindið lagt fram ásamt uppdráttum í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 27. júní 2023, uppf. 3. nóvember 2023 og umsögn skipulagsdeildar dags. 3. nóvember 2023. Afgreiðslu var frestað.
    Þá er lögð fram uppfærð umsögn skipulagsdeildar dags. 14. desember 2023.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 155 Skipulagsráð hafnar framlagðri umsókn með tilvísun í umsögn skipulagsdeildar dags. 14. desember 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.
  • 8.6 2205056 Vatnsendablettur 4. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Vatnsendablett dags. 22. apríl 2022 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst breyting á lóðarmörkum, breytingu og stækkun á byggingarreit og tilfærslu á innkeyrslu. Byggingarreitur á lóð nr. 4A yrði færður um 4 m til norðurs, lengdur um 6 m til norðurs og 4 m til vesturs. Stækkaður úr 20x15 m í 24x21 m. Einnig er lagt til að færa innkeyrslu á lóðinni til austurs nær Elliðahvammsvegi og breyta lögun lóðar svo að sameiginleg innkeyrsla sé utan minni lóðar. Lóðarmörkum 4A er breytt á uppdrætti en stærð lóðarinnar 1500 m² helst óbreytt. Hámarksbyggingarmagn 275m² og hámarkshæð 7.5 metrar haldast óbreyttir. Aðrir skilmálar eru óbreyttir.
    Uppdrættir í mkv. 1:2000 og 1:500 dags. 30. nóvember 2023.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 155 Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn um breytingu á deiliskipulagi með tilvísun í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 8.7 2311491 Holtagerði 26. Umsókn um fjölgun bílastæða á lóð.
    Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 26 við Holtagerði dags. 6. nóvember 2023 um að fjölga innkeyrslum og bílastæðum á lóðinni. Samkvæmt útgefnu mæliblaði dags. 6. apríl 2016 er gert ráð fyrir innkeyrslu og tveimur bílastæðum á suðausturhluta lóðarinnar. Niðurstaða Skipulagsráð - 155 Skipulagsráð hafnar framlagðri umsókn. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs og hafnar erindinu með 10 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur.
  • 8.9 23011661 Álfhólsvegur 17A. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
    Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. janúar 2023 þar sem umsókn Höllu H. Hamar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 17A við Álfhólsveg um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Í breytingu felst að byggt verði 16,8 m² smáhýsi á lóðinni, hugsað sem vinnurými. Byggingarmagn eykst úr 199,8 m² í 216,6 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,23 í 0,25.
    Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 28. desember 2022.
    Á fundi skipulagsráðs þann 6. febrúar 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 2. maí 2023. Á fundi skipulagsráðs þann 15. maí 2023 var erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum. Afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Á fundi skipulagsráðs þann 16. október 2023 var erindið lagt fram ásamt umsögn skipulagsdeildar dags. 17. maí 2023, uppfærð 14. júní og 11. október 2023, afgreiðslu var frestað.
    Lagt fram að nýju.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 155 Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
  • 8.14 2312250 Vatnsendahvarf. Götuheiti.
    Lögð fram tillaga umhverfissviðs dags. 14. desember 2023 að götuheitum fyrir tólf nýjar húsagötur í nýju íbúðahverfi í Vatnsendahvarfi. Eftirfarandi götuheiti eru lögð til: Hallahvarf, Háahvarf, Heiðarhvarf, Hlíðarhvarf, Hæðarhvarf, Roðahvarf, Skólahvarf, Skírnishvarf, Skyggnishvarf, Skýjahvarf, Sólarhvarf og Stöðvarhvarf. Aðkoma að hverfinu er eftir núverandi Kambavegi og þar sem um er að ræða áframhald af veginum í gegnum hverfið er gert ráð fyrir að nafn hans haldist óbreytt. Niðurstaða Skipulagsráð - 155 Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að götuheitum í Vatnsendahvarfi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

9.2312002F - Velferðarráð - 128. fundur frá 11.12.2023

Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.2311009F - Öldungaráð - 23. fundur frá 16.11.2023

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11.2312854 - Fundargerð 122. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 08.12.2023

Fundargerð 122. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 08.12.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.2312572 - Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 30.11.2023

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 30.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.2312569 - Fundargerð 569. fundar stjórnar SSH frá 04.12.2023

Fundargerð 569. fundar stjórnar SSH frá 04.12.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14.23121456 - Fundargerð 570. fundar stjórnar SSH frá 18.12.2023

Fundargerð 570. fundar stjórnar SSH frá 18.12.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15.2312347 - Fundargerð 939. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 05.12.2023

Fundargerð 939. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 05.12.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

16.23121551 - Fundargerð 940. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15.12.2023

Fundargerð 940. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15.12.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

17.2312985 - Fundargerð 418. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.11.2023

Fundargerð 418. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

18.2312979 - Fundargerð 419. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 13.12.2023

Fundargerð 419. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 13.12.2023.
Lagt fram.
Fylgiskjöl:

Önnur mál fundargerðir

19.2312544 - Fundargerð 486. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 26.09.2023

Fundargerð 486. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 26.09.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

20.2312546 - Fundargerð 487. fundar stjórnar Sorpu bs. 03.10.2023

Fundargerð 487. fundar stjórnar Sorpu bs. 03.10.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

21.23121126 - Fundargerð 488. fundar stjórnar Sorpu bs. 07.11.2023

Fundargerð 488. fundar stjórnar Sorpu bs. 07.11.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

22.23121127 - Fundargerð 489. fundar stjórnar Sorpu bs. 05.12.2023

Fundargerð 489. fundar stjórnar Sorpu bs. 05.12.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

23.23121287 - Fundargerð 490. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 20.12.2023

Fundargerð 490. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 20.12.2023.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

24.23121175 - Fundargerð 381. fundar stjórnar Strætó frá 11.12.2023

Fundargerð 381. fundar stjórnar Strætó frá 11.12.2023.
Lagt fram.

Kosningar

25.2206318 - Kosningar í umhverfis- og samgöngunefnd 2022-2026

Svava Halldóra Friðgeirsdóttir kemur inn sem aðalmaður í stað Gunnars Sæs Ragnarssonar.

Fundi slitið - kl. 17:37.