Skipulagsráð

151. fundur 16. október 2023 kl. 15:30 - 17:46 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hjördís Ýr Johnson formaður
  • Kristinn D Gissurarson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson, aðalmaður boðaði forföll og Sveinn Gíslason varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Hákon Gunnarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Kolbeinn Reginsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir lögfræðingur
  • Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi
  • Bergljót Sigríður Einarsdóttir verkefnastjóri
  • Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir arkitekt
  • Elín Mjöll Lárusdóttir arkitekt
  • Brynja Kemp Guðnadóttir arkitekt
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir ritari
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.2309017F - Bæjarstjórn - 1285. fundur frá 10.10.2023

23061532 -Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

2.2309016F - Bæjarráð - 3145. fundur frá 05.10.2023

23061532 - Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Almenn erindi

3.23092310 - Sundabraut. Aðalskipulagsbreyting og umhverfismat. Verklýsing til kynningar.

Lagt fram að nýju erindi Reykjavíkurborgar dags. 20. september 2023 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsráðs Kópavogsbæjar vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040. Með verklýsingunni eru boðaðar breytingar sem varða legu og útfærslu áformaðrar Sundabrautar. Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 2. október 2023 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 10. október 2023.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsráð samþykkir umsögn skipulagsdeildar dags. 10. október 2023.

Almenn erindi

4.23082655 - Aflakór 20. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Jens Arnars Árnasonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Aflakór um tillögu að breyttu deiliskipulagi. Í gildi er deiliskipulagið Rjúpnahæð- austurhluti samþykkt í bæjarráði 7. september 2006. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit að hluta, breyting á stærð og afstöðu sorpskýlis og yfirbyggðu hjólaskýli komið fyrir. Nýtingarhlutfall er 0.42 en verður 0.44 með tillögu að breytingu. Byggingarmagn eykst um 19.94m², það fer úr 380m² í 399.94m².

Kynningaruppdráttur í mkv. 1:100, 1:200, 1:500 og 1: 1000 dags. 12. október 2023 ásamt minnisblaði skipulagsdeildar dags. 13. október 2023.
Skiplagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 16, 17, 18, 19, 21 og 23 við Aflakór.

Almenn erindi

5.23091454 - Dalsmári 13. Stækkun Tennishallar. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram uppfærð umsókn Former arkitekta dags. 11. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 13 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar um 10m frá núverandi lóðamörkum í austur, alls um 660 m² ásamt tillögu að viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni alls um 1.800 m² að flatarmáli. Í uppfærðri umsókn er sótt um heimild fyrir veitingastað í flokki 2 í núverandi húsnæði á lóðinni.

Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 12. október 2023.

Hákon Gunnarsson ber upp tillögu um að afgreiðslu málsins verði frestað.

Skipulagsráð hafnar tillögu að frestun með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins D. Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Theódóru S. Þorsteinsdóttur gegn atkvæði Hákonar Gunnarssonar.
Sveinn Gíslason og Kolbeinn Reginsson sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Kolbeins Reginssonar gegn atkvæði Hákonar Gunnarssonar.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:
„Í erindi Tennishallarinnar um stækkun lóðar í Kópavogsdal og breytt deiliskipulag er verið að óska eftir stækkun innan landnotkunarsvæðis sem er samkvæmt Aðalskipulagi Kópavogsbæjar 2019-2040 skilgreint sem íþróttasvæði ÍÞ-4.
Á fundi bæjarráðs þann 28. september var skipaður starfshópur um skipulag Kópavogsdalsins og er íþróttasvæði ÍÞ-4 hluti af því svæði. Skipulag á íþróttasvæðinu ÍÞ-4 í Kópavogsdal hlýtur því að vera hluti af viðfangsefni þess sem starfshópurinn á að móta. Það getur ekki talist góð stjórnsýsla um skipulag Kópavogsdals að breyta um deiliskipulag á svæðinu á meðan starfshópurinn vinnur sitt verk og hefur ekki skilað af sér niðurstöðu.“
Hákon Gunnarsson

Bókun:
„Hinn 6. mars 2023 tóku allir nefndarmenn skipulagsráðs jákvætt í fyrirspurn Tennishallarinnar um viðbyggingu fyrir sex padelvelli á lóð Tennishallarinnar, þar sem nú eru bílastæði. Það er mikilvægt að málið skoðist í því ljósi enda komu hugmyndir um skipan starfshóps um skipulag Kópavogsdals í framhaldi af þeirri afgreiðslu skipulagsráðs, bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Nýjum tillögum um afnot af bæjarlandi í Kópavogsdal hefur verið slegið á frest eða hafnað, sbr. hugmyndum um hjólabrettaskál við Smárahvammsvöll, á þeim forsendum að bíða með ráðstafanir lands á svæðinu þar til niðurstaða liggur fyrir hjá starfshópnum. Önnur sjónarmið gilda um stækkun Tennishallarinnar að mati undirritaðra þar sem sú vinna var löngu hafin áður en tillaga um stofnun starfshópsins lá fyrir.“
Andri Steinn Hilmarsson, Hjördís Ýr Johnson, Kristinn D. Gissurarson, Sveinn Gíslason og Theódóra S. Þorsteinsdóttir.

Almenn erindi

6.23092612 - Tónahvarf 12. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Gunnars Sigurðssonar arkitekts dags. 25. september 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Tónahvarf um breytt deiliskipulag. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar um 30 m til suðurs fyrir bílastæði og athafnasvæði, alls 2.100 m². Stærð lóðarinnar breytist úr 5.287 m² í 7.387 m². Byggingarmagn á lóðinni helst óbreytt. Nýtingarhlutfall lóðarinnar eykst úr 0,77 í 0,55.

Uppdrættir í mkv. 1:200 og 1:500 dags. 22. september 2023.
Skipulagsráð hafnar framlagðri umsókn um breytingu á deiliskipulagi.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

7.23092936 - Bollasmári 6. Breytt deiliskipulag. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Emils Þórs Guðmundssonar byggingarverkfræðings dags. 28. september 2023 að breytingu á deiliskipulagi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Bollasmára.

Í gildandi deiliskipulagi er ein íbúð á tveimur hæðum heimiluð á lóðinni og heildarbyggingarmagn 308,6 m². Í breytingunni felst að neðri hæð hússins yrði stækkuð til vesturs um 11 m² undir nýja útbyggingu efri hæðar, sem samþykkt var 2020. Heildarbyggingarmagn yrði því um 320m² eftir breytingu.

Þá lagðir fram uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 1. september 2023, fylgiskjölum fyrirspurnar og minnisblaði skipulagsdeildar dags. 12. október 2023.
Skipulagsráð lítur jákvætt á að framlögð fyrirspurn verði unnin áfram.

Almenn erindi

8.23092571 - Langabrekka 2. Breytt deiliskipulag. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Ívars Haukssonar byggingarverkfræðings dags. 13. október 2023 um breytingu á deiliskipulagi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Löngubrekku.

Í gildandi deiliskipulagi eru 5 íbúðir heimilaðar, á 2 hæðum ásamt kjallara á lóðinni með 10 bílastæðum. Á lóðinni er hámarksbyggingarmagn 512m² og nýtingarhlutfall 0,65 miðað við lóðarstærð 795m². Í breytingunni felst að 5 íbúðir verði 6, byggingarmagn eykst um 19m² í 532m². Íbúð í kjallara myndi breytast í tvær og stækka með að nýta óútgrafin rými. Gert er ráð fyrir að fjölga um eitt bílastæði. Stærð og lögun byggingarreits gildandi deiliskipulags mun haldast óbreytt. Meðfylgjandi eru gildandi deiliskipulag frá 2007 og 2014, uppdráttur með tillögu að breytingu dags. 25. september 2023 og minnisblað skipulagsdeildar dags. 12. október 2023.
Skiplagsráð lítur neikvætt á framlagða fyrirspurn.

Almenn erindi

9.23092906 - Birkigrund 9a. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Andra Klausen arkitekts dags. 21. september 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9a við Birkigrund vegna tillögu að skiptingu lóðar 9a í tvær lóðir, 9a og 9c og nýs byggingarreits á lóðinni nr. 9c við Birkigrund. Núverandi stærð lóðarinnar er 1.971,7 m² og með breytingunni yrði lóð nr. 9a samtals 985,85 m² og 9c samtals 985,85 m². Núverandi byggingarmagn á lóðinni nr. 9a er 188,7 m² með og myndi haldast áfram óbreytt. Nýtingarhlutfall lóðarinnar 9a færi úr 0,09 í 0,19. Tillaga að byggingarmagni fyrir lóð nr. 9c er 280 m² og með nýtingarhlutfallið 0,28.
Skipulagsráð lítur jákvætt á að framlögð fyrirspurn verði unnin áfram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í samræmi við Verkfærakistu fyrir þróun byggðar í Kópavogi dags. 20. desember 2022.

Almenn erindi

10.23092884 - Kópavogsbraut 1c. Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Odds Kr. Finnbjarnarsonar dags. 26. september 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1c við Kópavogsbraut um að breikka núverandi mannvirki um 1,8 til 2 metra til suðurs til að fjölga hjúkrunarherbergjum og fækka tvíbýlum. Fyrirhuguð stækkun nemur u.þ.b. 250 m² samtals.

Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:200 dags. 26. september 2023.
Skipulagsráð lítur jákvætt á að framlögð fyrirspurn verði unnin áfram.

Almenn erindi

11.23092172 - OR. Dreifistöðvar vegna orkuskipta í Kópavogi. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 20. september 2023 vegna orkuskipta í Kópavogi. Óskað er eftir að Kópavogsbær endurskoði ferla við leyfisveitingar fyrir dreifistöðum á bensínstöðvalóðum.

Vísað til umhverfissviðs til úrvinnslu.

Almenn erindi

12.23092999 - Lækjarhjalli 42. Umsókn um lóðarstækkun.

Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 42 við Lækjarhjalla dags. 28. september 2023 um stækkun lóðarinnar til vesturs og uppsetningu veggjar með girðingu á lóðarmörkum.
Skipulagsráð hafnar framlagði umsókn.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

13.2310810 - Geirland 1. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 30. september 2023 þar sem umsókn Kristjáns Bjarnasonar byggingarverkfræðings dags. 2. september 2023 um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Geirland er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um að staðsetja 27,7 m² smáhýsi á lóðinni.

Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 2. september 2023.
Skipulagsráð hafnar erindinu með 6 atkvæðum.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kolbeinn Reginsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Almenn erindi

14.23011661 - Álfhólsvegur 17A. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. janúar 2023 þar sem umsókn Höllu H. Hamar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 17A við Álfhólsveg um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Í breytingu felst að byggt verði 16,8 m² smáhýsi á lóðinni, hugsað sem vinnurými. Byggingarmagn eykst úr 199,8 m² í 216,6 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,23 í 0,25.

Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 28. desember 2022.

Á fundi skiplagsráðs þann 6. febrúar 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 2. maí 2023. Á fundi skipulagsráðs þann 15. maí 2023 var erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum. Afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 17. maí 2023, uppfærð 14. júní 2023 og 11. október 2023.
Afgreiðslu frestað.

Almenn erindi

15.23041422 - Þinghólsbraut 56. Kynning á byggingarleyfisumsókn

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 14. apríl 2023 þar sem byggingarleyfisumsókn Guðmunds Jónssonar byggingarfræðings dags. 15. nóvember 2022 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 56 við Þinghólsbraut er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi fyrir byggingu bílageymslu á vesturhluta lóðarinnar alls 63,5 m2 að flatarmáli.

Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 15. nóvember 2022 og breytt 15. júlí 2023, uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 15. nóvember 2022 og breytt 5. júní 2023, uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 15. nóvember 2022 og skráningartafla og afstöðumynd í mkv. 1:500 dags. 15. nóvember 2022.

Á fundi skipulagsráðs þann 21. ágúst 2023 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfið. Kynningartíma lauk 27. september, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

16.23052182 - Silfursmári 12. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Silfursmára dags. 10. júlí 2023 um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni sem er óbyggð er heimilt að reisa skv. gildandi deiliskipulagi 1.927 m² atvinnuhúsnæði á fjórum hæðum ásamt kjallara og niðurgrafinni bílageymslu. Í breytingunni felst aukning byggingarmagns um 437 m² í 2.400 m², fjöldi bílastæða verði óbreyttur eða 55 í heildina. Stærð byggingarreits helst óbreytt.

Á fundi skipulagsráðs þann 17. júlí 2023 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 13. október 2023, engar athugasemdir bárust. Meðfylgjandi er kynningaruppdráttur dags. 14. ágúst 2023.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

17.22114320 - Huldubraut 28. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Páls Hjaltasonar arkitekts dags. 9. nóvember 2022 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 28 við Huldubraut um breytt deiliskipulag. Í breytingunni felst að heimilt verði að nýta ósamþykktan kjallara undir húsinu alls 155,5 m² að stærð. Gert er ráð fyrir að setja nýjar tröppur á norðurhlið hússins til að tryggja aðra flóttaleið úr kjallaranum. Jafnframt er óskað eftir stækkun á svölum á norðurhlið og að útistigi verði frá svölum niður í garð. Byggingarmagn á lóðinni er 304,9 m², verður 463,6 m². Nýtingarhlutfall er 0,44 m², verður 0,67 m². Meðfylgjandi er skýringaruppdráttur í mkv. 1:500, 1:200 og 1:100 dags. 24. nóv. 2022. Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var afgreiðslu frestað. Þá lagt fram minnisblað skipulagsdeildar 28. nóvember 2022.

Á fundi skipulagsráð 5. desember 2022 var erindið samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi yrði auglýst. Kynningaruppdráttur dags. 25. nóvember 2022. Kynningartíma lauk 19. september 2023, umsagnir og athugasemdir bárust. Á 150. fundi skipulagsráðs þann 2. október 2023 voru lagðar fram umsagnir og athugasemdir sem báurst á kynningartíma og erindinu var vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. október 2023.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

18.23061846 - Umhverfissvið, aðgerðaáætlun, stefnumörkun.

Í samræmi við III. kafla erindisbréfs skipulagsráðs eru lögð fram drög að aðgerðaáætlun umhverfissviðs til kynningar og samráðs. Á fundi skipulagsráðs 2. október 2023 var erindið lagt fram og kynnt. Afgreiðslu málsins var frestað.

Lagt fram að nýju.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:46.