Skipulagsráð

152. fundur 06. nóvember 2023 kl. 15:30 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hjördís Ýr Johnson formaður
  • Kristinn D Gissurarson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson, aðalmaður boðaði forföll og Sveinn Gíslason varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Hákon Gunnarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir lögfræðingur
  • Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi
  • Bergljót Sigríður Einarsdóttir verkefnastjóri
  • Kristjana H Kristjánsdóttir verkefnastjóri
  • Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir arkitekt
  • Brynja Kemp Guðnadóttir arkitekt
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir ritari
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.2310005F - Bæjarstjórn - 1286. fundur frá 24.10.2023

23091454 - Dalsmári 13. Stækkun Tennishallar. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 8 atkvæðum gegn atkvæði Hákons Gunnarssonar og hjásetu Orra V. Hlöðverssonar.



23092612 - Tónahvarf 12. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum.



23092999 - Lækjarhjalli 42. Umsókn um lóðarstækkun.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



2310810 - Geirland 1. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 9 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar.



23041422 - Þinghólsbraut 56. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum.



23052182 - Silfursmári 12. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.

Niðurstaða

Kolbeinn Reginsson óskar eftir nafnakalli við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með eftirfarandi hætti:



Elísabet Berglind Sveinsdóttir sagði já

Ásdís Kristjánsdóttir sagði já

Orri V. Hlöðversson sagði já

Andri Steinn Hilmarsson sagði Já

Bergur Þorri Benjamínsson sagði já

Sigrún Hulda Jónsdóttir sagði já

Kolbeinn Reginsson sagði nei

Indriði I. Stefánsson sagði já

Einar Ö. Þorvarðarson sagði já

Hákon Gunnarsson sagði já



22114320 - Huldubraut 28. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

2.2310009F - Bæjarráð - 3147. fundur frá 19.10.2023

23091454 - Dalsmári 13. Stækkun Tennishallar. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



23092612 - Tónahvarf 12. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



23092999 - Lækjarhjalli 42. Umsókn um lóðarstækkun.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



2310810 - Geirland 1. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



23041422 - Þinghólsbraut 56. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



23052182 - Silfursmári 12. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



22114320 - Huldubraut 28. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir umhverfis- og samgöngunefndar

3.2310006F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 168. fundur frá 17.10.2023

23082942 - Útbreiðsla Bjarnarkló í Kópavogi.

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Friðriki góða kynningu og hvetur til kynningar tímanlega fyrir næsta sumar.



23101080 - Hindranir vegna illa lagðra rafhlaupahjóla.

Umhverfis og samgöngunefnd óskar umsagnar frá Umhverfissviði um nánari útfærslu.



23091535 - Ályktun á aðalfundi Skógræktarfélagsins. Skógarreitir og græn svæði innan byggðar.

Umhverfis- og samgöngunefnd tekur undir hvatningu skipulagsráðs að hafa eigi í huga mikilvægi grænna svæða og varðveislu skógarreita í allri skipulagsvinnu Kópavogsbæjar, eins og Skógræktarfélagið bendir á.



23051119 - Hámarkshraðaáætlun Kópavogsbæjar.

Kynningu og umræðum haldið áfram á næsta fundi.



23052119 - Framkvæmdir Veitna á Kársnesbraut.

Umhverfis- og samgöngunefnd lýsir yfir óánægju með seinagang á framkvæmd verksins. Nefndin styður Umhverfissvið til að halda áfram að fylgja málinu eftir af festu.



23091400 - Ráðstöfun fjármuna til gang- og hjólastíga.

Frestað.

Almenn erindi

4.2208338 - Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Breyting á aðalskipulagi.

Lögð er fram að nýju tillaga skipulagsdeildar, dags. í febrúar 2023, uppf. í nóvember 2023, að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð ásamt fylgiskjölum. Tillagan var uppfærð með vísan til sameiginlegrar umhverfismatsskýrslu, dags. 24.01.2023, uppf. 21.06.2023, fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að nýju deiliskipulagi í Vatnsendahvarfi. Gerðar voru minni háttar lagfæringar í texta tillögunnar til útskýringa, ekki efnislegar breytingar.

Í aðalskipulagsbreytingunni felst að afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðarsvæði, opin svæði og samfélagsþjónustu er breytt. Fellt er út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins og sú þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla. Staðsetning minjasvæðis er leiðrétt. Skilgreiningin "tengibraut" á Kambavegi að og frá hverfinu (ÍB-6) er felld niður. Breytingarnar eru í samræmi við tillögu að deiliskipulagi sem auglýst var samtímis.

Umhverfismatsskýrslan var uppfærð samkvæmt ábendingum Náttúrufræðistofnunar Íslands um að meta áhrif deiliskipulagsins á náttúrufar óveruleg frekar en jákvæð.

Á fundi skipulagsráðs 19. júní 2023 var lögð fram að lokinni kynningu skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 31. gr. sömu laga tillaga skipulagsdeildar, dags. í febrúar 2023, að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð. Kynningartíma lauk 8. júní 2023. Þá voru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma. Á fundi skipulagsráðs 3. júlí 2023 var erindið lagt fram á ný ásamt umsögn Minjastofnunar sem barst eftir að kynningartíma lauk. Afgreiðslu málsins var frestað og athugasemdum vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 2. nóvember 2023 ásamt fylgiskjölum.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 dags. í febrúar 2023 með áorðnum breytingum dags. í nóvember 2023.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

5.2011714 - Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Deiliskipulag.

Lögð fram að nýju tillaga Arkþing/Nordic arkitekta f.h. umhverfissviðs að deiliskipulagi nýs íbúðahverfis í Vatnsendahvarfi. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000, skýringaruppdrætti og greinargerð dags. 20.02.2023, uppf. 1.11.2023, ásamt sameiginlegri umhverfismatsskýrslu, dags. 24.01.2023, uppf. 21.06.2023, fyrir tillögu að deiliskipulagi og tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir svæðið. Tillögurnar voru auglýstar samtímis.

Megintilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Deiliskipulagssvæðið er um 29 ha og liggur að mörkum fyrirhugaðs Arnarnesvegar, Kórahverfis og Hvörfum í Vatnsenda. Gert er ráð fyrir nýju íbúðahverfi með fjölbreyttu formi íbúða, leikskóla/skóla og útivistarsvæðum ásamt möguleika á verslun og þjónustu. Í tillögunni er gert ráð fyrir um 500 íbúðum alls í sérbýli (einbýli, raðhús/parhús), klasabyggingum og fjölbýlishúsum á 2-3 hæðum auk kjallara.

Á fundi skipulagsráðs þann 20. febrúar var samþykkt að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynningartíma lauk 8. júní 2023. Á fundum skipulagsráðs þann 19. júní sl. og þann 3. júlí sl. voru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma, málinu var vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Alls bárust 10 ábendingar og umsagnir á kynningartíma við tillögu að nýju deiliskipulags og tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Vatnsendahvarf. Brugðist var við umsögn Minjastofnun Íslands með því að gera rannsókn á fornleifum og bætt var við skilmálum um að girða af MV-9 á framkvæmdatíma. Ennfremur var sameiginlegt umhverfismat tillagnanna uppfært eftir ábendingar frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Gerðar eru leiðréttingar/lagfæringar í deiliskipulagsgögnum sem lýst er í neðangr. umsögn skipulagsdeildar.

Þá er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 2. nóvember 2023 ásamt fylgiskjölum.

Jóhanna Helgadóttir arkitekt og skipulagsfræðingur frá Nordic gerir grein fyrir erindinu.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi dags. 20. febrúar 2023 með áorðnum breytingum dags. 1. nóvember 2023.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl:

Gestir

  • Jóhanna Helgadóttir, arkitekt og skipulagsfræðingur - mæting: 15:30

Almenn erindi

6.2206018 - Lundur, leiksvæði norðaustursvæða. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju tillaga Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf. dags. 31. maí 2022 að breyttu deiliskipulagi Lundar. Í gildandi deiliskipulagi Lundar eru sýnd leiksvæði, körfuboltavellir og sparkvellir á opnum svæðum. Þrjú lítil leiksvæði hafa verið gerð en enginn boltavöllur.

Í tillögu að breytingu er gert ráð fyrir að gert verði stórt leik- og útivistarsvæði norðan Lundar 88-90 og vestan Lundar 60, 66 og 72. Á leiksvæðinu verður komið fyrir púttvelli um 540 m2 að stærð, æfingarsvæði til líkamsræktar á gervigrasi, gróðurbeðum, niðurgröfnu trambólíni og leiktækjum fyrir börn. Fallið er frá að koma fyrir boltavelli sem ráðgert var að koma fyrir á svæðinu. Einnig er fallið frá körfuboltavelli sem fyrirhugaður var austanvert við Lund 86 þar sem svæðið er talið vera of lítið og óhentugt vegna landhalla. Þá er jafnframt fallið frá körfuboltavöllum við Lund 5 og 11.

Umrædd breyting á deiliskipulagi Lundar nær aðeins til grænna svæða, leiksvæða og göngustíga á skipulagssvæðinu. Á deiliskipulagsuppdrátt hafa einnig verið innfærðar samþykktar deiliskipulagsbreytingar frá 12. febrúar 2008. Að öðru leyti er vísað í deiliskipulag Lundar samþykkt í bæjarstjórn 14. desember 2004 m.s.br. og birt í B- deild Stjórnartíðinda 17. mars 2005.

Tillagan dags. 31. maí 2022 með áorðnum breytingum dags. 25. nóvember 2022 var á fundi skipulagsráðs þann 5. desember 2022 samþykkt til grenndarkynningar fyrir lóðarhöfum í Lundi með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynningartíma lauk 12. júní 2023. Á fundi skipulagsráðs þann 19. júní 2023 var tillagan lögð fram að nýju ásamt athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Skipulagsráð vísaði málinu til umsagnar skipulagsdeildar.

Þá er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 31. október 2023.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi með áorðnum breytingum dags. 25. nóvember 2022.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

7.23092312 - Dalvegur 20. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Landslags arkitekta dags. 20. september 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Dalveg um breytt deiliskipulag. Í breytingunni felst að nýjum byggingarreit 3m x 8m að stærð eða samtals 24 m² að flatarmáli fyrir spennistöð og tæknirými verði komið fyrir á norðvestur hluta lóðarinnar fyrir rafhleðslustöð. Einnig er hjólastæðum komið fyrir á lóð í samræmi við hjólastæðaviðmið í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.

Uppdráttur í mkv. 1:500 og 1:1000 dags. 3. nóvember 2023 ásamt minnisblaði skipulagsdeildar dags. 3. nóvember 2023.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 18, 22, 24, 26 og 28 við Dalveg.

Almenn erindi

8.2310613 - Hagasmári 9. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Landslags arkitekta dags. 6. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hagasmára um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í breytingunni felst nýr byggingarreitur 2,5m x 4m að stærð eða samtals 10 m² að flatarmáli fyrir spennustöð og tæknitými á núverandi bílastæði á suðurhluta lóðarinnar fyrir rafhleðslustöð. Einnig er hjólastæðum komið fyrir á lóð í samræmi við hjólastæðaviðmið í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.

Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt fylgiskjali dags. 1. nóvember 2023 og minnisblað skipulagsdeildar dags. 3. nóvember 2023.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 1, 3 og 9A við Hagasmára.

Almenn erindi

9.23071265 - Auðbrekka 10. Kynning á byggingarleyfisumsókn

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 21. júlí 2023 þar sem byggingarleyfisumsókn Jakobs Líndal arkitekts dags. 27. júní 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Auðbrekku er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að 2. og 3. hæð núverandi atvinnuhúsnæðis á lóðinni verði innréttaðar sem gistiheimili. Aðkoma að gistiheimilinu verður frá Hamrabrekku. Núverandi innaksturshurð verður skipt út fyrir glugga og inngangshurð og lokað verður fyrir núverandi glugga og hurð til hliðar við innanginn. Samtals eru 26 gistiherbergi á tveimur hæðum með að hámarki 40 rúmum. Sameiginleg baðherbergi með salernum og sturtum eru á hvorri hæð.

Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 27. júní 2023, uppfærðir 3. nóvember 2023 og umsögn skipulagsdeildar dags. 3. nóvember 2023.
Afgreiðslu frestað.

Almenn erindi

10.23051641 - Víðigrund 23, 25 og 29. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Unnsteins Jónssonar byggingarfræðings dags. 29. júní 2023 með áorðnum breytingum dags. 3. nóvember 2023 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 23, 25 og 29 við Víðigrund um breytingu á deiliskipulagi. Vestan við lóð nr. 25 við Víðigrund eru tvær bílskúrslóðir sem tilheyra lóðarhöfum nr. 23 og 29 við Víðigrund. Í breytingunni fellst að lóð nr. 25 við Víðigrund og bílskúrslóðirnar tvær verði stækkaðar um u.þ.b 63 cm hver til vesturs svo að bílskúrslóð sem tilheyrir lóð nr. 23 fari úr 70 m² í 81,5 m², bílskúrslóð sem tilheyrir lóð nr. 29 fari úr 68 m² í 79,5 m² og lóð nr. 25 fari úr 453 m² í 470,4 m². Bílskúrar verði því stærri en deiliskipulag gerir ráð fyrir, lengdir úr 6,7m í 8,7m til norðurs og breikkaðir úr 3,7m í 4,33m til vesturs. Komið verður fyrir þremur litlum gluggum á vesturhlið bílskúrs nr. 29. Komið verður fyrir hurð og gluggum á austurhlið bílskúrs nr. 25 þar sem bílskúrinn stendur innan lóðarmarka viðkomandi húss. Hæð skúranna verður 3,25m. Stærð bílskúra í deiliskipulagi er 24,8m² fyrir bílskúr og verður 37,6m² eftir breytingu. Núverandi nýtingarhlutfall á bílskúrslóðum nr. 23 og 29 er 0,36 og verður 0,47 eftir breytingu. Núverandi nýtingarhlutfall á lóð við nr. 25 er 0,34 og verður 0,36.

Á fundi skipulagsráðs þann 3. júlí 2023 var samþykkt að grenndarkynna umsóknina, kynningartíma lauk 5. september 2023.

Þá lagðir fram breyttir uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 3. nóvember 2023 þar sem komið er til móts við sjónarmið í athugasemd sem barst á kynningartíma ásamt umsögn skipulagsdeildar dags. 3. nóvember 2023.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 3. nóvember 2023.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

11.2311023 - Dimmuhvarf 29. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Guðmundar Óskars Unnarssonar byggingarverkfræðings dags. 25. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Dimmuhvarf um fjölgun íbúða á lóðinni. Lóðin er 1553 m² að stærð, á henni er 193,6 m² einbýlishús ásamt stakstæðri 59 m² bílageymslu og 87 m² hesthúsi. Bílageymsla og hesthús eru sambyggð. Óskað er eftir heimild til að breyta hesthúsinu í séríbúð. Byggingarmagn á lóðinni helst óbreytt.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Almenn erindi

12.23062059 - Vesturvör 38A og 38B. Breytt deiliskipulag

Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs Kópavogsbæjar að breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar, Vesturvör 38-50, fyrir lóðirnar nr. 38A og 38B við Vesturvör. Í samræmi við tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir brú yfir Fossvog sem var auglýst samhliða ofangreindri tillögu er lagt til að skipulagsmörk færist að lóðarmörkum Vesturvarar 38A til austurs og norðurs. Á lóðamörkum á austurhluta svæðisins er skilgreint varúðarsvæði fyrir háspennustreng í jörðu. Aðkoma að svæðinu og innan þess breytist vegna fyrirhugaðrar Borgarlínu og brú yfir Fossvog. Í tillögunni er gert ráð fyrir lóð Vesturvarar 38A minnki um 300 m² og verði 8.600 m². Byggingarreitur Vesturvarar 38A breytast lítillega en byggingarmagn helst óbreytt. Gerð er krafa um að koma fyrir a.m.k. 60 hjólastæðum á lóð. Í tillögunni er gert ráð fyrir lóð Vesturvarar 38B minnki um 400 m² og verði 10.900 m². Byggingarreitur Vesturvarar 38B breytist lítillega en byggingarmagn er óbreytt. Gerð er krafa um að koma fyrir a.m.k. 60 hjólastæðum á lóð. Heimilt verður að byggja minna byggingarmagn á umræddum lóðum eða allt að 75% af hámarks byggingarmagni. Fjöldi bílastæða helst óbreytt þ.e. 1 bílastæði á hverja 50 m² eða 240 á hvorri lóð, alls 480 stæði. Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag og greinargerð fyrir Vesturvör 38 til 50 birt í B-deild Stjórnartíðinda 4. ágúst 2017.

Kynningartíma lauk 19. september 2023, umsagnir og athugasemdir bárust. Á fundi skipulagsráðs 2. október 2023 var tillagan lögð fram að nýju að lokinni kynningu ásamt umsögnum og athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Var málinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 24. október 2023 ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 15. júlí 2023 uppfærður dags. 24. október 2023. Í uppfærðum deiliskipulagsgögnum hefur verið skerpt á gönguleiðum á og við lóðina og eru nú skýrari á uppdrætti. Texti á uppdrætti hefur verið lagfærður varðandi fjöldi bílastæða og bætt hefur verið við greinargerð að gæta skuli að mögulegri mengun á framkvæmdatíma þar sem skipulagssvæðið er staðsett á uppfyllingarsvæði.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins D. Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Sveins Gíslasonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur með áorðnum breytingum dags. 24. október 2023.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

13.23081198 - Kársnesbraut 102, 102A og 104. Deiliskipulag.

Lagt fram erindi Helga Steinars Helgasonar arkitekts dags. 12. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 102, 102A og 104 við Kársnesbraut. Óskað er eftir heimild skipulagsráðs til að hefja deiliskipulagsvinnu á lóðunum. Áform lóðarhafa eru að lóðirnar verði sameinaðar í tvær fjölbýlishúsalóðir og að nýtingarhlutfall hvorrar lóðar verði 2.0. Hæðir húsa að Kársnesbraut verði 3 hæðir og 5 hæðir við Vesturvör. Efsta hæð verði inndregin. Jafnframt er gert ráð fyrir niðurgröfnum bílageymslum á lóðunum. Fyrirhugaður fjöldi íbúða verði um 120-140 samtals á báðum lóðunum og að meðalstærð íbúða verði 80 m2.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Almenn erindi

14.23091637 - Kjóavellir, Landsendi 31. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga umhverfissviðs að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 31 við Landsenda. Í gildi er deiliskipulagið Kópavogur- Garðabær. Kjóavellir samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 24. júní 2008 og í bæjarráði Garðabæjar 8. júlí 2008. Í breytingunni felst að komið verði fyrir nýjum byggingarreit um 38m að þvermáli fyrir nýjan 4.000 m³ miðlunargeymi norðan megin við núverandi vatnstank. Fyrirhugaður miðlunargeymir mun vera að sömu stærð og hæð og núverandi vatnstankur. Lóð stækkar til norðvesturs um 2.125 m², fer úr 2.134 m² í 4.258 m², og verður girt af með 2m hárri mannheldri girðingu á lóðarmörkum. Núverandi aðkoma helst óbreytt frá Landsenda en fyrirkomulag bílastæða breytist. Fallið er frá lóð fyrir fjarskiptamastur en gert verður ráð fyrir lóð fyrir fjarskiptamastur í deiliskipulagi Vatnsendahlíðar.

Uppdráttur í mkv. 1:2000 dags. 2. nóvember 2023.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

15.23101231 - Aðalskipulag Reykjavíkur 2040. Skotæfingasvæði á Álfsnesi. Drög að tillögu.

Lagt fram erindi Haralds Sigurðssonar, deildarstjóra aðal- og svæðisskipulags f.h. Reykjavíkurborgar, dags. 12. október 2023, þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar um drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040, dags. í október 2023.

Í breytingunni felst breytt landnotkun á norðanverðu Álfsnesi. Iðnaðarsvæði og opið svæði skerðast og komið verður fyrir nýju íþróttasvæði þar sem heimilt verður að stunda skotæfingar, skotíþróttir og skylda íþróttastarfsemi. Stefna um landnotkun verður tekin til endurskoðunar innan fjögurra ára.
Lagt fram.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.

Fundi slitið.