Kópavogsbær opnar nýja menningarmiðstöð í Smáralind

Fulltrúar menningar, forstjóri Heima og fulltrúar meirihluta f.v.: Sigurlaug Jóna Hannesdóttir, úti…
Fulltrúar menningar, forstjóri Heima og fulltrúar meirihluta f.v.: Sigurlaug Jóna Hannesdóttir, útibússtjóri í Lindasafni, Védís Hervör Árnadóttir, umbóta- og þróunarstjóri, Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, Orri Vignir Hlöðversson formaður bæjarráðs, Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála, Elísabet Sveinsdóttir, formaður menningar- og mannlífsnefndar.

Kópavogsbær og Heimar hf. hafa gert með sér samning um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind. Áætluð opnun nýrrar menningarmiðstöðvar er vorið 2027.

Verkefnið er þróað af Kópavogsbæ í samstarfi við Heima en um framsýna hugsun er að ræða á sviði menningarmála þar sem fléttast saman nútímabókasafn í bland við menningarupplifun og fjölbreytta þjónustu.

Verkefnið er jafnframt hluti af stærri þróun menningarinnviða hjá Kópavogsbæ sem samþykkt var í bæjarstjórn í gær þar sem áætlað er að tveir nýir menningarkjarnar rísi. Annars vegar í Kórnum og hins vegar í Smáralind.

Aukið aðgengi að menningu

„Kópavogsbær er öflugur menningarbær og státar nú þegar af einu besta bókasafni landsins í Hamraborg. Menningarmiðstöðin mun efla starfsemi þess enn frekar og auka um leið aðgengi að menningunni í Kópavogi. Menningarmiðstöð í Smáralind og nýtt bókasafn í efri byggðum þýðir líka bætt aðgengi íbúa að bókum, sem er gríðarlega mikilvægt á tímum þar sem dregið hefur úr lestri barna og ungmenna. Þá hefur uppbygging íbúða og þjónustu í Smárahverfi undanfarin ár stutt við svæðið sem annan af tveimur miðpunktum bæjarins og mikilvægt að menningin eigi þar samastað. Á þessu kjörtímabili höfum við lagt ríka áherslu á að efla enn frekar menninguna í Kópavogi og ég er afar stolt af þeim breytingum sem við höfum ráðist í með endurnýjun á aðalsafni og Náttúrusafni Kópavogs. Ég er sannfærð um að íbúar Kópavogs munu taka menningarmiðstöðinni fagnandi, rétt eins og þeim breytingum sem við höfum þegar ráðist í, “ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Skrifstofa umbóta og þróunar hefur leitt undirbúning verkefnisins og segir Védís Hervör Árnadóttir, umbóta- og þróunarstjóri þetta eitt mesta framfaraskref í uppbyggingu menningarinnviða í langan tíma, eða allt frá því að menningarkjarninn við Hamraborg reis þar sem nú standa Salurinn, Gerðarsafn, Bókasafn Kópavogs og Náttúrusafn Kópavogsbæjar.

Spennandi tækifæri

„Bókasöfn gegna nýju hlutverki í breyttum heimi, eru heimili að heiman, vettvangur viðburða og afdrep í erli samtímans. Menningarmiðstöð í Smáralind er því frábær viðbót við þá þjónustu og menningarframboð í Kópavogsbæ. Við sjáum fjölmörg spennandi tækifæri í nýju rými þar sem við ætlum að sameina nútímabókasafn, menningu, upplifun, starf og leik.  Við munum nýta okkar þekkingu en jafnframt horfa til þess er best gerist í nágrannalöndunum í söfnum á borð við Oodi í Helsinki og Deichman í Osló,“ segir Védís Hervör Árnadóttir.

„Öflugt starfsfólk menningarmála í Kópavogi hefur undirbúið verkefnið af fagmennsku og með hag íbúa að leiðarljósi. Við erum spennt fyrir samstarfinu við Heima og hlökkum til að klippa á borðann í nýrri menningarmiðstöð.“

Oodi í Helsinki  Mynd frá Oodi safninu í Helsinki

Deichman safnið í Osló  Setusvæði í Deichman safninu í Osló