Dalaþing 20-22

Grenndarkynning.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 4. mars 2024 var lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar dags. 1. mars 2024 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 20 og 22 við Dalaþing um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að sameina lóðirnar og byggja tvíbýlishús á sameiginlegri lóð í stað parhúss. Byggingin yrði innan núverandi byggingarreits á lóðunum og er í samræmi við skipulagsskilmála að öðru leiti. Ný staðföng yrðu Dalaþing 20 og Dalaþing 20A. Byggingarmagn og nýtingarhlutfall er óbreytt.

Bókun Skipulagsráðs:
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 12, 14, 16, 18 og 24 við Dalaþing.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 326/2024, eigi síðar en 29. apríl 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingaskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Dalaþing 20-22
Tímabil
25. mars - 29. apríl 2024