Hagasmári 9

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 6. nóvember 2023 var lögð fram umsókn Landslags arkitekta dags. 6. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hagasmára um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í breytingunni felst nýr byggingarreitur 2,5m x 4m að stærð eða samtals 10 m² að flatarmáli fyrir spennustöð og tæknirými á núverandi bílastæði á suðurhluta lóðarinnar fyrir rafhleðslustöð. Einnig er hjólastæðum komið fyrir á lóð í samræmi við hjólastæðaviðmið í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 1, 3 og 9A við Hagasmára.

Athugasemdum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 926/2023, eigi síðar en föstudaginn 29. desember 2023. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Umhverfissvið, skipulagsdeild Kópavogs, notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn bæjarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.

Hagasmári 9
Tímabil
23. nóvember - 29. desember 2023