Jörfalind 19

Grenndarkynning.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 29. Janúar 2024 var lögð fram umsókn Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 23. janúar 2024 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 19 við Jörfalind um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni stendur 190,8 m² endaraðhús á tveimur hæðum. Í breytingunni felst að byggja 18 m² staðsteypta viðbyggingu við suðurgafl hússins, neðri hæð með þaksvölum til suðurs. Nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,43 í 0,47.

Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 29. nóvember 2023 og kynningaruppdráttur í mkv. 1:1000, 1:500 og 1:200 ódags.

Bókun skipulagsráðs:
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um breytt deiliskipulag verð grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 11, 13, 15, 17, 23, 21, 24, 26 og 28 við Jörfalind og nr. 6, 13 og 15 við Geislalind.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 192/2024, eigi síðar en 26. mars 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingaskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

 

Jörfalind 19
Tímabil
26. febrúar - 26. mars 2024