Kársnesbraut 123

Grenndarkynning.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 4. desember 2023 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 14. mars 2023 þar sem umsókn Helga Indriðasonar arkitekts dags. 1. mars 2023 um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um stækkun bílskúrs um 33cm til suðurs og 26cm til austurs, samtals 4,1 m² ásamt færslu bílskúrs rúmum metra nær lóðarmörkum bæjarlands eða 2,87 metra frá lóðarmörkum.
Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 19. ágúst 2023.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 121 og 125 við Kársnesbraut og nr. 68 og 70 við Holtagerði með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins D. Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Theódóra S. Þorsteinsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.

Athugasemdum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 978/2023, eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 11. janúar 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Umhverfissvið, skipulagsdeild Kópavogs, notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn bæjarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.

Kársnesbraut 123
Tímabil
11. desember - 12. janúar 2024