Á myndinni eru frá vinstri Ásdís Kristjánsdóttir, Hrafnhildur Davíðsdóttir, Bragi Valdimar Skúlason og Eyrún Ósk Jónsdóttir.
Kópavogsbær efnir til nafnasamkeppni um nafn á nýrri menningarmiðstöð sem verður opnuð í Smáralind vorið 2027.
Tekið er við tillögum á vef Kópavogsbæjar til 1.júní næstkomandi. Dómnefnd skipuð þeim Braga Valdimar Skúlasyni, Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og Hrafnhildi Davíðsdóttur fer yfir innsendar tillögur. Vegleg verðlaun verða fyrir handhafa sigurtillögunnar.
„Menningarmiðstöðin mun sameina bókasafn, viðburðaaðstöðu og skapandi vinnusvæði fyrir fjölbreyttan hóp notenda. Hún verður hluti af menningarstarfi Kópavogsbæjar og viðbót við menningarhús bæjarins í Hamraborg. Ég hvet sem flesta til þess að taka þátt í því að finna nafn á nýju menningarmiðstöðina sem mun skapa ný tækifæri í menningarlífi Kópavogsbæjar,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.
Verkefnið er þróað af Kópavogsbæ í samstarfi við Heima fasteignafélag. Menningarmiðstöðin verður til húsa austast í Smáralind í 900 fermetra rými. BASALT arkitektar munu hanna Menningarmiðstöðina og hafa að leiðarljósi fjölbreytta notkun hennar í samstarfi við Kópavogsbæ.
Senda inn tillögu

Lesa meira um nýja menningarmiðstöð