Vígsla fræðsluseturs í Guðmundarlundi

Á myndinni eru Bernhard Jóhannesson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson…
Á myndinni eru Bernhard Jóhannesson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs, Guðni Th. Jóhanesson forseti Íslands og Kristinn H. Þorsteinsson formaður Skógræktarfélags Kópavogs auk fulltrúa skólabarna úr Kópavogi. Mynd/Kópavogsbær

Fræðslusetur í Guðmundarlundi í Kópavogi var vígt við hátíðlega viðhöfn í kvöld, föstudaginn 30. ágúst.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs og Kristinn H. Þorsteinsson formaður Skógræktarfélags Kópavogs tóku til máls við athöfnina. Þá gróðursettu börn úr Kópavogi tré í lundinum við hið nýja setur með dyggri aðstoð forseta Íslands, bæjarstjóra og fulltrúa Skógræktarfélags Kópavogs.

Fræðslusetrið verður meðal annars nýtt af leik- og grunnskólum í Kópavogi en stefnt er að því að í Guðmundarlundi verði boðið upp á fyrsta flokks aðstöðu til útikennslu þar sem lögð verður sérstök áhersla á náttúrulæsi, umhverfis- og náttúruvernd og áhrif loftlagsbreytinga á umhverfið.

„Fræðslusetrið er í samræmi við þá áherslu sem við höfum lagt á útikennslu í skólastarfi í Kópavogi en í bænum eru útikennslustofur við alla skóla. Þá er áhersla á umhverfismál og áhrif loftslagsbreytinga mikilvæg og í takt við innleiðingu bæjarins á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, við tækifærið.

Húsið er í eigu Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Kópavogs en skógrækt hefur verið í Guðmundarlundi frá sjöunda áratugnum og er svæðið mjög vinsælt til útivistar.

Vígsla setursins var haldin í tengslum við aðalfund Skógræktarfélag Íslands sem fram fer í Kópavogi 30. ágúst til 1. september.

er.