Fréttir og tilkynningar

Einfaldari gagnaskil með nýrri stafrænni lausn
Kópavogsbær hefur tekið í notkun stafræna lausn sem einfaldar skil á skattagögnum vegna þjónustu bæjarins. Með upplýstu samþykki íbúa getur bærinn nú sótt nauðsynleg gögn beint frá Skattinum í stað þess að íbúar þurfi sjálfir að afla þeirra og senda inn til bæjarins.

Jólapakkarnir vakna til lífsins í Leikfélagi Kópavogs
Hvað gerist þegar klukkan slær ellefu á aðfangadagskvöld og pakkarnir undir jólatrénu eru enn óopnaðir?

Kópavogsbær lýstur upp
Jóla- og skammdegislýsing er komin upp víða um Kópavogsbæ eins og venja er á þessum árstíma. Hafist var handa við skreytingar í október og hefur síðan þá verið unnið að uppsetningu ljósanna sem setja fallegan svip á bæinn.

Ný Kópavogssaga komin út
Vill tattúvera Kópavogskirkju við hjartastað
Ásgeir Þór Jónsson er viðmælandi Þórdísar Lilju Gunnarsdóttur í nýjustu Kópavogssögunni.

Flestum erindum um miðbæ svarað innan tveggja daga
Greining á viðbragðstíma erinda sem berast netfanginu midbaer@kopavogur.is sýnir að 74% flokkaðra erinda fengu svar sama dag eða næsta virka dag. Yfirferð á erindum sýnir að þau endurspegla einkum áhrif framkvæmda á daglegt líf íbúa og rekstraraðila.

Lóð við leikskólann Sólhvörf verður eins og börnin lögðu til
Börn á leikskólanum Sólhvörfum í Kópavogi afhentu Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs viðurkenningarskjal í þakklætisskyni fyrir að hafa hlustað á óskir þeirra um leiktæki á lóð leikskólans.

Auglýst er eftir umsóknum í Afrekssjóð lýðheilsu- og íþróttanefndar Kópavogs
Umsóknum skal skila inn rafrænt í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar og er opið fyrir umsóknir frá 1. – 30. nóvember 2026.

Kjörkassar uppseldir
Mikill áhugi reyndist vera á kjörkössum Kópavogs og eru þeir allir búnir.

Hrekkjavökuveisla í menningarhúsunum í Kópavogi
Það er sannkölluð Hrekkjavökuveisla í menningarhúsunum í Kópavogi og ættu allir aldurshópar að geta fundið eitthvað hræðilegt við sitt hæfi.

Kjörkassar Kópavogs gefins
Eldri kjörkassar Kópavogs fást gefins föstudaginn 30. október milli 10.30 og 13.30 og fimmtudaginn 5. nóvember milli 14.00 og 16.00. Hægt er að nálgast kjörkassana í þjónustuveri Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1.
Forvarnarsjóður Kópavogs 2026 auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
Markmið Forvarnarsjóðs er að veita einstaklingum, börnum og ungmennum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum styrki til verkefna sem hafa það að leiðarljósi að efla forvarnir, heilsu og vellíðan Kópavogsbúa.

Vetrarfrí í Kópavogi
Mikið er um að vera í menningarhúsum í Kópavogi í vetrarfríi grunnskólanna.