Fréttir og tilkynningar
Íþróttavika í Kópavogi
Kópavogsbær tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu 23.-30.september. Ókeypis á alla viðburði og öll velkomin. Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á suma viðburði.

Kópavogur þrýstir á opinbera aðila að takmarka hækkanir við 2,5%
Kópavogsbær er reiðubúinn að takmarka hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5% á árinu 2027. Þetta yrði annað árið í röð sem Kópavogsbær takmarkar gjaldskrárhækkanir sínar.

Álfhólsskóli og Snælandsskóli taka upp kennsluhætti Íslenskuskólans
Álfhólsskóli og Snælandsskóli hafa hafið innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans eftir að kennarar skólanna og ráðgjafar á menntasviði Kópavogsbæjar sóttu námskeið um aðferðir hans.

Börn og bæjarfulltrúar á kaffihúsafundi
Fulltrúar barna í grunnskólum og frístundastarfi ásamt fulltrúum ungmennaráðs Kópavogs funduðu með bæjarfulltrúum föstudaginn 11.september.

Salaskóli 25 ára
Salaskóli fagnaði 25 ára afmæli sínu föstudaginn 11.september með afmælishátíð og opnu húsi. Nemendur, foreldrar, kennarar og starfsfólk komu saman auk annarra gesta og áttu góða stund.

Traustur rekstur en verðbólgan til vandræða
Árshlutareikningur Kópavogsbæjar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 10. september.

30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans fagnað
30 ára afmæli Hótel- og veitingaskólans í MK var fagnað með opnu húsi og skemmtilegum viðburðum föstudaginn 5. september.

Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Treyjudagurinn var haldinn í fyrsta skipti á Íslandi, 4.september en hann er tileinkaður börnum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Grandahvarf er gata ársins 2026
Grandahvarf er gata ársins 2026 í Kópavogi og er þar með 32. gatan í Kópavogi sem hlýtur nafnbótina.

Ný viðmið um notkun gervigreindar í grunnskólum
Ný samræmd viðmið um notkun gervigreindar fyrir starfsfólk og nemendur verða innleidd í grunnskólum Kópavogs við upphaf skólaársins 2026–2027.

Dagskrá menningarhúsanna kynnt
Vetrardagskrá Menningarhúsanna í Kópavogi verður kynnt fimmtudaginn 3. september kl. 17–18.30. Boðið verður upp á léttar veitingar og skemmtilega dagskrá.

Miðnæturopnun í Kópavogslaug
Við fögnum haustinu og höfum opið til miðnættis í Kópavogslaug föstudaginn 4. september.