Opið hús GAJA

GAJA býður í heimsókn sumardaginn fyrsta.
GAJA býður í heimsókn sumardaginn fyrsta.
Opið hús er í GAJU, Álfsnesi 162, sumardaginn fyrsta. Gestir geta náð sér í moltu og þá er boðið upp á fræðslu.
 
Tilkynning Sorpu:
"Við fögnum sumardeginum fyrsta og um leið fyrstu uppskerunni af næringarríkri moltu og bjóðum í opið hús í GAJU sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl. Þetta er spennandi tækifæri til að forvitnast um ferðalag matarleifanna um jarðgerðarstöðina en á síðasta ári flokkuðu íbúar höfuðborgarsvæðisins og nágrennis um 10.500 tonn af lífrænum úrgangi - það er ekkert smá vel gert!
 
D A G S K R Á 11:00-15:00
 
Öll velkomin að mæta með kerru, fötu, eða fjölnota poka og ná í moltu fyrir vorverkin í garðinum, endurgjaldslaust!
Leiðsögn um stöðina á hálftíma fresti
Stjörnu Sævar verður með fræðslu fyrir yngsta fólkið – hefst kl. 13.00
Sérfræðingar frá Grasagarði Reykjavíkur veita fræðslu um moltu

Boðið verður upp á pylsur og gos meðan birgðir endast*

 

Sjá viðburð á Facebook.