Verður þú bæjarlistamaður Kópavogs 2024?

Salurinn er meðal menningarhúsa Kópavogsbæjar.
Salurinn er meðal menningarhúsa Kópavogsbæjar.

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um næsta bæjarlistamann og koma einungis þeir einstaklingar til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi. Sá sem verður fyrir valinu tekur þátt í að efla áhuga á list og listsköpun meðal bæjarbúa m.a með viðburði þar sem hans listsköpun er höfð í heiðri.

Ráðið fer yfir umsóknir og ábendingar þar sem fram skulu koma helstu upplýsingar um viðkomandi, nám- og starfsferil og hugmyndir um með hvaða móti listamaðurinn hyggst auðga lista- og menningarlíf bæjarbúa. Styrkupphæð bæjarlistamanns Kópavogs er 1,5 milljónir króna.

Reglur um tilnefningu og starfshætti

Tekið er á móti umsóknum og ábendingum fyrir 16.apríl á netfangið menning@kopavogur.is