Álfhólsveg lokaður á milli Meltraðar og Bröttubrekku

Álfhólsvegur á milli Meltraðar og Bröttubrekku lokaður
Álfhólsvegur á milli Meltraðar og Bröttubrekku lokaður

Þriðjudaginn 23. apríl milli kl. 9:00 og 15:00 verður Álfhólsvegur á milli Meltraðar og Bröttubrekku lokaður vegna malbiksframkvæmda. Bent er á hjáleiðir um Digranesveg, Bröttubrekku og Meltröð. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitsemi og virða merkingar.

Álfhólsvegur á milli Meltraðar og Bröttubrekku lokaður