Lokunartilkynning. Hlíðarhjalli 22. apríl

Hlíðarhjalli lokaður
Hlíðarhjalli lokaður

Mánudaginn 22. apríl milli kl. 9:00 og 15:00 verður Hlíðarhjalli á milli Digranesvegar og Blikahjalla lokaður vegna malbiksframkvæmda. Bent er á hjáleiðir um Digranesheiði og Skálaheiði á meðan framkvæmdum stendur. Umferð gangandi og hjólandi um Hlíðarhjalla helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitsemi og virða merkingar.

Hlíðarhjalli lokaður