Baugakór gata ársins í Kópavogi

Handhafar umhverfisviðurkenninga Kópavogsbæjar árið 2015.
Handhafar umhverfisviðurkenninga Kópavogsbæjar árið 2015.

Umhverfisviðurkenningar umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogsbæjar voru afhentar í Salnum fimmtudaginn 27. ágúst.  Kynnt var val á götu ársins, Baugakór, en auk þess voru veittar tólf viðurkenningar fyrir hönnun og umhverfi. Í Baugakór afhjúpaði Margrét Friðriksdóttir, forseti bæjarstjórnar, viðurkenningakjöld og flutti ávarp. Margrét, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Hjördís Ýr Johnson formaður umhverfis- og samgöngunefndar gróðursettu svo tré íbúum götunnar til heiðurs. Bæjarstjórn Kópavogs valdi götu ársins á bæjarstjórnarfundi fyrr í sumar.

Hjördís Ýr Johnson formaður umhverfis- og samgöngunefndar flutti ávarp í Salnum og afhenti viðurkenningarnar ásamt Margréti Friðriksdóttur forseta bæjarstjórnar og Theodóru S. Þorsteinsdóttur formanni bæjarráðs. Þá var haldið í vettvangsferð á slóðir verðlaunahafa, hús og lóðir skoðaðar. Einnig var stoppað við Dalveg þar sem sett hefur verið upp fróðleiksskilti um Framfarafélag Kópavogs.

Baugakór er hringlaga gata þar sem markmiðið með hönnun götunnar var að sem flestir íbúar hefðu útsýni og aðgengi að hjarta götunnar, bæjargarði sem nýtist til leikja og útiveru. Í umsögn segir meðal annars: „Sérstaklega hafa íbúar fangað anda hringsins með því að sinna nærumhverf sínu með gróðri og efnisvali bygginga.“

Auk götu ársins voru veittar viðurkenningar fyrir hönnun, umhirðu húss og lóðar, frágang húss og lóðar á nýbyggingarsvæðum og umhirðu húss og lóðar.

Umhverfisviðurkenningar Kópavogsbæjar 2015. 

Hönnun:

Austurkór 63-65. Hönnun KRark arkitektar ehf. Byggingaraðili: Dverghamrar ehf.

Fagraþing 5. Hönnun EON arkitektar ehf. Byggingaraðili: Kári Stefánsson.

Fagraþing 14. Hönnun Arkitekto ehf. Friðrik Guðmundsson og Gitte Jacobsen.

Kópavogstún 10-12. Hönnun KRark arkitektar ehf. Byggingaraðili: MótX ehf.

Umhirða húss og lóðar:

Hjallabrekka 6. Alda Möller og Derek Mundell.

Kaldalind 1. Ásdís A. Gottskálksdóttir, Ægir Finnbogason.

Lækjasmári 8. Húsfélagið Lækjarsmára 8.

Framlag til umhverfissmála:

Kríunes, Björn Ingi Stefánsson.

Álfhólsskóli.

Frágangur húss og lóðar á nýbyggingarsvæði

Frostaþing 6. Hönnuður Anna S. Jóhannsdóttir og Richard Ó. Briem, VA arkitektar eht. Framkvæmdaaðili: Dagrún Briem og Guðjón Gústafsson.

Aflakór 21 – 23. Hönnuðuru Tangram arkitektar ehf. Framkvæmdaaðili: Ögurhvarf ehf.

Þorrasalir 17. Hönnuður Teiknistofa arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar ehf. Framkvæmdaaðili: Mannverk eht.

Gata ársins:

Baugakór