Lokað er fyrir kalt vatn í stórum hluta Kópavogs 17.-18.nóvember.
Uppfært: 8:30
Lokað var fyrir kalt vatn í Lindahverfi, Smárahverfi, Digranesi og Kársnesi frá kl. 22:00 mánudaginn 17. nóvember til kl. 06:00 í morgun vegna vinnu á vatnskerfinu. Vatnsveita hefur nú verið opnuð á ný.
Töluvert loft er þó í kerfinu og getur því tekið nokkurn tíma fyrir vatnsrennsli að verða eðlilegt á ný. Þetta hafði víðtækari áhrif en gert var ráð fyrir og datt þrýstingur einnig niður í Kórahverfi þótt ekki hafi verið lokað fyrir vatn til þeirra.
Við biðjum bæjarbúa velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.
Vegna framkvæmda við Arnarnesveg þarf að loka fyrir rennsli á köldu vatni í Lindahverfi, Smárahverfi, Digranesi og Kársnesi frá 22.mánudaginn 17.nóvember til 06.00 þriðjudaginn 18.nóvember.
Lokunin þýðir að Kópavogslaug lokar kl. 21.30 að kvöldi 17.nóvember og opnar kl. 10.00 þriðjudaginn 18.nóvember.
Meira um lokun:
- Lokunin er vegna vinnu við breytingar á stofnlögn og nær hún sem fyrr segir til Lindahverfis, og alls Kópavogs vestan Reykjanesbrautar (Smára, Digranes, Kársnes) .
- Vinsamlegast athugið að það getur myndast loft í kerfinu eftir að vatni hefur aftur verið hleypt á og það getur verið skynsamlegt að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum.
- Góð hugmynd gæti verið að fylla á vatnsflöskur fyrir klukkan 22.00 ef þörf er á vatni fyrir nóttina og setja vatn í fötur fyrir klósett.
- Athugið að þau sem eru með varmaskipta geta lent í því að ekki komi heitt vatn á meðan lokun stendur.
- Eingöngu kemur heitt vatn úr blöndunartækjum og því hætta á að fólk brenni sig ef skrúfað er frá krana.
