Styrkir velferðar- og mannréttindaráðs 2026

Styrkþegar ásamt bæjarstjóra og formanni velferðar- og mannréttindaráðs.
Styrkþegar ásamt bæjarstjóra og formanni velferðar- og mannréttindaráðs.

Ellefu hlutu styrki velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogs 2026 en ráðið veitir ár hvert hagsmuna- og félagasamtökum styrki til verkefna á sviði velferðarmála.

„Styrkveitingar ráðsins eru ekki einungis fjárhagslegur stuðningur heldur einnig viðurkenning á mikilvægi þeirra verkefna sem unnin eru af alúð, hugrekki og fagmennsku. Þau hafa áhrif sem eru bæði sýnileg og ósýnileg, áhrif sem mælast í bættri líðan, auknu öryggi, meira jafnrétti og sterkari samfélagslegri samstöðu,“ sagði Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi er styrkirnir voru veittir.

Björg Baldursdóttir formaður ráðsins tilkynnti hverjir hlutu styrki í ár, en ráðinu bárust alls 22 styrkbeiðnir vegna ársins 2026. Heildarupphæð styrkveitinga var 5.000.000 kr. sem veittir voru til verkefna á sviði velferðarmála og til verkefna sem hafa framgang mannréttinda og jafnréttis í Kópavogi að markmiði.

Verkefnin sem hlutu styrk

  1. Karlar í skúrum – 500.000 kr.

Karlar í skúrum eru félagslegur og skapandi vettvangur fyrir eldri borgara og öryrkja þar sem unnið er að handverki, rennismíði og útskurði. Starfið styrkir félagslega virkni, dregur úr einangrun og skapar tækifæri til samveru og nýrrar færni. Með nýrri aðstöðu geta félagar haldið áfram að byggja upp þetta verðmæta samfélag. Ráðið veitir verkefninu styrk að upphæð 500.000 kr.

  1. Soroptimistaklúbbur Kópavogs – 200.000 kr.

Soroptimistaklúbbur Kópavogs hefur árum saman stutt efnaminni fjölskyldur í bænum með reglulegum úthlutunum Bónuskorta. Þetta stuðlar að bættri stöðu fjölskyldna á viðkvæmum tímum og er í samræmi við heimsmarkmið um að draga úr fátækt. Starfið byggir á sjálfboðaliðastarfi og hefur sýnt mikil og vaxandi áhrif í samfélaginu. Ráðið veitir Soroptimistaklúbbnum styrk að upphæð 200.000 kr.

  1. AFSTAÐA – réttindafélag – 200.000 kr.

AFSTAÐA-réttindafélag byggir á faglegri þjónustu og jafningjastuðningi til að efla velferð og jafnrétti einstaklinga í Kópavogi sem tengjast fangelsiskerfinu, með sérstakri áherslu á börn og fjölskyldur sem búa við félagslega áhættu. Ráðið veitir AFSTÖÐU styrk að upphæð 200.000 kr.

  1. Skjólið – Hjálparstarf kirkjunnar – 300.000 kr.

Skjólið er dagúrræði fyrir konur sem búa við heimilisleysi eða óöruggar aðstæður og býður bæði stuðning og aðgang að grunnþjónustu. Þar er boðið upp á næringu, hreinlætisaðstöðu, hvíld og félagslega nærveru. Úrræðið byggir á skaðaminnkandi hugmyndafræði og mótast í samstarfi við þær konur sem nýta þjónustuna. Ráðið veitir Skjólinu styrk að upphæð 300.000 kr.

  1. Samtök um kvennaathvarf – 1.000.000 kr.

Samtök um kvennaathvarf sinna mikilvægri þjónustu fyrir konur og börn sem flýja heimilisofbeldi. Þar er veitt öruggt skjól, fagleg ráðgjöf og stuðningur sem hefur sýnt fram á varanlegan árangur, meðal annars með búsetubrú sem dregur úr endurkomu í ofbeldisaðstæður. Starfið er grundvallarþáttur í baráttunni gegn ofbeldi í nánum samböndum. Ráðið veitir samtökunum styrk að upphæð 1.000.000 kr.

  1. Bergið headspace – 500.000 kr.

Bergið headspace er stuðnings- og ráðgjafasetur sem veitir ungmennum frá 12 – 25 ára faglega ráðgjöf án biðlista og tilvísana. Þjónustan stuðlar að snemmtækum stuðningi, valdeflingu, betri líðan og bættri félagsfærni. Ráðið veitir Berginu styrk að upphæð 500.000 kr.

  1. ADHD samtökin – 100.000 kr.

ADHD samtökin vinna að fræðslu, ráðgjöf og stuðningi fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fagfólk um allt land. Þau gegna mikilvægu hlutverki í að bæta skilning, draga úr fordómum og styðja við börn og fullorðna sem eru með athyglisbrest, ofvirkni og aðrar skyldar raskanir. Starfið kemur einnig til móts við kennara, skóla og íþróttafélög um fræðslu og leiðbeiningar. Ráðið veitir ADHD - samtökunum styrk að upphæð 100.000 kr.

  1. Stígamót – 1.000.000 kr.

Stígamót bjóða upp á gjaldfrjálsa ráðgjöf, viðtöl og hópastarf fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Þjónustan byggir á fagmennsku og valdeflingu og miðar að því að styðja einstaklinga í bata, rjúfa einangrun og efla réttindi þolenda. Ráðið veitir Stígamótum styrk að upphæð 1.000.000 kr.

  1. Bjarkarhlíð – 500.000 kr.

Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis þar sem félagsleg, lögfræðileg og sérhæfð þjónusta er veitt á einum stað. Markmiðið er að tryggja öryggi, aðgengi að réttarvernd og stuðning í kjölfar erfiðra aðstæðna. Þjónustan er lykilþáttur í að koma í veg fyrir frekari skaða og styðja þolendur til bata. Ráðið veitir Bjarkarhlíð styrk að upphæð 500.000 kr.

  1. Matthildur, samtök um skaðaminnkun – 500.000 kr.

Reykur er ný skaðaminnkandi þjónusta, innan samtaka Matthildar sem sinnir einstaklingum sem glíma við þungan vímuefnavanda. Þar er veittur stuðningur, fræðsla og eftirfylgni sem miðar að því að draga úr skaða og styðja fólk inn í meðferð eða endurhæfingu. Þjónustan hefur náð til fjölda ungs fólks á stuttum tíma. Ráðið veitir verkefninu styrk að upphæð 500.000 kr.

  1. W.O.M.E.N in Iceland, Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi – 200.000 kr.

W.O.M.E.N in Iceland, Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, byggja á öflugu sjálfboðaliðastarfi þar sem áhersla er lögð á valdeflingu, fræðslu og jöfnu aðgengi að réttindum kvenna sem glíma við tungumálaerfiðleika og félagslega einangrun. Ráðið veitir W.O.M.E.N in Iceland, Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi styrk að upphæð 200.000 kr.