Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu Kópavogur, Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Kjós ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttahéruðunum, sem saman mynda Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, efna til sameiginlegrar farsældarviku dagana 9.–13. mars 2026.
Í tilefni vikunnar verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í Kópavogi, til dæmis fræðslufundi um farsæld fyrir forsjáraðila og starfsfólk sem starfar með börnum. Þá munu tengiliðir í skólum vekja athygli barna, forsjáraðila og samstarfsfólks á farsæld barna með fjölbreyttum leiðum.
Fræðslufundir sem fram fara á TEAMS:
"Farsældarvikan er kjörið tækifæri til að lyfta upp því góða starfi sem verið er að vinna með börnum í Kópavogi í tengslum við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Við viljum vekja athygli barna og fjölskyldna þeirra á farsæld barna og því að þau hafi greitt aðgengi að tengilið í nærumhverfi sínu sem veitir ráðgjöf og leiðbeinir um kerfið sem oft getur verið flókið að rata um," segir Jóhanna Lilja skrifstofustjóri í innleiðingarteymi farsældar í Kópavogi.
Jákvæð þróun í kjölfar farsældarlaga
Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar innleiðingar farsældarlaganna. Lögin fela í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi.
Fjölbreyttir viðburðir
- Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, í samvinnu við Geðheilsumiðstöð barna, býður upp á hádegiserindi á TEAMS alla vikuna þar sem fjallað verður um börn og skjánotkun, tengsl og samskipti, kvíða, málþroska og streitu í foreldrahlutverkinu.
- Íþróttafélög á svæðinu minna þjálfara á mikilvægt hlutverk sitt þegar kemur að farsæld barna og fræða þá um hvernig þeir geta brugðist við hafi þeir áhyggjur.
- Tengiliðir framhaldsskóla vekja athygli nemenda, foreldra og starfsfólks á sínu hlutverki
- Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leggur áherslu á hlutverk lögreglu í að styðja við börn og fjölskyldur í viðkvæmum aðstæðum.
Sameiginlegt markmið
Von Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins er að Farsældarvikan styrki enn frekar samvinnu á svæðinu. Þegar ólík kerfi tala saman, deila ábyrgð og vinna samkvæmt sameiginlegu verklagi er betur hægt að tryggja að börn fái réttan stuðning á réttum tíma.
Markmiðið er að allt starfsfólk sem vinnur með börnum verði enn öflugra í að nýta verklag farsældar og að foreldrar og börn viti að öll börn hafa aðgengi að tengilið í nærumhverfi sem getur veitt ráðgjöf og leiðbeiningar og komið á samþættingu þjónustu þegar við á.
Nánari upplýsingar