Hamraborgarsvæði tekur stakkaskiptum

Horft til suðurs í átt að Gjábakka, sem sést á myndinni.
Horft til suðurs í átt að Gjábakka, sem sést á myndinni.

550 íbúðir verða á Hamraborgarsvæði Kópavogs samkvæmt fyrirliggjandi tillögu að breyttu Aðalskipulagi og deiliskipulagi sem samþykkt hafa verið til kynningar. Skipulagssvæðið afmarkast af Vallartröð í austur, Digranesvegi í suður, Digranesvegi 1, Hálsatorgi og Hamraborg 8 í vestur og Hamraborg 10 til 38 í norður.

Samkvæmt breytingunni verður svæðið skilgreint sem nýtt þróunarsvæði eða þéttingarsvæði og gert ráð fyrir verslun, þjónustu og íbúðum á svæðinu.

Gömlu bæjarskrifstofur Kópavogs að Fannborg 2, 4 og 6 verða rifnar til að rýma fyrir nýju húsnæði og sama á við um hús við Vallartröð og Neðstutröð. Fyrirhugað er að nýjar íbúðir verði í fjölbreyttum stærðum og þær minnstu verði hægt að kaupa bæði án bílastæðis og geymslu.Nýju húsin verða á bilinu ein til tólf hæðir og verða öll bílastæði neðanjarðar.

Svonefndur mannlífsás, gata fyrir gangandi og hjólandi, mun liggja frá menningarhúsum Kópavogs alla leið að Kópavogsskóla, milli núverandi fjölbýlishúsa sem standa við Hamraborg og nýju húsanna. Gert er ráð fyrir verslun og þjónustu á jarðhæð nýju húsanna. Áhersla verður lögð á að skapa aðlaðandi umhverfi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, og nýta kosti umhverfisins og staðsetningar í miðbæ Kópavogs. Í næsta nágrenni er ein stærsta skiptistöð Strætó á höfuðborgarsvæðinu og þar munu tvær leiðir Borgarlínu stoppa. Þá eru Menningarhús Kópavogs og stjórnsýsla Kópavogsbæjar innan seilingar auk þess að margvíslega þjónustu er að finna í Hamraborg og næsta nágrenni.

„Hamraborgarsvæðið er afar vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu og mikil tækifæri til þéttingar og endurnýjunar á þessu svæði. Við munum leggja áherslu á gott umhverfi fyrir iðandi mannlíf og þjónustu, íbúðir verða af ýmsum stærðum og gerðum en munu meðal annars henta vel þeim sem kjósa bíllausan lífstíl og vilja hafa alla þjónustu í göngufjarlægð,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Kynningarfundur um nýtt skipulag miðbæjar Kópavogs og fyrirhugaða uppbyggingu verður haldinn í desember. Fundinum verður streymt og verður hægt að leggja fyrir spurningar á meðan honum stendur. Að loknum fundi verður upptaka af honum gerð aðgengileg á vefsíðu Kópavogsbæjar. Dagsetning fundarins verður auglýst þegar hún liggur fyrir.

Þess má geta að aðalskipulag fyrir svonefndan Traðarreit eystri hefur verið samþykkt en á honum munu rísa fjölbýlishús með 180 íbúðum samtals. Sá reitur er á milli Menntaskólans í Kópavogi og Kópavogsskóla.

Skipulagi í kynningu - smelltu hér