Lokað fyrir kalt vatn

Loka þarf fyrir allt vatn í Kópavogi fyrir utan vatnsendahverfið (Þing og Hvörf) vegna tengingar á nýjum vatnstanki við veitukerfi bæjarins, lokunin mun standa frá kl 22.00 þann 12. maí næstkomandi og tekur sirka fjóra tíma.

þetta mun ekki hafa áhrif á vatnsöflun til Garðabæjar.
Íbúar gætu átt von á að einhverjum örlitlum óþægindum í stuttan tíma á eftir þegar vatni verður aftur hleypt á kerfið svosem lofttruflanir.

Þá má benda á að gott er að hreinsa síur í blöndunartækjum.