Nemendur í Kópavogi fá spjaldtölvur

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogs og Alexandra Björk Magnúsdóttir nemandi 9. bekk í Hörðuv…
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogs og Alexandra Björk Magnúsdóttir nemandi 9. bekk í Hörðuvallaskóla í Kópavogi að lokinni fyrstu afhendingu spjaldtölva til nemenda í bænum.

Alexandra Björk Magnúsdóttir, elsti nemandi 9. bekkjar Hörðuvallaskóla, tók við fyrstu spjaldtölvunni fyrir hönd nemenda í 8. og 9. bekk skólans í morgun. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti Alexöndru tækið.

„Við höfum alltaf verið stolt af skólunum okkar í Kópavogi, en vitað um leið að það er ekki vænlegt til árangurs að standa í stað, spjaldtölvuvæðing grunnskólanna er byltingarkennt verkefni sem við erum stolt af og hlökkum að hrinda í framkvæmd.“ sagði bæjarstjóri Kópavogs við tækifærið.

Í kjölfarið var vígt glæsilegt húsnæði unglingadeildar Hörðuvallaskóla í Kórnum. Þar hafa verið innréttaðar sjö skólastofur og starfsmannaaðstaða og verða fleiri stofur teknar í notkun um áramót.

Nemendur í 8. og 9. bekkjar Hörðuvallaskóla og annarra grunnskóla í Kópavogi fengu svo afhentar spjaldtölvur í skólastofum sínum og er þar með spjaldtölvuvæðing grunnskóla Kópavogs hafin af fullum krafti.

Tæplega 900 tæki eru afhent að þessu sinni en innleiðing spjaldtölva í grunnskóla í Kópavogi hefst með þessum tveimur árgöngum. Sjötti og sjöundi bekkur fær spjaldtölvur upp úr áramótum og síðustu tveir árgangar næsta haust. Allir grunnskólakennarar í Kópavogi fengu spjaldtölvur í júní síðastliðnum.

Nánar um spjaldtölvuvæðingu í Kópavogi:

Allir kennarar í grunnskólum Kópavogs fengu afhentar spjaldtölvur í júní og sóttu margir þeirra námskeið í sumar til að kynna sér notkun spjaldtölva í kennslu. Með afhendingu spjaldtölvanna í áttunda og níunda bekk hefst innleiðing spjaldtölva í grunnskóla á mið- og unglingastigi í Kópavogi. Sjötti og sjöundi bekkur fær spjaldtölvur upp úr áramótum og síðustu tveir árgangar næsta haust.

Undanfarið hafa farið fram kynningarfundir fyrir foreldra í tengslum við afhendinguna spjaldtölva þar sem farið verður yfir ýmis hagnýt atriði, reglur um notkun tækjanna og aðra skilmála. Þá fá nemendur fræðslu um netöryggi og stafræna borgaravitund í tengslum við afhendingu tækjanna.

Markmið spjaldtölvuvæðingarinnar er að bæta skólastarf í Kópavogi þannig að árangur verði áfram í fremstu röð en áherslur breytist í takt við nýja tíma. Allir nemendur í fimmta til tíunda bekk munu vera með spjaldtölvur frá og með næsta hausti en auk þess fá skólar úthlutað spjaldtölvum sem nemendur í yngri bekkjum munu hafa aðgang að í skólanum.

Nemendur fá Apple iPad spjaldtölvur en sú ákvörðun var tekin að loknu ítarlegu matsferli þar sem margar gerðir spjaldtölva voru skoðaðar. Notaður er umsýsluhugbúnaður sem kallast AirWatch sem gerir kleift að dreifa efni á spjaldtölvurnar, bæði námsbókum og forritum, sem og að rekja staðsetningu tækis ef það týnist og gera það ónothæft sé því stolið.

Tækjunum fylgir ýmis konar hugbúnaður sem nemendur geta nýtt í leik og starfi og þá fá allir nemendur afhent hulstur með spjaldtölvunni til að verja hana gegn skemmdum.