Tilkynning vegna væntanlegs óveðurs

Barn að renna í hálku
Barn að renna í hálku

Vegna veðurs mega börn ekki vera utandyra eftir kl.13.00 í dag. Foreldrar eiga að sækja börn fyrir kl. 14.00 í dag og verður skólum og leikskólum lokað kl. 15.00. Sundlaugum og söfnum Kópavogs verður lokað kl. 14.00 í dag og bæjarskrifstofum kl. 15.00.

Tilkynning neyðarstjórnar Kópavogs er í heild sinni hér að neðan:

Á fundi neyðarstjórnar Kópavogs í morgun var ákveðið að foreldrar verði hvattir til að sækja börnin sín um hádegi í dag í leikskóla, grunnskóla og frístundastarfsemi.

Bendum við á að íbúar fari eftir þeim tímaramma sem er hér að neðan:

 

13:00 – Börn séu ekki utandyra

14:00 – Foreldrar sæki börn ekki síðar í skóla. Stofnunum (þ.e. sundlaugar og söfnum) verður lokað.

15:00 – Bæjarstjórnarskrifstofum, skólum og leikskólum verður lokað.

 Lagt er til að æfingar og önnur frístundastarfsemi sem á að hefjast eftir kl. 15:00 verði felld niður. Spáð er miklu hvassviðri frá 15:00 og fram á nótt.

Íbúar eru hvattir til að binda niður eða tryggja alla lausamuni s.s. sorptunnur, trampólín og grill eða koma þeim í skjól

 

Schools and leisure activities in Kópavogur will be disrupted because of an orange storm warning today Dec. 10. Children should not be outside after 13:00. Authorities urge people to pick up their children before 14:00 hours.

All leisure activities will be cancelled after 15:00 and schools, playschools and Kópavogur City Hall will be closed after 15:00.