Skipulags- og umhverfisráð

26. fundur 16. mars 2026 kl. 15:30 - 17:57 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hjördís Ýr Johnson formaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson varaformaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson aðalfulltrúi
  • Helga Jónsdóttir aðalfulltrúi
  • Leó Snær Pétursson aðalfulltrúi
  • Hákon Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Indriði Ingi Stefánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar, f.h. skipulagsfulltrúa
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.2602026F - Bæjarstjórn - 1335. fundur frá 10.03.2026

2602022F - Skipulags- og umhverfisráð - 25. fundur frá 02.03.2026.



25061878-Naustavör 13. Leikskóli. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs.



2208454-Kársnes þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs.



26011636-Dimmuhvarf 10. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs.





2602011F-Skipulags- og umhverfisráð - 24. fundur frá 16.02.2026

Lagt fram.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

2.2602031F - Bæjarráð - 3248. fundur frá 05.03.2026

2602022F-Skipulags- og umhverfisráð - 25. fundur frá 02.03.2026.



25061878-Naustavör 13. Leikskóli. Breytt deiliskipulag.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.



2208454-Kársnes þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.



26011636-Dimmuhvarf 10. Breytt deiliskipulag.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Almenn erindi

3.26031783 - Arnarland í Garðabæ. Gatnamót Arnarsmára og Fífuhvammsvegar.

Lögð fram tillaga VSB verkfræðistofu f.h. Garðabæjar um breytt fyrirkomulag gatnamóta í Kópavogi við Arnarlandið í Garðabæ við núverandi samgöngukerfi á gatnamótum Fífuhvammsvegar og Arnarsmára. Tillagan gerir ráð fyrir að í megindráttum verði gatnamótin áþekk því sem nú er þar sem áfram verður ein akrein beint yfir gatnamótin og ljósastýrð beygjuakrein af Fífuhvammsvegi til vinstri inn á Arnarsmára. Ný gatnamót verða krossgatnamót í stað T-gatnamóta. Sér akrein verður fyrir vinstribeygjur af Fífuhvammsvegi inn í Arnarland. Til að afmarka aksturslínur og stytta rýmingartíma gatnamóta er gatnamót Arnarsmára við Fífuhvammsveg endurmótuð og stöðvunarlínur færðar nær gatnamótunum. Þjónustustig gatnamóta mun breytast úr þjónustustigi A - Nær engar tafir, yfir í þjónustustig C - Litlar tafir með nýju tengingunni og ljósastýringu á gatnamótunum.

Egill Daði Gíslason deildarstjóri umhverfis og framkvæmda hjá Garðabæ og Thijs Kreukels samgöngusérfræðingur frá VSB verkfræðistofu gerðu grein fyrir erindinu.
Gestir véku af fundi kl. 15:42.

Lagt fram og kynnt.

Gestir

  • Egill Daði Gíslason - mæting: 15:30
  • Thijs Kreukels - mæting: 15:30

Almenn erindi

4.25043616 - Nýbýlavegur 1. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Skipulagslýsing.

Lögð fram að lokinni kynningu tillaga skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2025 að skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir lóðina nr. 1 við Nýbýlaveg. Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni verði breytt úr verslun og þjónustu í íbúðabyggð. Skipulagslýsingin var kynnt á tímabilinu 29. janúar til 1. mars 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma.
Fundarhlé hófst kl. 16:15, fundi framhaldið kl. 17:33.

Skipulags- og umhverfisráð hefur yfirfarið athugasemdir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar og ákveður að heimila ekki frekari vinnu við gerð breytingar á aðalskipulagi á grundvelli fyrirliggjandi skipulagslýsingar dags. 14. nóvember 2025, uppf. 22. janúar 2026.

Bókun:
„Við afgreiðslu málsins er litið til þeirra athugasemda og ábendinga sem bárust á kynningartíma, sem og þeirra skipulagslegu sjónarmiða sem við eiga varðandi landnotkun, byggingarmagn og umhverfi svæðisins. Í ljósi þessa telja undirrituð ástæðu til að heimila ekki frekari vinnu við gerð breytingar á aðalskipulagi. Samkvæmt gildandi aðal- og deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir uppbyggingu verslunar og þjónustu á reitnum. Undirrituð telja mikilvægt að skoða áfram möguleg tækifæri til slíkrar uppbyggingar á lóðinni í samræmi við byggingarmagn í gildandi skipulagi og með tengingu frá Nýbýlavegi.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Með ákvörðun meirihlutans um að auglýsa skipulagslýsinguna á Nýbýlaveg 1 skapaðist óvissa og öryggisleysi hjá íbúum í Lundi. Við fögnum ákvörðun meirihlutans um að fallast á þau sjónarmið og þær áherslur sem við höfum haft í öndvegi frá upphafi þessa máls.“
Hákon Gunnarsson, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Í bókun meirihluta skipulagsráðs 19. janúar 2026 segir: „Í kynningu á skipulagslýsingu gefst tækifæri til að eiga samráð við íbúana enda leggur meirihlutinn ríka áherslu á að skipulagsvinnan fari fram í góðri sátt“. Að auglýsa skipulagslýsingu var upphafið á kynningar- og samráðsferlinu enda hefur alltaf verið lögð áhersla á vönduð vinnubrögð og samráð við íbúa í Lundi. Ferlið hefur sannað gildi sitt, þrátt fyrir margítrekaðar yfirlýsingar minnihlutans um annað.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Víð fögnum stefnubreytingu meirihlutans í málinu. Allt frá árinu 2023 hafa Íbúar í Lundi án árangurs kallað eftir samráði um framtíð lóðarinnar, Raunverulegur vilji til samráðs hefur ekki komið fram fyrr af hálfu meirihlutans.“
Hákon Gunnarsson, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Meirihlutinn furðar sig á þessari bókun minnihlutans. Nú var að ljúka formlegu samráðsferli við íbúa og aðra hagaðila og niðurstaðan er að breyta ekki aðalskipulagi á Nýbýlavegi 1.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Almenn erindi

5.26011426 - Vatnsendablettur 1B. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1B og 510 við Vatnsendablett og landeiganda um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig eru lögð fram verklýsing dags. í mars 2026, skýringarhefti VBV um gatnagerð og lagnir dags. í mars 2026 og minnisblað VBV um gatnagerð, jarðvegsskipti og kennisnið gatna dags. 5. desember 2025.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Almenn erindi

6.25103362 - Skógarlind 1. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Hallgríms Þórs Sigurðssonar arkitekts dags. 31. október 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Skógarlind um breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kópavogs. Spurst er fyrir um tvær tillögur að breytingunum en báðar gera þær ráð fyrir íbúðum, verslunum og þjónustu ásamt bílakjallara. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2026.

Almenn erindi

7.26011572 - Urðarhvarf 10. Byggingaráform.

Lögð fram að uppfærð byggingaráform Brynjars Darra Barldurssonar dags. 5. mars 2026 fyrir lóðina nr. 10 við Urðarhvarf í samræmi við skipulagsskilmála. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 2. febrúar 2026 var byggingaráformunum vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. mars 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. mars 2026 samþykkt.

Almenn erindi

8.26012129 - Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Uppdrættir ásamt greinargerð dags. í febrúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Samþykkt með fimm atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Pétursson og Hákonar Gunnarssonar að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi verði grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 16-20 við Hlíðarhvarf.
Hjördís Ýr Johnson og Helga Jónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Almenn erindi

9.26021783 - Fyrirspurn varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar um lýsingar.

Lögð fram fyrirspurn varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar dags. 9. febrúar 2026 um lýsingu á auglýsingaskiltum á strætóskýlum, lýsingar nærri gangbrautum og hvort sömu reglur gildi um lýsingu á höfuðborgarsvæðinu öllu. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. febrúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar umhverfissviðs. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. mars 2026.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:57.