Aðventuhátíð í Kópavogi

Fjör á aðventuhátíð í Kópavogi 2013.
Fjör á aðventuhátíð í Kópavogi 2013.

Aðventuhátíð Kópavogsbæjar verður haldin næsta laugardag, 29. nóvember.  Tendrað verður á jólatré Kópavogsbæjar á Hálsatorgi, skemmtiatriði verða á torginu, jólahús með varningi og jólalegt fjör af ýmsu tagi í miðbæ Kópavogs þessa fyrstu helgi í aðventu. Í menningarhúsunum verður jólaleg dagskrá, í safnaðarheimili Kópavogskirkju verður sýningin Hönnun og handverk og listamenn í Kópavogi opna vinnustofur sínar.

Hátíðin á Hálsatorgi hefst klukkan tvö þegar élagasamtök úr Kópavogi opna sölubása í jólahúsum og ævintýrapersónur í jólaskapi fara á stjá. Klukkan þrjú hefst dagskrá á sviðinu sem persónur úr ævintýraskógi leikhópsins Lottu kynna, skólahljómsveit  Kópavogs spilar jólalög, sendiherra Svíþjóðar Bosse Hedberg, afhendir vinabæjartréið sem forseti bæjarstjórnar, Margrét Friðriksdóttir, tekur á móti fyrir hönd bæjarins, SamSam systur taka lagið og svo verður slegið upp jólaballi.

Í menningarhúsunum í Kópavogi verður jóladagskrá og ýmis konar góðgæti til sölu í jólahúsum. Í Gerðarsafni verður pop-up eldhús, kökur og jólatónlist í Salnum og skemmti-og fræðsluerindi um jólaköttinn í Safnahúsinu svo eitthvað sé nefnt.

Í safnaðarheimili Kópavogskirkju verður sýningin Hönnun og handverk þar sem gefst einstakt tækifæri til að kynna sér spennandi hönnun úr Kópavogi og kaupa fallegar gjafir í leiðinni.

Þá er hinn árlegi laufabrauðsdagur í félagsmiðstöð aldraðra í Gjábakka er á laugardag og þangað eru allir velkomnir. Laufabrauðsgerðin hefst klukkan eitt og stendur fram eftir degi auk þess sem seldar eru veitingar og boðið upp á margvísleg skemmtiatriði.

Vinnustofur listamanna í Hamraborg og Auðbrekku verða opnaðar gestum og gangandi.

Lesa má dagskrána hér og hér fyrir neðan:

Hálsatorg

Kl. 14.00 Félagasamtök úr Kópavogi opna sölubása og skapa jólastemningu.

Kl. 15.00 Dagskrá hefst á sviðinu. Tendrað á ljósum vinabæjarjólatrés.

Persónur úr Ævintýraskógi Leikhópsins Lottu kynna dagskrána.

Skólahljómsveit Kópavogs spilar jólalög.

Sendiherra Svíþjóðar, Bosse Hedberg, afhendir vinabæjartréð frá Norrköpping.

Forseti bæjarstjórnar, Margrét Friðriksdóttir, tekur á móti jólatrénu fyrir hönd Kópavogsbæjar.

SamSam systur taka lagið.

Jólaball á Hálsatorgi. Jólasveinar, söngur og gleði!

 

Menningarhúsin á Borgarholtinu

Við menningarhúsin á Borgarholtinu verður hugguleg jólastemming og í litlum jólahúsum á torginu við húsin verður góðgæti og varningur til sölu. Aðventuafsláttur í safnbúð Gerðarsafns af öllum gjafavörum og minjagripum.

Gerðarsafn

Kl. 11.00-17.00 Tvær sýningar eru í Gerðarsafni, Hughrif með verkum Hólmfríðar Árnadóttur og Óp/Op með verkum Jóns B. K. Ransu.

Kl. 12.00-17.00 Pop-up eldhús Gerðarsafns.

kl. 15.00 Jón Proppé listheimspekingur leiðir gesti um sýninguna Hughrif.

kl. 16.00 Karlakór Kópavogs.

Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofa

Kl.13.00-17.00 Dýrin í Náttúrufræðistofunni skrýðast jólabúningi og nýjar og gamlar jólabækur til útláns í bókasafninu.

kl. 14.00 Í Kórnum í Safnahúsinu verður boðið upp á skemmti- og fræðsluerindi um jólaköttinn í máli og myndum fyrir 4-6 ára börn. Slóð kattarins verður rakin um húsið og lesin skemmtileg jólasaga. Jólakötturinn verður á kreiki í Safnahúsinu og heilsar upp á krakka.

Salurinn Tónlistarhús Kópavogs

14:00 -17.00 Jólastemning í forsal Salarins. Kaffisala, kökur og jólatónlist.

20:30 Jól í stofunni - jólatónleikar Þórs Breiðfjörð í Salnum. Nánar á www.salurinn.is.

Safnaðarheimili Kópavogskirkju

Kl. 11.00-17.00 Hönnuðir og handverksfólk í Kópavogi sýna skart, fatnað, gler, keramik og muni úr tré. Gott tækifæri til þess að kaupa jólagjafir af listamönnunum sem sjálfir verða á staðnum og kynna vörur sínar.

Félagsmiðstöðin Gjábakka

Í Gjábakka er hinn árlegi laufabrauðsdagur og eru allir velkomnir þangað í ylinn og huggulegheitin. 

Kl. 13.00  Handverksmarkaður opnar og laufabrauðsgerðin hefst.

Kl. 13.30 SamSam systur taka lagið.

Kl. 14.30 Samkór Kópavogs.

Kl. 15.15 Klarinettuhópur Skólahljómsveit Kópavogs.

Veitingar, kaffi og súkkulaði verður afgreitt í kaffiteríu frá kl. 13.30 til 16.30.

Hamraborg og Auðbrekka

Listamenn í Kópavogi hafa tekið sig saman og opna vinnustofur sínar og listasali.

Komið og skoðið listamenninguna í Kópavogi, veitingar í boði og allir velkomnir í jólastemningu og smitandi gott jólaskap.

MEINVILLT í Anarkía, samsýning í Hamraborg 3. Gengið inn að norðanverðu. Opið 29. og 30. nóv. kl. 14.00-18.00.

Glergallerí: Jónas Bragi og Catherine Dodd, Auðbrekku 7. Opið 29. og 30. nóv. kl. 13.00-17.00.

Listamenn ART11, Auðbrekku 4, 3. hæð. Opið 29. og 30. nóv. kl. 13.00-17.00 Gengið inn að ofanverðu.

Listamenn í Auðbrekku 6 (Norm-X húsinu), 2. og 3. hæð. Opið 29. nóv. kl. 13.00-17.00.

Stúdíó Subba, Hamraborg 1-3. Opið 29. og 30. nóv kl. 13.00-17.00.

Vinnustofa Auðbrekku 28-30 2. hæð, gengið inn Löngubrekku megin. Opið 29. nóv. kl. 15.00-18.00.