Áfram jafnrétti, áfram mannréttindi

Óskað er eftir tilnefningum
Óskað er eftir tilnefningum

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar óskar eftir tilnefningum vegna viðurkenningar sem veitt er árlega til stofnunar, einstaklings, félags eða fyrirtækis  sem hafa  unnið að  jafnréttis- og mannréttindamálum  í Kópavogi. 

Til greina koma aðilar sem sinnt hafa jafnréttis- og mannréttindamálum á sviði tómstunda, menningar, fræðslu, velferðar, umhverfis og þess háttar  verkefnum.  

Viðurkenningin verður nú veitt í fimmtánda sinn. 

Tilnefningu til viðurkenningarinnar ásamt rökstuðningi, skal senda til jafnréttisráðgjafa Kópavogs í tölvupósti á netfangið: 

asakr(hjá)kopavogur.isFrestur er til og með 14. nóvember 2016