- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Frestur til að skila inn ljóðum í ljóðasamkeppnina Ljóðstafur Jóns úr Vör rennur út 21. desember. Þetta er í fjórtánda sinn sem lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir til ljóðasamkeppninnar. Í dómnefnd að þessu sinni eru: Gunnþórunn Guðmundsdóttir, bókmenntafræðingur og dósent við Háskóla Íslands, Sindri Freysson, rithöfundur og ljóðskáld og Þórdís Björnsdóttir, rithöfundur og ljóðskáld.
Um þrjú til fjögur hundruð ljóð hafa verið send í keppnina á ári hverju. Veitt verða vegleg verðlaun og fær verðlaunaskáldið auk þess til varðveislu, í eitt ár, göngustaf áletraðan með nafni sínu.
Dómnefnd velur úr þeim ljóðum sem berast. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina en skilafrestur rennur út 21. desember. Ljóðum skal skilað með dulnefni. Nafn, heimilisfang og símanúmer skáldsins skal fylgja með í lokuðu umslagi, sem auðkennt er með sama dulnefni.
Ljóðin mega ekki hafa birst áður. Einungis má senda inn eitt ljóð.
Utanáskrift er:
Ljóðstafur Jóns úr Vör,
Listhús Kópavogsbæjar
Greint verður frá niðurstöðum samkeppninnar og verðlaun veitt á afmælisdegi Jóns úr Vör 21. janúar 2015. Jón úr Vör bjó nánast allan sinn starfsaldur í Kópavogi en tilgangur keppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist.