Götur sópaðar að vori

Götusópun á Borgarholtsbraut í apríl 2024.
Götusópun á Borgarholtsbraut í apríl 2024.

Götusópun að loknum vetri er hafin í Kópavogi.  Eins og venja er er byrjað á stofnbrautum og tengibrautum og að því loknu hafist handa við að sópa húsagötur og gangstéttir. 

Hafist var handa í mars en veður hefur sett strik í reikninginn til þessa því ekki er hægt að sópa þegar hitastig er nálægt frostmarki.