Kársnesskóla skipt í tvo skóla

Kársnesskóli við Vallargerði.
Kársnesskóli við Vallargerði.

Kársnesskóla verður skipt upp í tvo sjálfstæða skóla á skólaárinu 2024 til 2025 samkvæmt tillögu menntasviðs Kópavogsbæjar sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn Kópavogs. Lagt er til að skólanum verði skipt þannig að í húsnæði við Vallargerði verði 5.-10. bekkur og í nýrri skólabyggingu við Skólagerði verði 1.-4. bekkur auk fjögurra deilda leikskóla.

Megin ástæða skiptingar skólans er fjölgun nemenda á Kársnesi. Undanfarin ár hefur nemendafjöldi skólans verið 600-700 og fyrirséð er að enn mun fjölga auk þess sem rekstur leikskólans í nýju húsnæði skólans við Skólagerði mun bætast við. Miðað við núverandi nemendafjölda verða um 430 nemendur í skólanum í Vallargerði en um 360 börn í leik- og grunnskóla í Skólagerði.

„Með því að skipta Kársnesskóla í tvo sjálfstæða skóla verður hægar um vik fyrir skólastjórnendur að hafa góða rekstrarlega og faglega yfirsýn yfir skólastarfið,“ segir Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs. Í Kópvogi hefur þegar verið farin þessi leið með skiptingu Hörðuvallaskóla í tvo skóla, Hörðuvallaskóla og Kóraskóla, og hefur reynslan af því verið mjög góð.

Stjórnendur Kársnesskóla hafa tekið þátt í samráði og undirbúningi vegna fyrirhugaðra breytinga. Á næstu vikum verður auglýst eftir nýjum skólastjórnendum sem munu leiða faglegan undirbúning við þróun samrekins leik- og grunnskóla, sem er nýbreytni í skólastarfi í Kópavogi. Sú vinna verður unnin í samvinnu við skólasamfélagið allt, nemendur, foreldra og starfsfólk.