Fréttir og tilkynningar

Vel heppnaðir íbúafundir um nágrannavörslu
Kópavogsbær hélt tvo opna íbúafundi um nágrannavörslu í október í samstarfi við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Fundirnir voru haldnir í Barnaskóla Kársness 15. október og í Salaskóla 20. október og voru liður í átaki bæjarins til að efla öryggi, samstöðu og samfélagsvitund í hverfum Kópavogs.
Barnaverndarþjónusta Kópavogs leitar að vistforeldrum
Vilt þú veita barni öruggt og hlýlegt heimili þegar á þarf að halda?

Tvær innritanir í leikskóla Kópavogs árið 2027
Á árinu 2027 verður innritað tvisvar í leikskóla Kópavogs, á vorönn og að hausti. Afar vel gekk að innrita börn haustið 2026 og í fyrsta sinn var börnum niður í 12 mánaða og eldri boðið leikskólapláss.

Fimm árum eldri en sterkari og snarpari
Eldri Kópavogsbúar sem tekið hafa þátt í Virkni og vellíðan hafa bætt þol, styrk og snerpu frá því að Virkni og vellíðan hóf göngu sína.

Kópavogsbær sækir fullar heimtur vegna vanefnda verktaka við byggingu Barnaskóla Kársness
Árið 2021 samdi Kópavogsbær við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher um endurbyggingu við Skólagerði en verkið hafði verið boðið út árið 2020. Skólinn heitir í dag Barnaskóli Kársness og er samrekinn leik- og grunnskóli.

Áfangastaðurinn Kópavogur
Í september gaf Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins út samantekt um verkefnið Áfangastaðurinn Kópavogur. Samantektin dregur fram styrkleika bæjarins og tækifæri til að efla hann sem áfangastað.
Auglýst eftir umsóknum um styrki til velferðar- og mannréttindaráðs
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2027

Kópavogsbær ætlar að fjölga kennurum
Leiðbeinendur í grunnskólum í Kópavogi fá námsstyrk til að stunda kennaranám samhliða starfi. Markmið aðgerðarinnar er að fjölga kennaramenntuðu starfsfólki grunnskólanna.

Kópavogur meðal fremstu sveitarfélaga landsins í PISA 2025
Kópavogur og Reykjavík eru einu sveitarfélögin þar sem nemendur mælast yfir landsmeðaltali í lesskilningi, stærðfræðilæsi og vísindum samkvæmt nýrri greiningu á niðurstöðum Pisa 2025.

Vel gengur að innleiða símafrí í grunnskólum Kópavogs
Vel gengur að innleiða sáttmála um símafrí í grunnskólum Kópavogs samkvæmt stöðumati sem unnið var meðal skólastjórnenda bæjarins.

Ný þjónustumiðstöð golfvalla GKG
Samstarfsamningur Kópavogs, Garðabæjar og GKG um uppbyggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar golfvalla GKG hefur verið undirritaður af bæjarstjórum sveitarfélaganna og GKG.

Íbúafundir um nágrannavörslu
Bæjarstjóri í samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu býður til íbúafunda um nágrannavörslu.