Skipulagsbreytingar í takt við breyttar þarfir

Bæjarskrifstofur Kópavogs að Digranesvegi 1.
Bæjarskrifstofur Kópavogs að Digranesvegi 1.

Bætt þjónusta við íbúa, aukin skilvirkni og skýrari hlutverk og ábyrgð stjórnsýslunnar eru meginmarkmið breytinga á stjórnkerfi og skipuriti Kópavogsbæjar sem samþykktar voru í bæjarstjórn Kópavogs á fundi þriðjudaginn 25.febrúar.

Í breytingunum felst að stjórnsýslusvið og fjármálasvið bæjarins eru lögð niður og í stað þeirra verða til fjórar skrifstofur um verkefni sviðanna: Skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Bæjarritari verður í skipuriti næstráðandi bæjarstjóra og verður yfirmaður lögfræðiþjónustu, skjalaþjónustu og þjónustu við bæjarstjóra og fastanefndir. Skrifstofustjórar heyra beint undir bæjarstjóra eins og sviðsstjórar fagsviða.

„Kópavogsbær er stækkandi sveitarfélag og það var orðið tímabært að endurskoða stjórnsýslu bæjarins í takt við breyttar þarfir. Meginmarkmið breytinganna er að skýra og skerpa hlutverk miðlægrar stjórnsýslu. Við ætlum að efla þjónustu við íbúa bæjarins meðal annars með aukinni stafrænni þjónustu. Þá munum við áfram standa vörð um góðan rekstur og ábyrga áhættu- og fjárstýringu með því að efla greiningar á rekstri einstakra málaflokka, þvert á svið og skrifstofur hjá Kópavogsbæ.“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Helstu verkefni nýrra skrifstofa:

  • Skrifstofa umbóta og þróunar: Þverlæg verkefni sem snúa að umbótum og þróun innan sveitarfélagsins, stafræn þjónusta, stuðningur við innleiðingu þeirra stefna sem markaðar hafa verið hjá Kópavogsbæ, þróun stjórnendaupplýsinga og mælaborða, menningarmál, markaðs- og samskiptamál og menningarmál.
  • Skrifstofa þjónustu: Sameinað þjónustuver velferðar- og stjórnsýslusviðs, síma og netmál, kerfis-, rekstrar- og notendaþjónusta og samskipti við ytri birgja varðandi upplýsingatæknimál, mötuneyti, fasteignaumsjón og innkaupamál.
  • Skrifstofa mannauðs- og kjaramála: Verkefni mannauðsdeildar, launabókhald sem og launavinnsla.
  • Skrifstofa áhættu- og fjárstýringar: Stefnumótun og greining á áhættu og fjárfestingum, mörkun áhættustefnu og virkrar áhættustýringar í starfsemi og rekstri Kópavogsbæjar, fasteignastefna og stefna vegna eignarhalds í félögum og skipulega greiningarvinnu þvert á svið, ásamt gerð fjárfestingaráætlana.

Auglýst verður á næstu dögum eftir skrifstofustjórum þriggja af fjórum nýrra skrifstofa: Þjónustustjóra, umbóta- og þróunarstjóra og áhættu- og fjárstýringarstjóra. Núverandi mannauðsstjóri verður yfir skrifstofu mannauðs- og kjaramála.

Framkvæmdastjórn sveitarfélagsins verður í kjölfar breytinganna auk bæjarstjóra skipuð bæjarritara, mannauðsstjóra, þjónustustjóra, áhættu- og fjárstýringarstjóra, umbóta og þróunarstjóra, sviðsstjóra velferðarsviðs, sviðsstjóra menntasviðs og sviðsstjóra umhverfissviðs. Breytingarnar taka gildi um mánaðamót. 

Tillaga að stjórnkerfisbreytingum og nýju skipuriti

Breyting á stjórnskipulagi - kynning bæjarstjóra,

 Úttekt á skipulagi og stjórnarháttum

 Nýtt skipurit: