Jákvæð áhrif í kjölfar breytinga í leikskólum

Breytingar í leikskólum í Kópavogi tóku gildi 1.september síðastliðinn.
Breytingar í leikskólum í Kópavogi tóku gildi 1.september síðastliðinn.

Breytingar á skipulagi leikskólastarfs í Kópavogi hafa gengið vel og haft jákvæð áhrif. Flestir leikskólar eru fullmannaðir og dvalartími barna hefur styst verulega. Námsumhverfi og skipulag leikskóladags allra barna í leikskólum er afslappaðri, áreiti minna og viðvera starfsfólks með börnum er meiri og rólegri. Með sama áframhaldi mun stöðugleiki og gæði í starfi leikskólanna aukast foreldrum og börnum til hagsbóta.

Færri börn eru í leikskólum á morgnana og seinnipart dags sem skapar betri aðstæður og rólegra umhverfi fyrir þau börn sem dvelja lengur á leikskólanum. Þannig hafa breytingarnar jákvæð áhrif fyrir öll börn hversu langur sem dvalartíminn er.

„Þessar fyrstu niðurstöður eru afar jákvæðar sem bendir til þess að breytingarnar, sem byggja á tillögum starfshóps skipaður fulltrúum helstu hagsmunaðila, eru að skila árangri. Að mati leikskólastjóra gengur mönnun í leikskólum mun betur miðað við fyrri ár, dvalartími barna er að styttast og foreldrar eru að nýta sér aukinn sveigjanleika til að stytta daga vikunnar. Markmið breytinganna var að efla leikskólastarfið með betri mönnun og bættri þjónustu, ég trúi ekki öðru en að við séum að ná því markmiði.“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri.

Dvalartími þriðjungs barna hefur verið styttur

Í dag eru tæplega 2.000 börn innrituð íleikskóla Kópavogs. Tæplega þriðjungur foreldra hefur stytt dvalartíma barna sinna og um 19% barna, eru nú skráð í 6 tíma eða minna á dag, samanborið við 2% í fyrra.

Meðaldvalarstundir barna, miðað við samþykktar umsóknir, hafa farið úr 8,1 tíma haustið 2022 niður í 7,5 tíma á dag. Á síðastliðnu skólaári voru 85% barna, um 1.700, í 8 tíma dvöl eða meira en í dag eru um 56% barna, um 1.100, í 8 tíma dvöl eða meira.

Þess má geta að umsóknir breytingu á dvalartíma eru enn að berast og taka fjöldatölur því stöðugum breytingum.

Unnið úr ábendingum frá foreldrum

Í upphafi skólaárs var foreldrum og forsjáraðilum barna í öllum leikskólum Kópavogs boðið á kynningar- og samráðsfundi. Þar komu fram ýmsar fyrirspurnir og ábendingar sem verið er að skoða og vinna úr meðal annars með tilliti til aukins sveigjanleika og áframhaldandi þróunar á skipulagi leikskólastarfs. Upplýsingasíða á heimasíðu bæjarins hefur einnig verið vel nýtt.

Tillögur að breytingum á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla voru samþykktar af bæjarstjórn Kópavogs í sumar og tóku þær gildi 1. september síðastliðinn. Í þeim felst meðal annars sex tíma gjaldfrjáls leikskóli, aukinn sveigjanleiki í skráningu dvalartíma og afsláttur dvalargjalda er tekjutengdur.