Yoga Nidra í Geðræktarhúsinu

Boðið verður upp á Jóga Nidra í Hressingarhælinu.
Boðið verður upp á Jóga Nidra í Hressingarhælinu.

Íbúum Kópavogsbæjar verður næstu vikur boðið í Yoga Nidra í Geðræktarhúsi bæjarins og fer fyrsti tíminn fer fram fimmtudaginn 5.maí og hefst klukkan 16.30.

Geðræktarhúsið stendur við Kópavogsgerði 8. Það var tekið í notkun á síðasta ári og hýsir margvíslega starfsemi sem tengist geðrækt.

Yoga Nidra er öflug hugleiðsluaðferð sem á rætur sínar að rekja til ævaforna jógafræða og er markviss aðferð til andlegrar og líkamlegrar vakningar. Yoga Nidra getur aukið gæði svefns, minnkað streitu og aukið líkamlega vellíðan. Niðurstöður rannsókna hafa leitt i ljós 30 mínútur af Yoga Nidra geti samsvarað fjögurra tíma dúpsvefni.

Í Yoga Nidra tíma er byrjað á léttum yoga stöðum og teygjum, sem henta öllum, áður en lagst er niður á dýnuna og farið í leidda hugleiðslu/slökun.

Iðkendur eru hvattir til að koma með eigin jógadýnu en dýnur verða á staðnum fyrir þá sem ekki eiga. Iðkendur þurfa að koma með hlýtt teppi, púða og jafnvel augnhvílu.

Tímarnir verða sem hér segir: 5.  maí, 12.maí, 19.maí og 2. júní. Tímarnir hefjast kl. 16.30.