Fréttir og tilkynningar

Aðventuhátíð Kópavogs
Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin við Menningarhúsin í Kópavogi laugardaginn 28. nóvember frá 14:30 otil 17:00. Boðið er upp á dagskrá inni í menningarhúsunum en frá 16:20 hefst dagskráin utandyra, tendrað er á jólatré Kóavogsbæjar og slegið upp jólaballi.

Notendaprófun fyrir spjallmenni sem aðstoðar foreldra
Leitað er liðsinni foreldra til þess að prófa nýtt spjallmenni sem hjálpar foreldrum að finna stuðning fyrir börnin sín, aðstoð eða ráðgjöf. Spjallmennið er í þróun hjá SSH en notendaprófin verða í Kópavogi, 30.nóvember.

Bæjarstjórn fundar klukkan 9.30
Bæjarstjórnarfundur hefst klukkan 9.30 þriðjudaginn 24.nóvember í stað 16.00 sem er hefðbundinn fundartími Bæjarstjórnar Kópavogs.

Tendrað á jólastjörnunni á Hálsatorgi
Börn úr leikskólanum Kópavoghvoli og Barnaskóla Kársness sungu og dönsuðu í kringum jólastjörnuna á Hálsatorgi þegar tendrað var á henni í morgun, 20.nóvember.

Tækifæri barna til áhrifa hafa aukist í barnvænu sveitarfélagi
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í starfsemi Kópavogsbæjar hefur haft í för með sér ýmis ný tækifæri fyrir börn í sveitarfélaginu til að hafa áhrif. Barnasáttmálinn fagnar afmæli í dag, 20.nóvember en fimm ár eru síðan Kópavogur fékk fyrst viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag.

Kópavogur verður Jólavogur
Í aðdraganda jóla býður Kópavogur upp á fjölbreytta jóladagskrá fyrir öll sem vilja njóta hátíðanna, eiga góða stund saman og komast í jólaskap.

Hörðuvallaskóli fagnaði 20 ára afmæli
Hörðuvallaskóli fagnaði 20 ára afmæli föstudaginn 13.nóvember og var haldið upp á áfangann með glæsilegri dagskrá, opnu húsi og afmælisköku
Fræðsla um áhættuhegðun unglinga fyrir foreldra og fagfólk
Foreldrahús í samstarfi við Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins býður til fræðslu fyrir foreldra barna og ungmenna á aldrinum 12–18 ára og fagfólk sem vinnur með þessum aldurshópi. Fræðslan er hluti af aðgerðaáætlun Farsældarráðs og Sóknaráætlun Höfuðborgarsvæðisins.
Auglýst eftir umsóknum um styrki til velferðar- og mannréttindaráðs
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2027

Tónlist og málörvun rædd á ráðstefnudegi leikskóla
Starfsfólk leikskóla Kópavogs kom saman á ráðstefnudegi leikskólanna sem fram fór miðvikudaginn 11.nóvember í Barnaskóla Kársness. Þetta er í fyrsta sem efnt er til ráðstefnu fyrir allt starfsfólk á skipulagsdegi leikskólanna.

Upplýsingafundur vegna framkvæmda á Traðarreit vestari
Kópavogsbær býður íbúum til upplýsingafundar 17. nóvember. vegna jarðvinnu á Traðarreit vestari sem hefst á næstunni.

Traustur rekstur í krefjandi umhverfi
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn, þriðjudaginn 10. nóvember. Áætlunin byggir á ábyrgri fjármálastjórn og áframhaldandi uppbyggingu, með áherslu á trausta þjónustu og lágar álögur á íbúa.