5.000 börn setjast á skólabekk

Börn að leik á skólalóð Snælandsskóla.
Börn að leik á skólalóð Snælandsskóla.

Um 5.000 börn setjast á skólabekk í grunnskólum Kópavogs í haust og þar af um 500 börn í 1. bekk. Skólarnir eru settir í dag, þriðjudaginn 24. ágúst, en nákvæmar tímasetningar er að finna á vefsíðum grunnskólanna. 

 

Níu grunnskólar eru í Kópavogi: Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Snælandsskóli, Álfhólsskóli, Smáraskóli, Lindaskóli, Salaskóli, Hörðuvallaskóli og Vatnsendaskóli.