- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins afhenti Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra Kópavogs eldvarnarskóhorn sem eldri borgurum í heimaþjónustu bæjarins verða afhent á næstu vikum.
Skóhornin eru með löngu skafti og útbúin með takka á endanum þannig að hægt er að nota þau til að kanna hvort reykskynjarar á heimilinu séu í lagi án þess að standa uppá stól, sem dregur úr slysahættu.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu festi í vor kaup á skóhornunum í samvinnu við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Skóhornin eru sænsk uppfinning og er góð reynsla af notkun þeirra í Svíþjóð. Með dreifingu skóhornanna eru eldri borgarar hvattir til að fylgjast reglulega með rafhlöðunum í reykskynjurum á heimilinu til að draga úr eldhættu og efla forvarnir.
Frekari upplýsingar: www.shs.is