Heiðruð fyrir 25 ára starf

Á myndinni eru frá vinstri, efsta röð: Sigrún Hulda Jónsdóttir, Ólöf Kristjánsdóttir, Drífa Kristjá…
Á myndinni eru frá vinstri, efsta röð: Sigrún Hulda Jónsdóttir, Ólöf Kristjánsdóttir, Drífa Kristjánsdóttir, Sigrún Hrefna Sverrisdóttir. Miðröð: Björk Berglind Angantýsdóttir, Guðmundína Kolbeinsdóttir, Halldóra Björk Sölvadóttir, Andrea Ingibjörg Gísladóttir. Neðsta röð: Sigurður Óli Bjarnason og Ármann Kr. Ólafsson.

10 starfsmenn Kópavogsbæjar voru heiðraðir fyrir að hafa náð þeim áfanga 2020 að hafa unnið í 25 ár hjá bænum. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti viðurkenninguna í Salnum í Kópavogi við hátíðlega athöfn.

Að þessu sinni skipa hópinn níu konur og einn karlmaður. Vinnustaðirnir sem þau vinna á eru af ýmsu tagi, Þjónustumiðstöð Kópavogs, Bæjarskrifstofurnar, leikskólar, skólar og íþróttahús.

Nöfn þeirra sem voru heiðruð eru:

Andrea Ingibjörg Gísladóttir, Bæjarskrifstofum Kópavogs

Birna Höskuldsdóttir, Fagralundi

Björk Berglind Angantýsdóttir, Álfaheiði

Drífa Sævarsdóttir, Grænatúni

Guðmundína Kolbeinsdóttir, Smáraskóla

Halldóra Björk Sölvadóttir, Álfaheiði

Ólöf Kristjánsdóttir, Kópavogsskóla

Sigrún Hrefna Sverrisdóttir, Kópasteini

Sigrún Hulda Jónsdóttir, Urðarhóli

Sigurður Óli Bjarnason, Þjónustumiðstöð Kópavogs