Lokanir

Lokun vegna framkvæmda.
Lokun vegna framkvæmda.

Vatnsendavegur og Vatnsendahvarf verða lokuð vegna malbikunar á miðviku – og fimmtudagskvöld nk.
Malbikað verður eystri akrein Vatnsendahvarfs (frá Urðarhvarfi), hluti hringtorgs (VEhvarf/VEvegur) og báðar
akreinar Vatnsendavegar milli 2ja hringtorga (við Vatnsendahvarf og við Breiðahvarf). Tímaáætlun framkvæmda
er sem hér segir:

  • (1) 06.09 (MIÐ): Malbikun Vatnsendahvarfs og hluta Vatnsendavegar • 18:30 – 23:00.
  •  (2) 07.09 (FIM): Malbikun Vatnsendavegar • 18:30 – 23:00

Nánar um lokanir
Vísað er til merkinga v/lokunar á meðfylgjandi kortum.

(1) Á meðan á malbikun Vatnsendahvarfs stendur verður akleið til suðurs frá Breiðholstsbraut opin (vestari
akrein). Lokað verður fyrir akstur til norðurs (austari akrein). Sett skulu upp skilti (C) sem lýsa þeirri lokun.
Lokað verður fyrir akleið til norðurs (við Breiðahvarf) og skulu sett upp skilti (C) sem lýsa þeirri lokun auk
lokunarmerkja (A) við hringtorg. Þegar malbikun hefst á Vatnsendavegi verður jafnframt lokað fyrir akleið
til suðurs eftir Vatnsendahvarfi. Sett skulu upp skilti (B) við Breiðholtsbraut sem lýsa þeirri lokun – Einnig
B30.11 (hægri beygja bönnuð) og B30.12 (vinstri beygja bönnun) sbr. kort. Lokunin sjálf (A) skal sett við
Urðarhvarf (þ.a. bílum sé leiðin fær inn í Urðarhvarf).
(2) Á meðan á malbikun Vatnsendavegar stendu verður lokaðar fyrir akstur til norðurs og suðurs en hleypt
verður umferð til og frá í Ögurhvarf, Víkurhvarf og Urðarhvarf um Breiðholtsbraut. Sett skulu upp skilti (B)
og (C) sem lýsa þeirri lokun sbr. meðfylgjandi kort.
Lokun hefur áhrif á umferð um aðliggjandi þvergötur
Lokanir, sem sýndar eru á meðfylgjandi kortum, eru í gangi á bikunardag.
Malbiknu Vatnsendahvarfs miðvikudaginn 6. september 2017
Lokað verður fyrir akstur til norðurs meðan á bikun Vatnsendahvarfs stendur, ef næst að byrja malbikun á
Vatnsendavegi verður lokað fyrir umferð í báðar áttir. (áætlaður lokunartími 18.30 – 23.00).
Malbikun Vatnsendavegs fimmtudaginn 7. september 2017
Lokað verður fyrir akstur í báðar áttir frá Breiðahvarfi að Vatnsendahvarfi meðan á bikun stendur (áætlaður
lokunartím 18.30 – 23.00). Fært er að Víkurhvarfi, Urðarhvarfi og Ögurhvarfi frá Breiðholtsbraut.
Hjáleiðir:
Engar hjáleiðir eru virkar við framkvæmdir þessar. Reikna má með umferðartöfum