- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Margrét Júlía Rafnsdóttir hefur tekið sæti í bæjarstjórn Kópavogs sem fulltrúi VG. Margrét Júlía tekur við af Ólafi Þór Gunnarssyni sem baðst lausnar á fundi bæjarstjórnar 14.nóvember.
Margrét Júlía hefur verið varamaður í bæjarstjórn Kópavogs frá árinu 2010. Hún sat í umhverfis- og samgöngunefnd 2009-2014 og gegndi þar formennsku í tvö ár. Á núverandi kjörtímabili hefur hún verið fulltrúi VG í skipulagsráð og tekur nú einnig sæti í bæjarráði.
Margrét Júlía er verkefnastjóri hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandi. Hún er menntaður kennari með meistaragráðu í umhverfis- og auðlindafræðum.