Bæjarstjórn

1171. fundur 27. febrúar 2018 kl. 16:00 - 18:45 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir aðalfulltrúi
  • Kristinn D Gissurarson varafulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir aðalfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir varafulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Páll Magnússon bæjarritari
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

Önnur mál fundargerðir

1.1802011F - Bæjarráð - 2903. fundur frá 15.02.2018

Fundargerð í 17 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

2.1802016F - Bæjarráð - 2904. fundur frá 22.02.2018

Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

3.1802003F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 235. fundur frá 02.02.2018

Fundargerð í 14 liðum.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa með 10 atkvæðum. Margrét Júlía Rafnsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Önnur mál fundargerðir

4.1802006F - Íþróttaráð - 80. fundur frá 05.02.2018

Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

5.1801022F - Lista- og menningarráð - 85. fundur frá 15.02.2018

Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

6.1802004F - Menntaráð - 21. fundur frá 06.02.2018

Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.1801028F - Skipulagsráð - 24. fundur frá 19.02.2018

Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
  • 7.3 1706372 Kópavogsgöng. Dalvegur 30. Tillaga. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024.
    Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Í tillögunni felst að Kópavogsgöng eru felld út úr skipulagi ásamt því að hluti af opnu svæði við Dalveg 30, OP-10, er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu. Umrædd breyting á aðalskipulagi Kópavogs er unnin samhliða breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 og í samræmi við Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2030 en þar er ekki gert ráð fyrir Kópavogsgöngum. Vinnslutillaga að fyrirhugaðri breytingu var lögð fram í skipulagsráði 19. júní 2017. Skipulagsráð samþykkti að framlögð tillaga verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillagan var kynnt frá 27. janúar 2018. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Vinnslutillagan var jafnfram kynnt á opnu húsi 30. janúar 2018 í Þjónustuveri Kópavogsbæjar og 1. febrúar 2018 í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni. Enginn mætti á kynningarnar.

    Tillagan,- Tillaga vegna breytinga á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, Kópavogsgöng felld úr skipulagi og nýtt svæði fyrir verslun og þjónustu við Dalveg, er sett fram í greinargerð, umhverfismati og uppdrætti dags. í febrúar 2018 unnin af verkfræðistofu VSÓ.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 24 Ása Richardsdóttir bar upp svohljóðandi breytingartillögu: Ég legg til að málið verði afgreitt með tveimur aðskildum atkvæðagreiðslum. Annarsvegar niðurfelling Kópavogsganga og hinsvegar breytingu á opnu svæði nr. 10 í VÞ 22.

    Fundarhlé var gert frá kl. 17:00 til kl. 17:08

    Ása Richardsdóttir greiddi atkvæði með breytingartillögunni, Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við atkvæðagreiðsluna, aðrir greiddu atkvæði gegn breytingartillögunni.

    Skipulagsráð samþykkir með tilvísan til 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar og að hún verði auglýst í samræmi við 31. gr. ofangreindra laga.

    Ása Richardsdóttir sat hjá við atkvæðagreiðsluna.




    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 8 samhljóða atkvæðum. Margrét Júlía Rafnsdóttir, Kristín Sævarsdóttir og Ása Richardsdóttir greiddu ekki atkvæði.
  • 7.4 1709320 Lundur 20 og 22. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Guðmundar Gunnlaugssonar, arkitekts fh. lóðarhafa Lundar 20 og 22 að breyttu deiliskipulagi. Í tillögunni felst a) breytt fyrirkomulag bílastæða við Lund 20 (Lundur 3 eða Gamli Lundur) b) fyrirhugað fjölbýlishús við Lund 22 færist 3 m til vesturs og gert er ráð fyrir inndreginni þakhæð á húsinu með einni íbúð þannig að heildafjöldi íbúða í húsinu verður 7 í stað 6 íbúðir. Fyrirhugað hús hækkar því úr 2 hæðum auk kjallara í 2 hæðir með inndreginni þakhæð auk kjallara. Bílastæðum á lóð er fjölgað úr 8 í 12. Uppdrætti í mkv 1:1000 dags. 1. september 2017. Þá lögð fram yfirlýsing Þorláks Jónssonar fh. húsfélagsins Lundar 20 dags. 22/8/2017. Skipulagsráð samþykkti með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Athugasemdarfresti lauk 22. janúar 2018. Athugasemdir bárust.
    Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomnar athugasemdir og ábendingar dags. 19. febrúar 2018.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 24 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.6 1709734 Melgerði 4. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu tillaga GP arkitekta fh. lóðarhafa að byggingu bílskúrs ásamt geymslu í norðaustur horni lóðarinnar. Samanlagður grunnflötur er áætlaður um 47 m2. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 21. ágúst 2017. Skipulagsráð samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Melgerðis 2, 6 og Borgarholtsbrautar 21, 23. Athugasemdafrestur var til 31. janúar 2018. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Niðurstaða Skipulagsráð - 24 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.7 1711555 Dalaþing 12. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu tillaga GP arkitekta fyrir hönd lóðarhafa Dalaþings 12 dags. 13. nóvember 2017 að breyttu deiliskipulagi á lóðinni.
    Í breytingunni felst að 23 m2 sólstofa er reist á þaki bifreiðageymslu á suðausturhluta hússins. Nýtingarhlutfall a lóðinni hækkar úr 0,26 í 0,28 við fyrirhugaða breytingu. Uppdrættir í mkv. 1:2000 og 1:500. Skipulagsráð samþykkti með tilvísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Dalaþings 8, 9, 10, 11, 13, 14, 15, 16, 17, 18, 20, 22 og 24. Athugasemdafresti lauk 5. febrúar 2018. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 24 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.8 17091076 Vesturvör 40-50. Kársneshöfn. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu tillaga T.ark arkitekta fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Vesturvarar 40 til 50. Í tillögunni er gert ráð fyrir að:
    a) Breyta lóðarmörkum Vesturvarar 40-42 og stækka lóðina úr 8.400 m2 í 13.800 m2. Hluti af norðurhluta lóðarinnar fer undir Vesturvör 44-48. Byggingarmagn er óbreytt 5.000 m2 en grunnflötur minnkar úr 3.900 m2 í 3.700 m2. Nýtingarhlutfall fer úr 0.6 í 0.35. Aðkoma og lega bílastæða breytist en að öðru leiti er umfang og fyrirkomulag byggingar óbreytt.
    b) Breyta lóðarmörkum Vesturvarar 44-48 og stækka lóðina úr 9.000 m2 í 21.100 m2. Lóðin stækkar til vesturs og liggur að grótgarði sem er í umsjá bæjaryfirvalda og lóðarhafa eftir þar til gerðum samningi. Byggingarmagn er óbreytt 4.500 m2. Fallið er frá kröfum um hámarks grunnflöt og byggingarreitur breytist og stækkar. Heimilt er að reisa byggingu sem er 1-2 hæðir í öllum hluta byggingarreits en hámarksbyggingarmagn veldur því að aðeins lítill hluti byggingarinnar verður tvær hæðir. Hámarks vegghæð hækkar úr 10 metrum í 11,5 metra og hámarks mænishæð verður 13,5 metrar. Þakform er frjálst. Hámarks nýtingarhlutfall lóðarinnar er um 0.20. Ekki er gert ráð fyrir bílakjallara en heimild er fyrir að koma geymslum og tæknirýmum fyrir í kjallara. Miðað er við 1 bílastæði á hverja 50 m2 húsnæðis eða um 90 stæði.
    Hluti göngu- og hjólastígs færist til austurs að austurlóðarmörkum Vesturvarar 44-48 með kvöð um almenna göngu- og hjólaleið. Vestan byggingarreitar er gert ráð fyrir opnu athafnasvæði ásamt tveimur afmörkuðum stakstæðum byggingarreitum fyrir smáhýsi tengd starfseminni sem nær út að sjó og grjótgarði.
    c) Breyta lóðarmörkum Vesturvarar 50 en stærð lóðar breytist ekki og verður áfram 2.900 m2. Hámarks byggingarmagn er óbreytt 1.500 m2 sem og hæð byggingarreitar sem er 9 metrar en lögun hans breytist. Aðkoma og lega bílastæða breytist en fjöldi er hin sami. Athugasemdafresti lauk 12. febrúar 2018. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 24 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Ása Richardsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 8 atkvæðum þeirra Margrétar Friðriksdóttur, Ármanns Kr. Ólafssonar, Theódóru Þorsteinsdóttur, Sverris Óskarssonar, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Ýr Johnson, Guðmundar Geirdal og Kristins Dags Gissurarsonar. Ása Richardsdóttir og Kristín Sævarsdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni en Margrét Júlía Rafnsdóttir greiddi ekki atkvæði.
  • 7.11 1802107 Dalbrekka 12. Fjölgun íbúða. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi ASK arkitekta dags. 31. janúar 2018 fh. lóðarhafa Dalbrekku 12 að breyttu deiliskipulagi.
    Í tillögunni felst að hækka Dalbrekku 12 um eina hæð, fjölga um eina íbúð og færa íbúð sem samþykkt var að Dalbrekku 2 að Dalbrekku 12. Hækkun hússins fer ekki upp fyrir samþykktan byggingarreit. Bílastæðum fjölgar um eitt stæði.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 24 Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísan í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.12 1712912 Auðbrekka 7. Byggingaráform. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram erindi Jónasar Braga, fh. lóðarhafa að Auðbrekku 7 samkvæmt tillögu ASK arkitekta dags. 19. febrúar 2018. Í tillögunni felst að fjölga íbúðum úr 6 í 10. Bætt er við einni íbúðarhæð í nyrðri hluta byggingarreitar en hámarkshæð hússins fer ekki yfir hámarkshæð byggingarreitar í samþykktu deiliskipulagi. Gert er ráð fyrir að byggingarreitur stækki til austurs að norðurlóðarmörkum Auðbrekku 9-11 á 1. hæð og kjallarahæðum. Gert er ráð fyrir svölum austan íbúðarhæðar á 3. hæð. Heildarbyggingarmagn eykst úr 1.735 m2 og verður eftir breytingu 2.000 m2. Bílastæðum fjölgar um tvö stæði.
    Tilagan er sett fram á uppdrætti í hkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum dags. 19. febrúar 2018.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 24 Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísan í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

8.1801011F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 95. fundur frá 06.02.2018

Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

9.1802009F - Velferðarráð - 23. fundur frá 12.02.2018

Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.1802001F - Öldungaráð - 3. fundur frá 08.02.2018

Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11.1802456 - Fundargerð 365. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 13.02.2018

Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.1802150 - Fundargerð 384. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.02.2018

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.1802272 - Fundargerð 281. fundar stjórnar Strætó bs. frá 02.02.2018

Fundargerð í 8 liðum.
Jafnframt eru lögð fram fjögur fylgiskjöl : Sameiginlegt útboð um kaup á þjónustu vegna ytri endurskoðunar, dags. 24. janúar 2018, húsaleigusamningur um Hestháls 14, bréf frá starfsmönnum Náttúrufræðistofnunar, dags. 23. janúar 2018 og bréf frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, dags. 22. janúar 2018.
Lagt fram.

Kosningar

14.1705174 - Kosning í öldungaráð

Kosning eins varafulltrúa í Öldungaráð sbr. 3. gr. samþykktar um ráðið.
Guðmundur Geirdal kjörinn varafulltrúi í öldungarráð.

Fundi slitið - kl. 18:45.