Bæjarstjórn

1334. fundur 24. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:50 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ásdís Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Einar Örn Þorvarðarson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Önnur mál fundargerðir

1.2601029F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 436. fundur frá 30.01.2026

Fundargerð í tíu liðum.
Bæjarstjórn staðfestir fundargerð byggingarfulltrúa með 9 atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.

Önnur mál fundargerðir

2.2602002F - Bæjarráð - 3246. fundur frá 12.02.2026

Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

3.2602023F - Forsætisnefnd - 250. fundur frá 19.02.2026

Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 18:23, fundi fram haldið kl. 18:48.

Bókun:
"Undirrituð árétta að siðareglur kjörinna fulltrúa eiga ekki að vera tæki til að aga pólitíska andstæðinga, heldur sameiginlegur mælikvarði sem á að gilda jafnt um alla kjörna fulltrúa, óháð því hvort viðkomandi sitji í meirihluta eða minnihluta. Undirrituð telja nauðsynlegt að til staðar séu skýr viðmið um það hvort, hvenær og með hvaða hætti forsætisnefnd hlutast til um störf og framgöngu kjörinna fulltrúa, og að þau gildi jafnt fyrir alla. Við bíðum niðurstöðu forsætisnefndar sem í apríl 2025 frestaði afgreiðslu tveggja mála og fól starfsmanni nefndarinnar að afla upplýsinga um í hvaða farveg álitamál varðandi siðareglur eigi að fara innan stjórnkerfisins."

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
Kolbeinn Reginsson
Bergljót Kristinsdóttir
Einar Örn Þorvarðarson


Bókun:
"Undirrituð hafa orðið vör við opinbera umfjöllun og framgöngu kjörins fulltrúa þar sem notaður hefur verið titill bæjarfulltrúa í tengslum við umfjöllun um mál sem varða sveitarfélagið, auk birtingar efnis um starfsfólk bæjarins á opinberum vettvangi. Undirrituð árétta að samkvæmt siðareglum kjörinna fulltrúa ber þeim að sýna háttvísi, ábyrgð og virðingu í samskiptum og gæta þess að framganga þeirra grafi ekki undan trausti á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Undirrituð telja mikilvægt að þessi sjónarmið séu höfð að leiðarljósi í störfum kjörinna fulltrúa og í allri opinberri umfjöllun um málefni sveitarfélagsins.
Leggja undirrituð áherslu á að kjörnir fulltrúar beri sérstaka ábyrgð þegar þeir tjá sig opinberlega, ekki síst þegar fjallað er um einstaklinga í störfum sínum og að opinber umfjöllun skuli ávallt vera málefnaleg og í samræmi við siðareglur."

Hjördís Ýr Johnson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Björg Baldursdóttir
Andri S. Hilmarsson

Önnur mál fundargerðir

4.2602009F - Velferðar- og mannréttindaráð - 14. fundur frá 09.02.2026

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
  • 4.4 2401489 Reglur um fjárhagsaðstoð
    Lagðar fram til afgreiðslu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð. Niðurstaða Velferðar- og mannréttindaráð - 14 Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð og vísar þeim áfram til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð.
  • 4.6 2602490 Bókun 622. fundar stjórnar SSH. Vegna bráða- og viðbragðsteymis barna og ungmenna
    Lagður fram til afgreiðslu samstarfssamnningur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna miðlægs bráða-og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna ásamt drögum að verklagsreglum teymisins. Niðurstaða Velferðar- og mannréttindaráð - 14 Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samstarfssamning ásamt verklagsreglum og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan samstarfssamning ásamt verklagsreglum vegna miðlægs bráða-og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna.

Önnur mál fundargerðir

5.2601033F - Menningar- og mannlífsnefnd - 11. fundur frá 04.02.2026

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

6.2602851 - Fundargerð 622. fundar stjórnar SSH frá 02.02.2026

Fundargerð 622. fundar stjórnar SSH frá 02.02.2026.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.2602540 - Fundargerð 40. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.12.2025

Fundargerð 40. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.12.2025.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

8.2602542 - Fundargerð 41. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 03.02.2026

Fundargerð 41. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 03.02.2026.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 18:50.