Fréttir

Tilkynningar

Viðburðir

30.06.2025 kl. 09:00 - Náttúrufræðistofa Kópavogs

Vísindaskóli Náttúrufræðistofu Kópavogs

Sumarnámskeið Vísindaskóla NátKóp í júlí Leynist lítill vísindamaður heima hjá þér? Náttúrufræðistofa Kópavogs stendur fyrir sumarnámskeiði fyrir börn á aldrinum 8-12 ára, Vísindaskólanum, dagana 30. júní til 4. júlí annars vegar og svo endurtekið 11.-15. ágúst hins vegar. Í Vísindaskólanum fá forvitnir krakkar tækifæri til að læra um skordýr, fugla, fjöruna, veðrið og plöntur. Áhersla er lögð á útiveru til að kynnast náttúrunni í nærumhverfi Náttúrufræðistofu Kópavogs. Umsjónarmenn námskeiðsins eru þau Hulda Margrét Birkisdóttir og Sævar Helgi Bragason hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs. Njóta þau auk þess liðsinnis annarra sérfræðinga. Verð: 11.500 kr Skráning mun vera í boði á Abler von bráðar.
04.07.2025 kl. 11:00 - Bókasafn Kópavogs

Get together

Get Together meet-ups will be held at the Library in Kópavogur, on the first floor in the Tilraunastofa - meeting room. The meet-ups are international meetings open to refugees, asylum-seekers, immigrants, and anyone seeking companionship. Whether you're a family or an individual, you're welcome to join us. Each week, we gather and do relaxing activities like painting, weaving, crafting, and more. It's all about getting together, making new friends, and sharing stories in a warm, supportive space.Get Together meet-ups are a collaboration between GETA aid organization and the Library in Kópavogur.We offer free coffee and treats for everyone! These meet ups are a part of the project The library in a multilingual society sponsored by Nordplus and Bókasafnasjóður. Get Together heldur alþjóðlegan fjölskyldu- og vinahitting á Bókasafni Kópavogs, á fyrstu hæð í Tilraunastofunni. Þetta er alþjóðlegur hittingur fyrir flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur og öll sem vilja félagsskap.Viðburðurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Í hverri viku munum við hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að mála, prjóna, föndra o.fl. Í Get together hittum við nýja vini og deilum sögum okkar í þægilegu og öruggu umhverfi. Get Together er samstarfsverkefni milli GETA hjálparsamtök og Bókasafn Kópavogs. Við munum bjóða upp á kaffi og með því! Þessi viðburður er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölþjóðlegu umhverfi sem er styrkt af Nordplus og Bókasafnasjóði.
05.07.2025 kl. 17:00 - Gerðarsafn

Hóphugleiðsla fyrir laugardagskvöld | Skapandi sumarstörf

Á milli 17:00 og 17:50, laugardaginn 5. júlí, mun leikhópurinn Hlæja og gráta efna til hóphugleiðslu í Gerðarsafni sem gírar fólk upp fyrir helgina. Lesnar verða upp möntrur sem geta hjálpað fólki að fá aukið sjálfstraust, vera betri vinur vina sinna, ná betri árangri í ástarlífinu og komast í gott hugarfar fyrir laugardagskvöldið. Hvort sem þú ert á leiðinni á stefnumót, brúðkaup, lopapeysu, afmæli eða djammið þá mun þessi hugleiðsla vera lykillinn að ánægjuríkri helgi. Manifestaðu besta kvöld lífs þíns. Viðburðurinn er hluti af verkefni leikhópsins Hlæja og gráta í skapandi sumarstörfum í Kópavogi. Leikhópurinn hefur sett upp tvær leiksýningar í Kópavogsbæ en í ár vinna þau að hugleiðslum í formi útvarpsþátta sem kallast Ímyndaðu þér. Með verkefninu vill hópurinn kanna mörk hugleiðslunnar og á að hver hugleiðsla að vera einstök upplifun með óhefðbundna áherslu. Hugleiðsla getur verið hjálplegt tól til að beisla streymi óstýrilátra hugsana. Aftur á móti getur hugmyndin um að setjast niður og gera ekkert nema hugleiða hljómað alveg drepleiðinlega. Með verkefninu hyggst leikhópurinn gera hugleiðslu spennandi fyrir meðalmanninn. Ef þér leiðist hugleiðsla verða þættirnir í það minnsta skemmtilegir. Hægt er að nálgast þættina á vefsíðu leikhópsins, https://hlaejaoggrata.com/.
07.07.2025 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Bróderíklúbburinn á Lindasafni

Ertu byrjandi eða með áralanga reynslu af bróderíi? Viltu kannski rifja upp gamla takta og hitta aðra sem deila sama áhuga? Þá gæti Bróderíklúbburinn hentað fyrir þig. Bróderíklúbburinn hittist á mánudögum á Lindasafni í Núpalind 7 kl. 14:00. Öll velkomin og heitt á könnunni.
08.07.2025 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman hittist alla þriðjudaga á 2. hæð aðalsafns kl. 10. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman | Bókasafn Kópavogs
09.07.2025 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.
09.07.2025 kl. 15:00 - Bókasafn Kópavogs

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Alla miðvikudaga í sumar bjóðum við upp á sumarsmiðjur bæði á aðalsafni í Hamraborg 6a og Lindasafni í Núpalind 7 kl. 15:00-17:30, þar sem Gloría bókasafnskisa verður í sviðsljósinu. Komdu og búðu til kisugrímur, kisubókamerki, dýrafígúrur, kort, litaðu skemmtilegar söguhetjur eða taktu þátt í lista- og náttúrusmiðju Náttúrufræðistofu. Smiðjurnar verða rúllandi og mun hver smiðja bjóða upp á eitthvað af ofantöldu. Þá verður umhverfisofurhetjan í gangi í allt sumar þar sem börn geta leyst umhverfistengd verkefni og fengið verðlaun. Sumarlesturinn verður að sjálfsögðu á sínum stað þar sem börn geta farið í ævintýraferð með Lindu landnámshænu.
10.07.2025 kl. 17:00 - Salurinn

Los Bomboneros | Sumartónar í Salnum

Í sumar býður Salurinn gestum sínum enn og aftur í ljúfa tónlistarupplifun í forsal Salarins, en að þessu sinni undir nýju nafni – Sumartónar í Salnum. Sumartónar í Salnum eru í anda Sumardjazz tónleikaraðarinnar sem Salurinn hefur boðið upp á undanfarin sumur og slegið hefur rækilega í gegn. Með nýju sniði bjóðum upp á fjölbreyttari tónlistarupplifun þar sem fleiri tónlistarstefnur fá að njóta sín. Tónleikarnir fara fram á fimmtudögum í júní og júlí kl. 17:00-18:00. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. Léttar veitingar verða til sölu. --- Hljómsveitin Los Bomboneros kemur fram í Salnum 10. júlí. Hljómsveitina skipa Alexandra Kjeld (söngur, bassi), Daníel Helgason (tresgítar), Kristofer Rodriguez Svönuson (slagverk og bæjarlistamaður Kópavogsbæjar), Matthías M. D. Hemstock (slagverk) og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir (básúna, fiðla, söngur). Hljómsveitin hefur sérhæft sig í tónlist Mið- og Suður-Ameríku ásamt frumsömdu efni og hefur koma víða fram við miklar vinsældir tónleikagesta en tónleikar sveitarinnar eiga það gjarnan til að breytast í funheitt danspartý.
11.07.2025 kl. 11:00 - Bókasafn Kópavogs

Get together

Get Together meet-ups will be held at the Library in Kópavogur, on the first floor in the Tilraunastofa - meeting room. The meet-ups are international meetings open to refugees, asylum-seekers, immigrants, and anyone seeking companionship. Whether you're a family or an individual, you're welcome to join us. Each week, we gather and do relaxing activities like painting, weaving, crafting, and more. It's all about getting together, making new friends, and sharing stories in a warm, supportive space.Get Together meet-ups are a collaboration between GETA aid organization and the Library in Kópavogur.We offer free coffee and treats for everyone! These meet ups are a part of the project The library in a multilingual society sponsored by Nordplus and Bókasafnasjóður. Get Together heldur alþjóðlegan fjölskyldu- og vinahitting á Bókasafni Kópavogs, á fyrstu hæð í Tilraunastofunni. Þetta er alþjóðlegur hittingur fyrir flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur og öll sem vilja félagsskap.Viðburðurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Í hverri viku munum við hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að mála, prjóna, föndra o.fl. Í Get together hittum við nýja vini og deilum sögum okkar í þægilegu og öruggu umhverfi. Get Together er samstarfsverkefni milli GETA hjálparsamtök og Bókasafn Kópavogs. Við munum bjóða upp á kaffi og með því! Þessi viðburður er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölþjóðlegu umhverfi sem er styrkt af Nordplus og Bókasafnasjóði.
13.07.2025 kl. 14:00 - Menning í Kópavogi

Lautarferðin

Komið með í Lautarferð! Boðið er upp á á ljúfa tóna í grennd við frábær útivistasvæði Kópavogs. Fyrri viðburðurinn verður í Vinabæjarlundi í Kópavogsdal (neðan við Digraneskirkju) kl 14, þann 13. júlí næstkomandi. Hugmyndin er sú að fólk mæti, njóti lifandi tónlistar, með teppi og snarl í góðra vina hópi. Viðburðirnir bera heitið „Lautarferðin“ og bjóða upp á dýrmæta blöndu af lifandi tónlist, lautarstemningu og útivist. Tónlistarkonan MGT hitar upp með léttri raftónlist og Marína Ósk mun svo spila fyrir okkur á þessum tónleikum. Tónlist Marínu Óskar dansar á mörkum kántrí-, folk-, jazz- og popptónlistar og leikur hún sér frjálst og flæðandi að blanda saman tónlistarstílum. Lagasmíðar hennar, sem eru bæði á ensku og íslensku, eru lagrænar og grípandi. Marína hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin á dögunum fyrir Jazzsöng ársins 2024 en árið 2022 hlaut hún þau einnig, þá fyrir Jazztónsmíðar ársins. Á tónleikunum mun hún leika lög úr eigin lagasmíðabálki, m.a. af nýútkominni þriðju plötu sinni, Oh, Little Heart, og mega áheyrendur búast við mjúkri og hjartavermandi tónleikaupplifun. Viðburðurinn er styrktur af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs.
14.07.2025 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Bróderíklúbburinn á Lindasafni

Ertu byrjandi eða með áralanga reynslu af bróderíi? Viltu kannski rifja upp gamla takta og hitta aðra sem deila sama áhuga? Þá gæti Bróderíklúbburinn hentað fyrir þig. Bróderíklúbburinn hittist á mánudögum á Lindasafni í Núpalind 7 kl. 14:00. Öll velkomin og heitt á könnunni.
15.07.2025 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman hittist alla þriðjudaga á 2. hæð aðalsafns kl. 10. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman | Bókasafn Kópavogs
Fleiri viðburðir