Spurt og svarað

Reiknivél leikskólagjalda

Reiknivél leikskólagjalda er aðgengileg á vef bæjarins. Hægt er að nota hana til þess að skoða hvernig leikskólagjöld koma út miðað við dvalartíma barns. Bent er á að hægt er að hafa mismunandi dvalartíma milli daga og að öll stytting á dvalartíma kemur til lækkunar á leikskólagjöldum. Útreikningur leikskólagjalda byggir á nákvæmu meðaltali dvalartíma á dag og geta dvalargjöld því verið milli gjaldflokka eins og þeir birtast í gjaldskrá. Í reiknivélinni er einnig unnt að setja inn afslætti eftir því sem við á. Sjá nánar um afslætti hér að neðan.

Reiknivél leikskólagjalda

Hvar get ég komið með ábendingar varðandi breytingar í leikskólamálum?

Foreldrar geta komið með ábendingar og sent fyrirspurnir á netfangið leikskolatillogur(hjá)kopavogur.is

Gjaldfrjáls sex tíma dvöl í leikskóla – hvað felst í því?

Þann 1. september 2023 tók ný gjaldskrá fyrir leikskóla gildi. Samkvæmt henni eru dvalargjöld gjaldfrjáls fyrir dvöl allt að sex tíma á dag en áfram eru greidd fæðisgjöld. Dvalargjöld fyrir dvöl umfram sex tíma á dag tóku hækkunum og fara stigvaxandi með auknum dvalartíma.

Gert er ráð fyrir að dvöl hefjist eigi síðar en kl. 9:00 að morgni. Þannig reiknast sex tíma dvöl frá þeim tíma sem barn er skráð til dvalar að morgni. Dæmi: Ef dvöl hefst kl. 8:00 að morgni er sex tíma gjaldfrjálsri dvöl lokið kl. 14:00 en kl. 15:00 ef dvöl hefst kl. 9:00.

Minnsti dvalartími á dag er fjórar klukkustundir. Foreldrar/forsjáraðilar hafa þannig ákveðið svigrúm til að skrá mismunandi dvalartíma fyrir hvern dag. Greitt er fyrir dvalartíma á viku sem er umfram sex tíma meðaltalsdvöl á dag. Dæmi: Ef barn dvelur þrjá daga í sex klst., einn dag í átta klst., og einn dag í fjórar klst. er heildardvalartími á viku 30 klukkustundir og dvölin því gjaldfrjáls.

Hvernig óska ég eftir nýjum dvalartíma í leikskóla barnsins míns?

Foreldrar/forsjáraðilar skrá beiðni um dvalartíma í þjónustugátt. Hægt er að skrá dvalartíma í 15 mín, 30 mín, 45 mín, eða í heila klukkustund. Alla jafna er þess óskað að dvalartími haldist óbreyttur í að minnsta kosti 2-3 mánuði en sá sveigjanleiki er fyrir hendi að breyta lengd dvalar í undantekningartilvikum gerist þess þörf.

Leikskólastjóri þarf að samþykkja beiðni um dvalartíma hverju sinni. 

Er leikskóli í alvöru gjaldfrjáls fyrir 6 tíma dvöl?

Leikskóli er gjaldfrjáls fyrir 6 tíma dvöl á dag en greidd eru fæðisgjöld samkvæmt gjaldskrá. Ný gjaldskrá dvalar- og fæðisgjalda tekur gildi 1. september .

Eru einhver takmörk fyrir því klukkan hvað dvöl barna getur hafist?

Já, skráður dvalartími getur ekki hafist seinna en 09:00 á degi hverjum. Lágmarksdvalarlengd er 4 klukkustundir á dag, hvern dag vikunnar. Dvalartími getur verið sveigjanlegur umfram 4 klukkustundir. 

Getur dvalartími verið mismunandi milli daga?

Já, hægt er að hafa mismunandi dvalartíma milli daga en lágmarksdvalarlengd er 4 klukkustundir á dag. Breytingar á dvalartíma eru gerðar í þjónustugátt. Við útreikning leikskólagjalda er miðað við meðalfjölda dvalartíma á dag.

Sem dæmi þá er hægt að skrá barna í 8 tíma dvöl þrjá daga vikunnar og 6 tíma tvo daga, samtals 36 tíma á viku og taka leikskólagjöld mið af því. 

Einnig er hægt að skrá barn í 7,5 tíma fjóra daga vikunnar og 4 tíma einn dag, samtals 34 tíma á viku og taka leikskólagjöld mið af því. 

Alla jafna er þess óskað að dvalartími haldist óbreyttur í að minnsta kosti 2-3 mánuði en sá sveigjanleiki er fyrir hendi að breyta lengd dvalar í undantekningartilvikum gerist þess þörf.

Hvaða áhrif hefur það á starfsumhverfi leikskóla að stytta dvalartíma barna?

Öll stytting hefur jákvæð áhrif á leikskólastarfið, minnkar álag, styrkir faglegt starf og auðveldar mönnun. Styttri dvalartími hefur jákvæð áhrif á börnin sem og skipulag og starfsemi leikskóla. 

Við útreikning leikskólagjalda er miðað við meðalfjölda dvalartíma á dag. Ef foreldrar stytta dvalartíma eins og kostur er lækka leikskólagjöld í samræmi við það.

Eru einhver takmörk fyrir því klukkan hvað dvöl barna getur hafist?

Já, skráður dvalartími getur ekki hafist seinna en 9 á degi hverjum. Lágmarksdvalarlengd eru 4 klukkustundir á dag, hvern dag vikunnar. Dvalartími getur verið sveigjanlegur umfram 4 klukkustundir.

Tekjutengdur afsláttur – hvað felst í því?

Frá 1. september 2023 býðst foreldrum/forsjáraðilum að sækja um tekjutengdan afslátt.  Sjá reglur um tekjutengda afslætti frá 1. janúar.

Tekjutengdir afslættir
Hægt er að sækja um tekjutengdan afslátt á umsóknarvef. Umsókn um afslátt þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt. Frekari upplýsingar um tekjutengdan afslátt er að finna í reglum um tekjutengdan afslátt.

Einstæðir   Í sambúð
Tekjuviðmið Afsláttur   Tekjuviðmið Afsláttur
0 kr. ‑ 514.440 kr. 50%   0 kr. ‑ 738.109 kr. 50%
514.440 kr. ‑ 838.761 kr. 40%   738.110 kr. ‑ 1.095.982 kr. 40%
838.762 kr. ‑ 883.496kr. 30%   1.095.983 kr. ‑ 1.140.716 kr. 30%

883.497 kr. ‑ 928.229 kr.

20%   1.140.717 kr. ‑ 1.185.449 kr. 20%

928.230 kr. ‑ 972.963 kr.

10%   1.185.450 kr. ‑ 1.230.184 kr. 10%

 

Hægt er að sækja um afslátt af leikskólagjöldum.

Hægt verður að sækja um tekjutengda afslætti í þjónustugátt þegar opnað hefur verið fyrir umsóknir.

Hvað er tekjutengdur afsláttur hár?

Tekjutengdur afsláttur er mismunandi, hann er frá 10-50% af dvalargjöldum leikskóla skv. tekjuviðmiðum - sjá gjaldskrá.

Ný tekjuviðmið tóku gildi 1. október 2025. Sjá reglur um tekjutengda afslætti frá apríl 2025.

Hvar sæki ég um tekjutengdan afslátt?

Sótt er um tekjutengdanafsátt í þjónustugátt

Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að fá tekjutengdan afslátt?

Tekjuviðmið fyrir einstæða foreldra/forsjáraðila miðast við að heildartekjur séu á bilinu 0- 972,963 kr. á mánuði og er afslátturinn í þrepum frá 10-50%. Tekjuviðmið fyrir sambúðarfólk miðast við að heildartekjur séu 0- 1.230.184 kr. á mánuði og er afslátturinn í þrepum frá 10-50%. Ný tekjuviðmið tóku gildi frá 1. október 2025. 

Hvað með aðra afslætti, svo sem fyrir öryrkja, einstæða og námsmenn?

Tekjutengdir afslættir koma í stað afsláttar fyrir öryrkja, afsláttar fyrir einstæða og námsmannaafsláttar. Systkinaafsláttur helst óbreyttur og er eini afslátturinn sem reiknast ofan á aðra afslætti.

Hvernig virkar systkinaafsláttur?

Systkinaafsláttur reiknast af dvalargjöldum en ekki fæðisgjöldum. Systkinaafsláttur fer eftir fjölda yngri systkina. Við útreikning á systkinaafslætti leikskólabarna eru talin með öll yngri systkini sem eru í leikskóla eða hjá dagforeldri.

Systkinaafsláttur í leikskóla er 50% ef barn á eitt yngra systkin, en 100% ef barn á tvö yngri systkini eða fleiri.

Systkinaafsláttur í frístund grunnskóla er 30% ef barn á eitt yngra systkin, 75% ef barn á tvö yngri systkini og 100% ef barn á þrjú yngri systkini eða fleiri sem eru í frístund, leikskóla eða hjá dagforeldri.

Systkinaafsláttur er eini afslátturinn sem reiknast ofan á aðra afslætti.

Ekki þarf að sækja sérstaklega um systkinaafslátt þar sem hann reiknast sjálfkrafa í skráningarkerfinu Völu sem heldur utan um skráningar barna hjá dagforeldrum, sem og í leikskóla og frístund.

Hvernig verður leikskólastarfi háttað í kringum jól og nýár, í dymbilviku og í vetrarfríum?

Gert er ráð fyrir að flestir leikskólar verði lokaðir milli jóla og nýárs, í dymbilviku og í vetrarleyfum. Til að mæta þeim foreldrum/forsjáraðilum sem þurfa á að halda verða þó ávallt opnir að lágmarki tveir leikskólar, eða fleiri í samræmi við fjölda þeirra barna sem óska eftir dvöl þessa daga. Sótt er sérstaklega um leikskóladvöl þessa daga. Tryggt verður að starfsfólk í heimaleikskóla viðkomandi barna sinni þeim þá daga sem einstaka skólar verða lokaðir.

Leikskólagjöld verða felld niður hjá þeim sem ekki nýta þjónustu þá daga sem lokað er.

Hægt verður að sækja um leikskóladvöl þá daga sem starfsemi er skert þegar nær dregur.

Af hverju er verið að takmarka starfsemi í kringum jól og nýár, í dymbilviku og í vetrarfríum?

Markmið lokana er að draga úr álagi á leikskólastarfið og bæta starfsaðstæður barna og starfsfólks í leikskólum, meðal annars með tilliti til skipulags og breytinga á vinnufyrirkomulagi starfsmanna. Starfsfólki er þannig gert kleift að taka út vinnutímastyttingu á þessum dögum, sem dregur úr álagi og skapar meiri gæðaviðveru starfsfólks með börnum innan leikskóladagsins. Jafnframt er með þessu skapað aukið samræmi milli starfsumhverfis leikskóla og grunnskóla.

Reynslan hefur sýnt að mun færri börn mæta í leikskólann á þessum tímabilum. Tryggt verður að öll börn sem þess óska, fái örugga og góða leikskóladvöl á þessum dögum og kunnugleg andlit úr þeirra heimaskóla mæti þeim í þeim leikskólum sem eru opnir hverju sinni.

Hvernig sæki ég um dvöl fyrir barnið mitt þá daga sem flestir leikskólar verða lokaðir?

Foreldri/forsjáraðili sækir um dvöl í þjónustugátt þegar opnað verður fyrir umsóknir. Umsóknarfrestir verða auglýstir tímanlega fyrir hvert tímabil. Foreldrar/forsjáraðilar eru ábyrgir fyrir því að sækja um dvöl fyrir börn sín þá daga sem almennt er lokað.

Þarf að borga gjöld þá daga sem flestir leikskólar verða lokaðir?

Gjöld falla niður fyrir þá sem ekki nýta sér þjónustuna þá daga sem flestir leikskólar eru lokaðir, milli jóla og nýárs, í vetrarfríum og í vetrarfríum (október/febrúar). Þeir sem nýta sér þjónustu þessa daga greiða dvalargjöld eftir skráðri dvalartíma

Heimgreiðslur til foreldra – hvað er það og hver er upphæðin?

Heimgreiðslur voru teknar upp haustið 2023 fyrir foreldra/forsjáraðila barna sem ekki eru í vistun í leikskóla eða hjá dagforeldri frá 15 mánaða aldri og þar til þau komast í leikskóla eða í dvöl til dagforeldris. Upphæð heimgreiðslna kemur fram undir gjaldskrár hér neðar á síðunni og er upphæðin skattfrjáls. Greiðslur falla niður ef dvöl í leikskóla er hafnað vegna barna sem eru 30 mán. eða eldri. Sjá nánar í reglum um heimgreiðslur hér að neðan.

Heimgreiðslur eru greiddar eftir á til þeirra sem sótt hafa um og uppfylla skilyrði sem fram koma í reglum um heimgreiðslur. Greiðslur fara fram í fyrstu viku hvers mánaðar með rafrænum hætti.

Hægt er að sækja um heimgreiðslur í þjónustugátt.

Hvar sæki ég um heimgreiðslur?

Hægt er að sækja um heimgreiðslur í þjónustugátt.

Hverjir eiga rétt á heimgreiðslum?

Foreldrar/forsjáraðilar barna eiga rétt á heimgreiðslum frá þeim degi sem barn hefur náð 15 mánaða aldri. Skilyrði fyrir heimgreiðslum er að barn sé með lögheimili í Kópavogi og að barn sé ekki í annarri dvöl sem niðurgreidd er af Kópavogsbæ, það er að segja að barn sé ekki í leikskóla eða í dvöl hjá dagforeldri í Kópavogi eða í öðru sveitarfélagi.

Gjaldskrár

Leikskólagjöld

Prenta gjaldskrá

Í samræmi við samþykkt bæjarráðs 6. júlí 2023 tekur gjaldskráin breytingum fjórum sinnum á ári. Breytingar hverju sinni taka mið af þróun á undirliggjandi vísitölum. Gjaldskráin tekur breytingum 1. janúar, 1. apríl, 1. júlí og 1. október.

Leikskólagjöld eru innheimt frá og með þeim degi sem vistun barns hefst, óháð aðlögunartíma. Nánari upplýsingar um innritun og fleira má finna í reglum um innritun leikskóla.

Gjaldskrá tekur gildi 1. okt 2025.

Fæðisgjöld

 

Fæðisgjöld
Hádegisverður
8.731 kr.
Hressing
3.005 kr.
Fullt fæði
11.736 kr.

Almennt gjald

Dvalarstundir
Dvalargjald
Með hressingu
Með hádegismat
Með fullu fæði
4,0 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
4,5 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
5,0 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
5,5 stundir
0
8.731 kr.
11.736 kr.
6,0 stundir
0
8.731 kr.
11.736 kr.
6,5 stundir
27.144 kr.
35.876 kr.
38.881 kr.
7,0 stundir
29.232 kr.
37.964kr.
40.969 kr.
7,5 stundir
36.541 kr.
45.273 kr.
48.278 kr.
8,0 stundir
43.850 kr.
52.582 kr.
55.587 kr.
8,5 stundir
53.967 kr.
62.700 kr.
65.705 kr.
9,0 stundir
75.326 kr.
83.057 kr.
87.062 kr.

Afslættir

Tekjutengdir afslættir
Hægt er að sækja um tekjutengdan afslátt á umsóknarvef. Umsókn um afslátt þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt. Frekari upplýsingar um tekjutengdan afslátt er að finna í reglum um tekjutengdan afslátt.

Einstæðir     Í sambúð  
Tekjuviðmið Afsláttur   Tekjuviðmið Afsláttur
0 kr. ‑ 514.440 kr. 50%   0 kr. ‑ 738.109 kr. 50%
514.440 kr. ‑ 838.761 kr. 40%   738.110 kr. ‑ 1.095.982 kr. 40%
838.762 kr. ‑ 883.496kr. 30%   1.095.983 kr. ‑ 1.140.716 kr. 30%

883.497 kr. ‑ 928.229 kr.

20%   1.140.717 kr. ‑ 1.185.449 kr. 20%

928.230 kr. ‑ 972.963 kr.

10%   1.185.450 kr. ‑ 1.230.184 kr. 10%

 

Starfmannaafsláttur
Starfsfólk í leikskólum í 75% eða hærra starfshlutfalli á rétt á 40% starfsmannaafslætti.

Systkinaafsláttur

Systkinaafsláttur reiknast ofan á tekjutengdan afslátt þegar við á.

Systkinaafsláttur fer eftir fjölda yngri systkina. Systkinaafsláttur hækkar, frá 1.október 2025, úr 30% í 50% af dvalargjaldi ef barn á eitt yngra systkini, en 100% af dvalargjaldi ef barn á tvö yngri systkini eða fleiri í leikskóla eða í dvöl hjá dagforeldri. Systkinaafsláttur reiknast af dvalargjaldi eldri systkina. Systkinaafsláttur reiknast ofan á aðra afslætti. Ekki er veittur afsláttur af fæðisgjöldum. Ekki þarf að sækja um systkinaafslátt.

Hægt er að skoða leikskólagjöld útfrá mismunandi fjölda dvalartíma og afsláttum í reiknivél leikskólagjalda. Hægt er að skoða alla reikninga undir Gjöld í þjónustugátt.

Hér að neðan eru dæmi um dvalargjöld með afsláttum.

Dvalarstundir 30% afsl.
Dvalargjald
Með hressingu
Með hádegismat
Með fullu fæði
4,0 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
4,5 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
5,0 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
5,5 stundir
0
8.731 kr.
11.736 kr.
6,0 stundir
0
8.731 kr.
11.736 kr.
6,5 stundir
19.004 kr.
27.735 kr.
30.740 kr.
7,0 stundir
20.466 kr.
29.197 kr.
32.202 kr.
7,5 stundir
25.582 kr.
34.313 kr.
37.318 kr.
8,0 stundir
30.698 kr.
39.429 kr.
42.434 kr.
8,5 stundir
37.781kr.
46.512 kr.
49.517 kr.
9,0 stundir
52.731 kr.
61.462 kr.
64.467 kr.

Dæmi um dvalargjöld með 40% afsl.

Dvalarstundir 40% afsl.
Dvalargjald
Með hressingu
Með hádegismat
Með fullu fæði
4,0 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
4,5 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
5,0 stundir
0
3.005 kr.
8.731 kr.
11.736 kr.
5,5 stundir
0
8.731 kr.
11.736 kr.
6,0 stundir
0
8.731 kr.
11.736 kr.
6,5 stundir
16.289 kr.
25.020 kr.
28.025 kr.
7,0 stundir
17.542 kr.
26.273 kr.
29.278 kr.
7,5 stundir
21.919 kr.
30.660 kr.
33.665 kr.
8,0 stundir
26.314 kr.
35.045 kr.
38.050 kr.
8,5 stundir
32.385 kr.
41.116 kr.
44.121 kr.
9,0 stundir
45.199 kr.
53.930 kr.
56.935 kr.

Heimgreiðslur

Prenta gjaldskrá

Upphæð heimgreiðslna frá 1. janúar 2025 er 111.356 kr. á mánuði.

Heimgreiðslur eru greiddar eftirá frá næstu mánaðamótum eftir að barn hefur náð 15 mánaða aldri. Heimgreiðslur reiknast í fyrsta lagi frá þeim degi sem barn verður 15 mánaða. Heimgreiðslur fást að hámarki greiddar í ellefu mánuði á ári, ekki er greitt vegna júlí mánaðar.

Sjá nánar í reglum um heimgreiðslur.

Sjá einnig umsókn um heimgreiðslur.

Reglugerðir

Leikskólinn er fyrsta skólastigið og stuðlar að menntun barna í gegnum leik með velferð þeirra, þroska og öryggi að leiðarljósi. Leitast er við að hafa sveigjanleika í dvalartíma barna til að koma til móts við óskir og þarfir fjölskyldna.

Umsókn
Sækja þarf um leikskóladvöl fyrir barn í gegnum leikskólakerfið Völu sem þá skráist á biðlista eftir aldri þess. Fyrst þurfa umsækjendur að skrá sig inn í gegnum Þjónustugátt Kópavogsbæjar og flytjast við það inn á umsóknarsvæði Völu. 

Mikilvægt er að umsóknum hafi verið skilað inn fyrir 1.mars árið sem óskað er eftir dvöl fyrir barnið. Flestum börnum er úthlutað dvöl á tímabilinu mars - maí ár hvert fyrir komandi skólaár.

Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að barn eigi lögheimili í Kópavogi, en barnið getur verið á biðlista þó lögheimili sé annars staðar.

Innritun
Börn raðast á biðlista eftir aldri og er sérstakur biðlisti fyrir hvern leikskóla.

Foreldrar/forsjáraðilar geta merkt við allt að fimm leikskóla á umsóknarblaðinu. Ef foreldrar/forsjáraðilar fá ekki dvöl fyrir barn sitt í leikskóla sem sótt var um fá þau boð um leikskóladvöl í öðrum leikskóla eftir því hvar er laust hverju sinni. Fæðingardagur barns á biðlista ræður hvaða barn er næst inn. Forgangslisti barna getur haft áhrif á biðlistann.

Þiggi foreldrar/forsjáraðilar dvöl fyrir barn sitt í öðrum leikskóla en þau óskuðu eftir í fyrsta vali er möguleiki á að sækja um flutning síðar. Til að tryggja stöðugleika barns og skólastarfs er reynt að verða við flutningsbeiðni í upphafi næsta skólaárs á eftir.

Við innritun er reynt að taka tillit til barna sem eiga eldra systkini í umsóknarleikskóla. Ef systkini fær úthlutað dvöl í sama leikskóla og eldra systkini er skilyrði að búið sé að úthluta dvöl fyrir eldri börn á biðlistanum í einhverjum af þeim leikskólum sem sótt var um í. Auk þess er skilyrði að eldra systkini eigi að minnsta kosti eftir 6 mánuði af leikskóladvöl við upphaf skóladvalar yngra systkinis.

Forgangur
 Heimilt er að verða við beiðni um forgang í leikskóla Kópavogs vegna:

1. Barna sem hafa náð 4-5 ára aldri.

2.  Alvarlega fatlaðra barna, sem vegna alvarlegrar þroskaröskunar, geðröskunareða líkamlegrar hömlunar, sem þurfa sérstakar íhlutun. Læknisvottorð og greining ef hún liggur fyrir skal fylgja forgangsumsókn.

3.  Langveikra barna sem þarfnast læknisfræðilegrar meðferðar vegna alvarlegs og langvinns sjúkdóms. Læknisvottorð skal fylgja forgangsumsókn

4. Barna sem búa við eftirfarandi erfiðleika í uppeldisaðstæðum:

a. Barnaverndarmál. Rökstuðningur frá barnaverndarþjónustu skal fylgja umsókn.

b. Alvarleg og langvinn veikindi eða fötlun hjá foreldrum/forsjáraðilum barnsins eða systkinum þess. Læknisvottorð skal fylgja umsókn. Ef gögn systkinis liggja fyrir á skrifstofu Menntasviðs er nóg að vísa í þau, nafn og kennitala þarf að fylgja umsókn.

c. Foreldri með forsjá hefur ekki náð 18 ára aldri.

5. Barna starfsfólks í leikskólum Kópavogs.
 Starfsfólk leikskóla getur sótt um forgang í leikskóla Kópavogs, svo fremi sem leikskólastjóri mæli með forganginum. Starfshlutfall starfsmanns þarf að vera að lágmarki 75%. Láti starfsmaður af störfum áður en komið er að barni hans á biðlista, missir barnið forgangsrýmið og hættir um leið og starfsmaðurinn.

 Deildarstjóri leikskóladeildar tekur ákvörðun um forgang. Leikskóladvöl barns með forgang hefst í fyrsta lagi við tólf mánaða aldur. Umsókn um forgang skal berast skriflega og studd viðeigandi gögnum.

 

 

Dvöl
Leikskólar Kópavogs eru opnir frá kl. 7:30 til 16:30 á virkum dögum. Dvalartími barna getur verið breytilegur milli daga. Leikskólinn er gjaldfrjáls ef dvalarstundir eru 30 klukkustundir í viku eða færri. Ekki er hægt að skrá börn í dvöl seinna en kl. 09:00 að morgni. Barn getur verið fjóra daga í viku en að lágmarki 4 tíma þá daga sem barn er í dvöl. Opnunartími milli 7:30-8:00 og lokunartími milli 16:00-16:30 er háður því að það séu að lágmarki 3 börn með skráðan dvalartíma á viðkomandi tíma. Séu færri börn með skráðan dvalartíma á þeim tíma er leikskólastjóra heimilt að skerða opnunartíma sem því nemur. Gildir sú ákvörðun leikskólaárið. Hvert barn hefur ákveðinn dvalartíma dag hvern, miðað skal við að börn komi og fari innan dvalartíma.Öll börn taka þátt í þeim máltíðum sem falla innan dvalartíma þeirra.

Ef foreldrar/forsjáraðilar óska eftir tímabundinni styttingu á dvalartíma t.d. vegna fæðingarorlofs eða atvinnumissis, er orðið við þeirri beiðni. Foreldrum/forsjáraðilum er jafnframt tryggð lenging dvalartíma þegar starf hefst að nýju, sé eftir því óskað.


Dvalargjald
Dvalargjöld reiknast samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Foreldrar/forsjáraðilar með lágar tekjur geta sótt um tekjutengdan afslátt af dvalargjöldum í leikskóla í gegnum þjónustugátt. Sjá nánari upplýsingar í reglum um tekjutengda afslætti.

Gjöld og afslættir reiknast á það foreldri/forsjáraðila sem barnið á lögheimili hjá nema samkomulag sé um skipta búsetu. Beiðni um breytingu á greiðanda skal ávallt undirrituð af foreldri/forsjáraðila sem tekur við greiðslum. Sé viðkomandi hvorki með lögheimili barns né samkomulag um skipta búsetu skal beiðnin undirrituð af báðum foreldrum/forsjáraðilum.

Systkinaafsláttur er veittur í samræmi við gildandi gjaldskrá.

Starfsmenn sem starfa í leikskólum Kópavogs og eru að lágmarki í 75% starfi geta sótt um 40% afslátt af dvalargjöldum.

Kópavogsbær greiðir ekki fyrir barn sem dvelur í leikskóla í öðru sveitarfélagi samtímis því að halda rými í Kópavogi.

Uppsagnarfrestur
 Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við fyrsta eða fimmtánda hvers mánaðar. Foreldrar/forsjáraðilar þurfa að skila uppsögn á leikskóladvöl til leikskólastjóra. Ef leikskólagjöld eru í vanskilum sem nemur 3 mánuðum eða lengur er leikskóladvöl sagt upp. Ef óskað er eftir samkomulagi um greiðslu vanskila skal hafa samband við innheimtudeild.

Samkomulag milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kveður á um að barni sem flytur á milli sveitarfélaga sé heimilt að dvelja áfram í leikskóla í því sveitarfélagi sem flutt er úr í allt að tólf mánuði frá flutningi lögheimilis eða þar til barnið fær úthlutað dvöl í lögheimilissveitafélagi. Foreldrar/forsjáraðilar skulu sækja um leikskóladvöl hjá sveitarfélaginu sem flutt er í og einnig um um framlengingu á dvöl barns vegna flutnings hjá sveitarfélagi sem flutt er úr. Ef þjónusta sem börn þurfa á að halda er ekki í sveitarfélaginu sem flutt er í geta tímamörk verið rýmri. Barn á lokaári hefur tækifæri til að ljúka leikskólagöngu sinni í sveitarfélaginu sem flutt er úr. Lögheimilissveitarfélagið greiðir kostnað við leikskóladvöl barnsins samkvæmt viðmiðunargjaldskrá Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Endurskoðað í febrúar 2021
Endurskoðað í desember 2023
Endurskoðað í janúar 2024
Samþykkt í leikskólanefnd apríl 2024

1. gr. Markmið
Kópavogsbær veitir foreldrum/forsjáraðilum barna 15 mánaða og eldri heimgreiðslur vegna barna sem hvorki eru í dvöl hjá dagforeldri né í leikskóla.

2. gr. Skilyrði
Greiðslur eru bundnar eftirfarandi skilyrðum:

  • Barn sé með lögheimili í Kópavogi.
  • Barn njóti ekki annarra niðurgreiðslna frá Kópavogsbæ vegna dvalar barnsins.
  • Barn sé á biðlista eftir dvöl í leikskóla í Kópavogi.

3. gr. Umsókn
Sækja þarf um heimgreiðslur vegna barns í Þjónustugátt Kópavogsbæjar. Umsókn um heimgreiðslur þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Aðeins þarf að sækja um heimgreiðslur einu sinni. Heimgreiðslur eru ekki afturvirkar.

4. gr. Afgreiðsla
Heimgreiðslur eru greiddar eftir á frá næstu mánaðamótum eftir að barn hefur náð 15 mánaða aldri. Heimgreiðslur reiknast frá þeim degi sem barn verður 15 mánaða.

Greiðslur falla niður þegar barn hefur dvöl í leikskóla eða hjá dagforeldri með starfsleyfi.
Greiðslur falla niður ef dvöl í leikskóla er hafnað vegna barna sem eru 30 mán. eða eldri.
Greiðslur falla niður við flutning á lögheimili barnsins úr sveitarfélaginu.

Heimgreiðslur fást að hámarki greiddar í 11 mánuði á ári, ekki er greitt vegna júlí mánaðar

5. gr. Upphæð
Mánaðarleg upphæð heimgreiðslna er tilgreind í gjaldskrá og birt á gjaldskrárvef bæjarins.

6. gr. Uppgjör
Menntasvið hefur umsjón með framkvæmd heimgreiðslna Kópavogsbæjar. Greiðslur fara fram í fyrstu viku hvers mánaðar með rafrænum hætti.

7. gr. Leiðréttingar
Verði um ofgreiðslu að ræða áskilur Kópavogsbær sér rétt til endurgreiðslu, m.a. í tilvikum þar sem ofgreiðsla kann að vera á grundvelli þess að umsækjandi hafi gefið upp rangar upplýsingar eða ekki tilkynnt um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á rétt til greiðslu.

Reglur þessar gilda frá 1.janúar 2025
Reglur þessar gilda frá 1. janúar 2024
Reglur þessar voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs í nóvember 2023


 1. gr. Markmið
Reglur þessar eiga við um dvalargjöld í leikskólum í Kópavogi.
Kópavogsbær veitir foreldrum/forsjáraðilum með tekjur undir gildandi tekjuviðmiðum tekjutengdan afslátt af dvarargjöldum í leikskóla með aþað að markmiði að koma til móts við fjölskyldur með ung börn í sveitafélaginu.

2. gr. Skilyrði
Til þess að eiga rétt á að tekjutengdum afslætti þurfa meðaltekjur fyrir skatta að vera innan tekjuviðmiða sem birt gjaldskrá leikskólagjalda. Upphæð afsláttar fer eftir því undir hvaða tekjuviðmið meðaltekjur falla og hvort umsækjandi er einstæður eða í sambúð.

Við mánaðarlegan útreikning á tekjutengdum afsláttum er miðað við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir síðustu þrjá mánuði sem aðgengilegir eru í skattaupplýsingum hjá Skattinum hverju sinni. Athygli er því vakin á því að afslættir geta verið breytilegir milli mánaða.

Með umsókn um tekjutengdan afslátt veitir umsækjandi Kópavogsbæ heimild til þess að sækja skattaupplýsingar mánaðarlega til staðfestingar á því að forsendur tekna séu innan tekjuviðmiða.
Hægt er að afturkalla ofangreinda heimild hvenær sem er og þá mun möguleiki á tekjutengdum afslætti einnig falla niður. Afturköllun þarf að gera með rafrænni undirritun og hægt er að óska eftir því með tölvupósti eða með skilaboðum á Þjónustugátt.

Skattaupplýsingarnar verða hvergi geymdar heldur aðeins upplýsingar um það hvort umækjandi á rétta á tekjutengdum afslætti eða ekki og hver afsláttar prósentan er hverju sinni.

 Í tilviki sambúðarfólks þarf maki umsækjanda einnig að skrifa rafrænt undir umsókn og staðfestingu um heimild Kópavogsbæjar um uppflettingu í skattaskrá. Umsókn telst ekki gild fyrr en rafrænar undirskriftir liggja fyrir.

 3. gr. Umsókn
Foreldrar/forsjáraðilar sækja um tekjutengdan afslátt af dvalargjöldum í leikskóla í gegnum þjónustugátt.
Umsókn um afslátt þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir.
Afsláttur er ekki veittur afturvirkt.

4. gr. Gjaldskrá
 Frekari upplýsingar um afslætti og gjöld má finna undir „Leikskólagjöld“ á vefsvæði fyrir Gjaldskrár á vefsíðu sveitarfélagsins. Tekjuviðmið eru birt í gildandi gjaldskrá hverju sinni . Terkjuviðmið taka mið af þróun vísitölu launa og taka breytingum samhliða breytingum á gjaldskrá leikskólagjalda.

5. gr. Leiðréttingar
Ef veittir eru afslættir á röngum forsendum eða umfram það sem þessar reglur segja til um, áskilur Kópavogsbær sér rétt til leiðréttingu gjalda, m.a. í tilvikum þar sem leiðrétting kann að vera á grundvelli þess að umsækjandi hafi gefið upp rangar upplýsingar eða hann hafi ekki tilkynnt um breytingar á högum sínum sem hafa áhrif á rétt til afsláttar.

6. gr. Aðrir afslættir
Systkinaafsláttur reiknast til viðbótar við tekjutengdan afslátt þegar við á.

Reglur þessar gilda frá 1.maí 2025
Reglur þessar gilda frá 1.janúar 2024
Reglur þessar voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs í nóvember 2023.