Smárinn

Smárahverfi afmarkast af Hafnarfjarðarvegi í vestri, Kópavogsdal í norðri, Reykjanesbraut í austri og Arnanesvegi í suðri.

Hverfi Kópavogs Digranes Fifuhvammur Kársnes Smárinn Vatnsendi

Eins og allsstaðar í Kópavogi eru falleg og skemmtileg svæði í Smárahverfi sem gaman er að fara um.

  • Íþróttasvæði og skólalóð Smáraskóla

    Smáraskóli
    Norðan Smárans, íþróttasvæðis Breiðabliks, má finna skemmtilegt leiksvæði fyrir börn og fullorðna. Á svæðinu eru m.a. hjólabrettapallar, sparkvöllur ásamt nýuppgerðum körfuboltavöllum. Er svæðið vinsælt hjá  börnum og unglingum og oft mikið um að vera á góðum sumardögum. 

  • Smáralind

    Smáralind var opnuð 10. október 2001 við Fífuhvammsveg. Hún er ein stærsta verslunarmiðstöð landsins eða um 9.000 fermetrar. Þar er hægt að finna fjöldann allan af verslunum auk þess sem á staðnum eru fjölbreytt afþreying fyrir alla. Nýverið var lokið við að smíða norðurturn byggingarinnar og stækkar verslunar- og þjónustuhúsnæðið til muna við þá framkvæmd.

  • Kópavogsvöllur

    Kópavogsvöllur
    Lengi vel var Kópavogsvöllur heimavöllur bæði Breiðabliks og HK í knattspyrnu em í dag er hann eingöngu heimavöllur Breiðabliks. Á vellinum hafa farið fram margir knattspyrnuleikir og frjálsíþróttakeppnir. Umhverfis grassvæði vallarins er 400 metra hlaupabraut ásamt fullkominni aðstöðu til frjálsíþróttaiðkunnar. Við Kópavogsvöll hefur verið reist knattspyrnuhöll sem var bylting fyrir knattspyrnumenn í Kópavogi þegar húsið var vígt 2002. Auk þessa er við völlinn eitt besta íþróttahús landsins sem byggt var fyrir Heimsmeistaramótið í handknattleik sem fram fór 1995.  Frábær aðstaða sem hefur gefið okkur frábæra íþróttamenn.

Síðast uppfært 13. janúar 2020