Fann sálufélagann í Kórnum
Hún elskar Kópavog og íslensk bjúgu með uppstúf og segist hvergi hamingjusamari en einmitt við fagra sjávarsíðuna í Kársnesinu. „Ég er stolt af því að vera orðin Íslendingur og geta kallað Ísland mitt heimaland. Um tíma færði maðurinn minn í tal að við ættum kannski að flytja til hlýrri landa, en nei. Ég vil ekki flytja til annars lands. Hér líður mér best og hér á ég heima.“

